Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 21. september 2010 07:09
Magnús Már Einarsson
Hin Hliðin - Hallbera Guðný Gísladóttir (Valur)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Guðmundsson
Þá er komið að hinni hliðinni hér á Fótbolta.net. Að þessu sinni sýnir Hallbera Guðný Gísladóttir á sér hina hliðina en hún er í liði Vals sem tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á dögunum.

Smellið hér til að sjá hina hliðina á fleiri leikmönnum

Fullt nafn: Hallbera Guðný Gísladóttir

Gælunafn: Berry

Aldur: 23

Gift / sambúð? Nei
Börn: 0

Hvað eldaðir þú síðast? Eggjaköku

Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Pepperoni og rjómaost. Tek svo reyndar oftast pepperóníið af.

Uppáhaldssjónvarpsefni? Gelgjuþættir, Arrested Development, Greys anatomy o.fl

Besta bíómyndin? Braveheart, Hot Rod, Notting Hill og svo margar margar aðrar

Uppáhaldsútvarpsstöð: 97.7

Hver er uppáhalds platan þín?0 og Neon Bible

Uppáhaldsdrykkur? Drekk aðallega vatn, finnst kók vont

Uppáhalds vefsíða? Alejandro.bloggar.is lífsreynslusaga Önnu Garðars sem skoraði 4 mörk fyrir Val á móti Keflavík sumarið 2008 og Kötlu ”vinkonu” hennar.

Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Nei get ekki sagt það. Tek samt stundum smá áhættu og spila með vinstri legghlífina á hægri og öfugt. Bara til þess að krydda aðeins uppá þetta.

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Klobba

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Ír

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Fannst Ásthildur Helga alveg merkileg og ÍA liðið þegar þeir voru uppá sitt besta.

Erfiðasti andstæðingur? Laufey Ólafs þegar hún er ekki með mér í liði á æfingum.

Ekki erfiðasti andstæðingur? Embla í karókí

Besti samherjinn? Valsstelpurnar eru topp samherjar. Svo var líka gott að vera með Söru Sigurlás í liði.

Sætasti sigurinn? Valur-Breiðablik í bikarúrslitunum 2006.

Mestu vonbrigði? Þegar Oasis hætti. Var líka leiðinlegt að brotna og missa af EM

Hvað er þitt uppáhaldslið í enska boltanum? United

Uppáhaldsknattspyrnumaður? Ryan Giggs og Roy Keane

Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Eiður Smári var góður

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Leó Ernir Reynisson, Fylki

Fallegasti knattspyrnumaðurinn? Góð spurning

Fallegasta knattspyrnukonan? Dóra María hlýtur að eiga þennan titil alveg skuldlaust.

Grófasti leikmaður deildarinnar? Alicia í Kr

Besti íþróttafréttamaðurinn? Silja Úlfars

Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Rakel Logadóttir er ótrúleg.

Hefurðu skorað sjálfsmark? Neiiii.. eða jú svona næstum því. Leyfði einu sinni boltanum að rúlla inn í markið okkar, hélt hann væri á leiðinni útaf. Mjög svekkjandi að sjá svo boltann rúlla hægt og rólega inn í markið.

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Það var mjög fyndið þegar Rakel Loga tók skeini fagnið í evrópukeppninni. Uppskárum 2 refsistig frá UEFA fyrir það.

Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? 2003 eða 4 uppá Skaga.

Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Topp síða.

Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Já alveg nokkrum sinnum á dag.

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Held að þetta sé ágætt eins og þetta er.

Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Kasabian

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Upphitun og 200 m sprettirnir

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Þarf að fara að redda mér númerum hjá frægu fólki.

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Akranesið getur verið voðalega ljúft.

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Þarf oftast nokkur snooze

Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Ríkharður Jónsson

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já ég fylgist með því sem er í fréttum bara. Svo mætir maður stundum á handboltaleiki hjá Val.

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Víkingur-Ía í sumar, góð 3 stig þar.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Í sumar hef ég verið í Puma skóm

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Frönsk málfræði

Vandræðalegasta augnablik? Of mörg til þess að gera upp á milli.

Komdu með eina staðreynd um þig sem flestir vita ekki um: Slæ tannburstanum 12 sinnum í vaskinn eftir notkun
banner
banner
banner
banner