Leiknir F.
2
3
Þór
Povilas Krasnovskis '1 1-0
1-1 Bjarki Þór Viðarsson '8
1-2 Bjarki Þór Viðarsson '11
Arkadiusz Jan Grzelak '63 , víti 2-2
2-3 Jóhann Helgi Hannesson '65
28.06.2020  -  16:00
Fjarðabyggðarhöllin
Lengjudeild karla
Aðstæður: Fínt teppi.
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Maður leiksins: Bjarki Þór Viðarsson (Þór)
Byrjunarlið:
Danny El-Hage
5. Almar Daði Jónsson
7. Arkadiusz Jan Grzelak (f)
8. Jesus Suarez Guerrero
9. Björgvin Stefán Pétursson ('54)
11. Sæþór Ívan Viðarsson
16. Unnar Ari Hansson
17. Salko Jazvin
21. Daniel Garcia Blanco
22. Ásgeir Páll Magnússon
29. Povilas Krasnovskis

Varamenn:
1. Bergsteinn Magnússon (m)
6. Jón Bragi Magnússon
10. Marteinn Már Sverrisson
14. Kifah Moussa Mourad
17. Valdimar Brimir Hilmarsson
19. Stefán Ómar Magnússon
20. Mykolas Krasnovskis ('54)

Liðsstjórn:
Brynjar Skúlason (Þ)
Amir Mehica
Pálmi Þór Jónasson
Atli Freyr Björnsson

Gul spjöld:
Almar Daði Jónsson ('45)
Unnar Ari Hansson ('57)
Arkadiusz Jan Grzelak ('67)
Jesus Suarez Guerrero ('70)
Mykolas Krasnovskis ('76)

Rauð spjöld:
@saebjornth Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skýrslan: Björgun á línu sendi 'þrjú stig heim í Hamar'
Hvað réði úrslitum?
Jakob Franz bjargaði á línu fyrir Þórsara snemma í uppbótartíma. Líklegast hefði mark á þeim tíma ráðið úrslitum. Þórsarar sköpuðu sér heilt yfir fleiri færi þó heimamenn hafi átt mjög góðan kafla í aðdraganda jöfnunarmarksins (2-2) sem og undir lok leiks þegar allt púðrið fór í að jafna í 3-3. Það verður einhvers staðar að koma þessu á framfæri: Stuðningur við bæði lið var til fyrirmyndar. Þórsarar mættu vel á leikinn í dag og trommusláttur heimamanna bergmálaði um höllina eins og enginn væri morgundagurinn.
Bestu leikmenn
1. Bjarki Þór Viðarsson (Þór)
Sjaldan verið eins auðvelt að velja mann leiksins. Skoraði tvö mörk í miðverðinum og átti fyrirgjöfina í þriðja markinu. Flottur varnarlega bæði í miðverðinum og bakverðinum eftir að Þórsarar breyttu liði sínu.
2. Ólafur Aron Pétursson (Þór)
Ég íhugaði að velja bæði Arek (aðallega fyrir flottan seinni hálfleik) og Fannar Daða sem næstbesta mann leiksins. Arek var talsvert öflugri í hægri bakverðinum í seinni hálfleik heldur en í miðverðinum í þeim fyrri. Aron fær valið þar sem langflest föst leikatriði frá honum ollu vandræðum hjá heimamönnum og hann var einnig heilt yfir góður á miðjunni.
Atvikið
Jóhann Helgi Hannesson skoraði sigurmarkið með sinni fyrstu snertingu í Íslandsmótinu. Frábær viðbót við sterkt lið Þórsara að fá Jóa inn með sína baráttu og dugnað.
Hvað þýða úrslitin?
Þórsarar eru með fullt hús stiga á meðan Leiknir er án stiga eftir tvo fyrstu leikina.
Vondur dagur
Völdun heimamanna á Þórsurum í föstum leikatriðum og fyrirgjöfum. Nánast allar fyrirgjafir voru vesen og var Danny mikið í því að kýla eða slá boltann frá þangað til hann tók upp á því að grípa boltann í seinni hálfleiknum. Alls ekki sannfærandi.
Dómarinn - 8
Ég held að Arnar hafi dæmt þennan leik alveg mjög vel. Erfitt að sjá hvort vítaspyrnudómurinn var réttur en við fyrstu sín og viðbrögð leikmanna var hann það.
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) ('27)
Orri Sigurjónsson ('46)
2. Elmar Þór Jónsson ('64)
5. Loftur Páll Eiríksson
6. Ólafur Aron Pétursson
14. Jakob Snær Árnason ('64)
16. Jakob Franz Pálsson
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason ('79)
18. Izaro Abella Sanchez
24. Alvaro Montejo
30. Bjarki Þór Viðarsson

Varamenn:
12. Auðunn Ingi Valtýsson (m) ('27)
28. Halldór Árni Þorgrímsson (m)
3. Kaelon Paul Fox ('46)
4. Hermann Helgi Rúnarsson ('64)
9. Jóhann Helgi Hannesson ('64)
15. Guðni Sigþórsson ('79)

Liðsstjórn:
Sveinn Elías Jónsson (Þ)
Páll Viðar Gíslason (Þ)
Kristján Sigurólason
Sölvi Sverrisson
Elín Rós Jónasdóttir
Gestur Örn Arason

Gul spjöld:
Alvaro Montejo ('70)
Jóhann Helgi Hannesson ('89)

Rauð spjöld: