Leiknir R.
0
1
ÍA
0-1 Garðar Gunnlaugsson '68
11.05.2015  -  19:15
Leiknisvöllur
Pepsi-deild karla 2015
Aðstæður: Glampandi sól, smá vindur. Völlurinn sjálfur fínn.
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: 1227
Byrjunarlið:
Óttar Bjarni Guðmundsson
Eyjólfur Tómasson
Halldór Kristinn Halldórsson
Elvar Páll Sigurðsson ('58)
3. Eiríkur Ingi Magnússon ('83)
9. Kolbeinn Kárason
11. Brynjar Hlöðversson ('61)
15. Kristján Páll Jónsson (f)
21. Hilmar Árni Halldórsson
23. Gestur Ingi Harðarson
88. Sindri Björnsson

Varamenn:
1. Arnar Freyr Ólafsson (m)
5. Edvard Börkur Óttharsson
7. Atli Arnarson ('61)
10. Ólafur Hrannar Kristjánsson ('58)
16. Frymezim Veselaj ('83)
26. Hrannar Bogi Jónsson
27. Magnús Már Einarsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Halldór Kristinn Halldórsson ('44)
Ólafur Hrannar Kristjánsson ('62)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknum er lokið með sigri ÍA. Umfjöllun og viðtöl koma innan skamms hér inn.
94. mín
Leiknismenn með skot í stöng eftir því sem blaðamenn sáu, en sólin skein í augun og því ekki er það alveg á hreinu. Í það minnsta dauðafæri á lokametrunum
93. mín
Ásgeir Marteins í dauðafæri eftir sendingu frá Garðari, komst inn fyrir vörn Leiknis en skaut framhjá.
90. mín Gult spjald: Marko Andelkovic (ÍA)
90. mín
90 mínútur komnar á klukkuna og það er 4 mínútum bætt við.
87. mín
Inn:Ingimar Elí Hlynsson (ÍA) Út:Jón Vilhelm Ákason (ÍA)
83. mín
Jón Vilhelm með aukaspyrnu utan af velli, c.a. 25 metra færi. Skotið var ágætt en ekki á rammann.
83. mín
Inn:Frymezim Veselaj (Leiknir R.) Út:Eiríkur Ingi Magnússon (Leiknir R.)
77. mín
Leiknisljónin söngla hér ,,Faðir Abraham" en stuðningsmenn Leiknis eru búnir að vera að syngja og tralla allan leikinn.
75. mín
Inn:Ásgeir Marteinsson (ÍA) Út:Arsenij Buinickij (ÍA)
73. mín
Leiknismenn pressa stíft og Skagamenn hafa bakkað ansi aftarlega. Þetta verður spenna fram á síðasta flaut.
71. mín
Atli Arnarson með þrusu skot að marki skagamann utan af velli. Boltinn fór rétt yfir markið. Það er hlaupin spenna og ákveð í þennan leik og það er vel.
70. mín
Inn:Hallur Flosason (ÍA) Út:Albert Hafsteinsson (ÍA)
68. mín MARK!
Garðar Gunnlaugsson (ÍA)
Stoðsending: Marko Andelkovic
MAAAAARRRRRKKKKKK!!!!!!!!!!!!!!!!! Við fengum mark í Breiðholtið. Marko Andelkovic átti sendingu sem Garðar skallaði og boltinn lak inn í markið. Eyjólfur í marki Leiknis afar ósannfærandi.
65. mín
Það eru 1227 áhorfendur á Ghettó Ground. Það er vel gert!
64. mín Gult spjald: Arnór Snær Guðmundsson (ÍA)
62. mín Gult spjald: Ólafur Hrannar Kristjánsson (Leiknir R.)
61. mín
Inn:Atli Arnarson (Leiknir R.) Út:Brynjar Hlöðversson (Leiknir R.)
60. mín
Teitur Pétursson með góða fyrirgjöf og sigldi boltinn rétt framhjá höfði Alberts Hafsteinssonar sem var í ákjósanlegu færi fyrir framan mark Leiknis.
58. mín
Inn:Ólafur Hrannar Kristjánsson (Leiknir R.) Út:Elvar Páll Sigurðsson (Leiknir R.)
Elvar er ekki búinn að eiga góðan dag.
58. mín
Hilmar Árni með arfaslakt skot hátt yfir mark skagamanna.
53. mín
Skagamenn hafa byrjað seinni hálfleikinn af krafti og eru líklegri en Leiknismenn eins og staðan er núna.
48. mín
Albert Hafsteinsson með virkilega gott skot að marki Leiknis innan úr teig. Eyjólfur gerði virkilega vel og varði.
46. mín
Leikurinn er hafinn á ný. Ég vil sjá 2 til 3 mörk í þessum seinni hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Fyrri hálfleikurinn hefur verið skemmtilegur þótt vanti markaskorun, er nú viss um að þau verði nokkur í seinni hálfleik. Ég ætla að fá mér kaffi og kitkat í boði höfðingjana í Leikni sem færðu blaðamönnum burger, pepsí, kitkat og kaffi í byrjun leiks.
44. mín Gult spjald: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir R.)
Fékk hér gult spjald fyrir orðbragð....sagði orð sem ekki er hægt að hafa eftir í virðulegri textalýsingu.
43. mín
43 mínútur komnar á klukkuna. Einhverjir segja að það sé markamínúta

27. mín
Dauðadauðafæri fyrir Skagamenn. Þeir áttu skot að marki, sá ekki hver átti skotið og Leiknismenn björguðu rétt áður en Garðar hefði náð að pota tánni í boltann og inn. Þarna voru Leiknismenn heppnir.

24. mín
Jón Vilhelm þarf að skipta um treyju einhverra hluta vegna og er kominn í númerslausa treyju.....en hann er nú samt númer 10!
22. mín
Leiknismenn í dauðafæri. Kolbeinn átti góða fyrirgöf sem Kristján Páll náði ekki að nýta nógu vel, var í þröngu færir fyrir opnu marki eða því sem næst. Leiknismenn eru líklegri, það verður að segjast.
20. mín
Kolbeinn Kárason komst í upphlaup einn á móti Arnóri Snæ sem gerði mjög vel og stoppaði sóknina á lagalegan hátt. Vel gert.
16. mín
Hilmar Árni með aukaspyrnu sem Halldór Kristinn skallaði yfir mark Skagamanna, engin hætta.
14. mín

11. mín
Leiknismenn hafa byrjað betur þessa fyrstu mínútur leiksins.
7. mín
Hilmar Árni átti skot að marki eftir að Árni Snær klikkaði í að koma boltanum fram og það var Ármann Smári sem varði boltann því sem næst á línu! Þarna voru skagamenn stálheppnir.
5. mín
Fyrsta hættulega sókn Leiknismanna. Hilmar Árni átti fína sendingu utan af kantinum sem Árni Snær náði að grípa. Elvar Páll var tilbúinn til að skalla boltann í netið ef Árni hefði klikkað.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er hafinn! Leiknismenn spila í átt að Asparfelli og Skagamenn i átt að Breiðholtslaug
Fyrir leik
In the ghetto með Elvis er byrjað að óma og þá fara leikmenn úr yngra flokka starfi Leiknis að koma inn á völlinn en það eru krakkar sem eru með rætur til yfir 20 þjóðlöndum sem æfa með Leikni.
Fyrir leik
Málarameistarinn Erlendur Eiríksson heldur utan um flautuna og spjaldabókina í kvöld. Honum til aðstoðar eru þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Bryngeir Valdimarsson
Fyrir leik
Stúkan er orðin full af fólki. Það er greinilegt að menn og konur ætla að styðja sitt lið í dag og það er vel.

Fyrir leik
10 mínútur í fyrsta heimaleik Leiknis í efstu deild karla í knattspyrnu. Ef þú hefur eitthvað um leikinn að segja og vilt deila því með umheiminum, endilega hentu þá í ferska færslu og merktu með #fotbolti.net á twitter.
Fyrir leik
Liðin eru úti á vellinum að klára upphitunina. Þetta er að bresta á!

Fyrir leik
Þá er komið að spánni.

Haraldur frá Vísir.is segir að heimamenn í Leikni vinni 2 - 1.

Bolvíska stálið Kristján frá mbl.is segir að Leiknir vinni 1 - 0

Og þar með virðist það ljóst að þeir sem sitja hér í blaðamannabílnum spái heimamönnum sigri því að ég ætla að skjóta á 3 - 2 sigur Leiknismanna.
Fyrir leik
Við óskum Leiknismanninum Gest Inga Harðarsyni innilega til hamingju með 28 ára afmælið!
Fyrir leik
Páll Óskar hljómar á Ghettó Ground með nýja hittarann sinn. Fólk er byrjað að safnast saman í stúkunni. Þetta verður eitthvað!

Fyrir leik
Veðrið er með besta móti í Breiðholtinu. Glampandi sól og smá vindur. Afbragðsskilyrði fyrir knattspyrnuleik.
Fyrir leik
Leiknir stillir upp sama byrjunarliði og vann Val 3-0 á útivelli í fyrstu umferð. Kamerúnski vinstri bakvörðurinn Charley Fomen er kominn með atvinnuleyfi en náði ekki að fá leikheimild í tæka tíð.

Vinstri bakvörður Skagamanna, Darren Lough fór meiddur af velli í síðasta leik og er ekki með. Teitur Pétursson kemur inn í liðið en það er eina breytingin.
Elvar Geir Magnússon
Verið með okkur á Twitter með kassamerkinu #fotboltinet

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Ósigrar Leiknis gegn ÍA í fyrra voru einu ósigrar Breiðhyltinga á Íslandsmótinu. Skaga­menn unnu 1-0 sigur í Breiðholt­inu og 2-1 á Akra­nesi. Garðar Gunn­laugs­son skoraði öll þrjú mörk ÍA gegn Leikni í fyrra en Sindri Björns­son gerði mark Leikn­is í þessum viðureignum.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA:
Þetta verður mikill baráttuleikur og við þurfum að gíra okkur upp í það. Leikurinn leggst vel í mig og við erum meðvitaðir um hvernig leik við erum að fara í. Þetta verður fyrsti leikur Leiknis á heimavelli í efstu deild og þeir minntu heldur betur á sig í fyrstu umferðinni gegn Val, þar sem aðdáendur þeirra sýndu einnig frábæran stuðning.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Velkomin með okkur á nýliðaslag í Breiðholtinu. Fyrsta heimaleik Leiknis í efstu deild og má búast við hátíðarstemningu!

Leiknisvöllur skartar ekki sínu fegursta sem stendur en það breytir því ekki að þar verður leikið. Aðgengi í stúkuna er ekki með besta móti og því er mikilvægt að áhorfendur mæti tímanlega í stúkuna.

Krakkar frá yfir 20 þjóðlöndum eru að æfa hjá Leikni og verða þau í forgrunni í aðdraganda leiksins með því að leiða leikmenn inn á völlinn.

Leiknir vann Val í fyrstu umferð en ÍA tapaði naumlega fyrir Stjörnunni. Skagamenn unnu báða leikina gegn Leikni í 1. deildinni í fyrra.
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
Arnar Már Guðjónsson
Teitur Pétursson
Ármann Smári Björnsson
Arnór Snær Guðmundsson
2. Þórður Þorsteinn Þórðarson
8. Albert Hafsteinsson ('70)
10. Jón Vilhelm Ákason ('87)
13. Arsenij Buinickij ('75)
31. Marko Andelkovic
32. Garðar Gunnlaugsson

Varamenn:
8. Hallur Flosason ('70)
10. Steinar Þorsteinsson
20. Gylfi Veigar Gylfason
23. Ásgeir Marteinsson ('75)
24. Árni Þór Árnason

Liðsstjórn:
Páll Gísli Jónsson
Ingimar Elí Hlynsson

Gul spjöld:
Arnór Snær Guðmundsson ('64)
Marko Andelkovic ('90)

Rauð spjöld: