Þór
4
1
Haukar
0-1 Arnar Aðalgeirsson '13
Ármann Pétur Ævarsson '37 , misnotað víti 0-1
Alvaro Montejo '53 , víti 1-1
Ármann Pétur Ævarsson '57 2-1
Bjarki Þór Viðarsson '59 3-1
Óskar Elías Zoega Óskarsson '77 4-1
19.07.2018  -  18:00
Þórsvöllur
Inkasso deildin - 1. deild karla
Aðstæður: 11 stiga hiti, sól og gola
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Maður leiksins: Ignacio Gil Echevarria
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
Sveinn Elías Jónsson
Orri Sigurjónsson
3. Óskar Elías Zoega Óskarsson
5. Loftur Páll Eiríksson
6. Ármann Pétur Ævarsson
8. Jónas Björgvin Sigurbergsson ('78)
13. Ingi Freyr Hilmarsson ('84)
24. Alvaro Montejo ('54) ('64)
30. Bjarki Þór Viðarsson
88. Nacho Gil

Varamenn:
2. Gísli Páll Helgason
4. Hermann Helgi Rúnarsson
4. Aron Kristófer Lárusson ('84)
12. Aron Ingi Rúnarsson
14. Jakob Snær Árnason ('78)
15. Guðni Sigþórsson ('54) ('64)
18. Alexander Ívan Bjarnason

Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ)
Sveinn Leó Bogason
Sandor Matus
Hannes Bjarni Hannesson
Guðni Þór Ragnarsson
Kristján Sigurólason
Sölvi Sverrisson

Gul spjöld:
Alvaro Montejo ('49)
Sveinn Elías Jónsson ('50)
Aron Birkir Stefánsson ('84)
Bjarki Þór Viðarsson ('87)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þessu er lokið hér á Þórsvellinum! 4-1 sigur Þór staðreynd. Þeir fara á topp deildarinnar í bili með 26 stig en hin liðin í kring eiga eftir eða eru að spila sína leiki.
93. mín
Ein hornspyrna í viðbót sem Þór fær, þær eru orðnar 13 í þessum leik á meðan Haukar hafa fengið 3
92. mín
Þórsarar að fá eina hornspyrnu í viðbót eftir gott spil en það verður ekkert úr henni
87. mín Gult spjald: Bjarki Þór Viðarsson (Þór )
84. mín
Inn:Aron Kristófer Lárusson (Þór ) Út:Ingi Freyr Hilmarsson (Þór )
84. mín Gult spjald: Aron Birkir Stefánsson (Þór )
Fyrir að tefja. Skrítið að gera það í þessari stöðu
83. mín
Inn:Þórður Jón Jóhannesson (Haukar) Út:Aran Nganpanya (Haukar)
83. mín
Inn:Óskar Sigþórsson (Haukar) Út:Jökull Blængsson (Haukar)
Óskar kemur inn í mark Hauka manna, ég veit ekki til þess að Jökull hafi verið meiddur
80. mín
NAU! Þórsarar verja á línu!

Haukur Ásberg sem hefur verið eina ferskastur Hauka manna keyrir upp kantinn og kemur boltanum fyrir þar sem Elton nær skoti á markið en Loftur fyrir boltann sem var á leið inn
79. mín
Inn:Frans Sigurðsson (Haukar) Út:Þórhallur Kári Knútsson (Haukar)
78. mín
Inn:Jakob Snær Árnason (Þór ) Út:Jónas Björgvin Sigurbergsson (Þór )
Jónas sannarlega búinn að skila góðu dagsverki
77. mín MARK!
Óskar Elías Zoega Óskarsson (Þór )
Stoðsending: Jónas Björgvin Sigurbergsson
Þessi 11. hornspyrna skilar öðru skallamarki. Lagleg spyrna frá Jónasi og Óskar stekkur manna hæst
77. mín
11. hornspyrna Þórsara
75. mín
Þórsarar láta boltann ganga sín á milli, örugglega komnir í 20 snertingar án þess að Haukar pressi þá af einhverju ráði.
73. mín
Jökull með afleidda spyrnu, kemur út úr markinu á móti Guðna sem var við það að sleppa í gegn en hittir boltann hrikalega og hann fer aftur fyrir hann og í innkast upp við hornfána Hauka
69. mín
Þessar mínútur þarna áðan hafa verið rothögg fyrir Hauka menn, þeir ná litlu spili sín á milli og Þór ítrekað að koma sér í góðar stöður
66. mín
Þór með hornspyrnu sem Jökull grípur auðveldlega
64. mín
Inn:Guðni Sigþórsson (Þór ) Út:Alvaro Montejo (Þór )
63. mín
Svakalegar síðustu mínútur!
59. mín MARK!
Bjarki Þór Viðarsson (Þór )
Fyrirgjöf sem fer beint á kollinn á Bjarka og hann stangar hann inn! Staðan allt í einu orðinn 3-1 hér á Þórsvellinum
57. mín MARK!
Ármann Pétur Ævarsson (Þór )
Stoðsending: Alvaro Montejo
Ég hef ekki undan við að skrifa hér!! Hornspyrna sem Þór fær og boltinn inn í teig, Alvaro skallar hann að marki og Ármann tekur einhvers konar bakfallsspyrnu á þetta. Laglegt var það!
55. mín
Þórsarar búnir að vera líklegri síðustu mínútur eftir vítið
54. mín
Inn:Guðni Sigþórsson (Þór ) Út:Alvaro Montejo (Þór )
53. mín Mark úr víti!
Alvaro Montejo (Þór )
Og nú skorar Þór úr vítinu. Öruggt og fast hjá Alvaro
53. mín
VÍTI!!

Þór fær annað víti sitt í dag eftir að Ignacio er tosaður niður inn í teig
50. mín Gult spjald: Sveinn Elías Jónsson (Þór )
Pirringsbrot, hleypur af fullum þunga á manninn. Var aldrei að pæla í boltanum
49. mín Gult spjald: Alvaro Montejo (Þór )
Fyrir leikaraskap inn í teig
48. mín
Þórsarar brjálaðir! Krafs inn í teig Hauka manna. Þórsarar koma boltanum í markið en Sigurður flautar á meðan boltinn rennur inn í markið. Hann var hins vegar að flauta á leikaraskap Alvaro sem var að reyna fiska víti
46. mín
Haukar með fyrstu sóknina, Haukur Ásberg kemur sér upp kantinn og kemur boltanum fyrir en Elton nær ekki til boltans inn í teig. Hefði átt að gera betur þarna, búinn að koma sér í góða stöðu
45. mín
Leikurinn byrjaður og nú eru það Þórsarar sem sparka fyrst í boltann

Ég trúi ekki öðru en við fáum fleiri mörk í seinni hálfleik miða við hvernig fyrri hálfleikur spilaðist
45. mín
Hálfleikur
Kominn hálfleikur.

Hraður og skemmtilegur leikur sem liðin eru að bjóða upp á!
44. mín Gult spjald: Alexander Helgason (Haukar)
Það hlaut eiginlega að koma að þessu. Hann var kominn með slatta á brotum. Hálf klaufalegt samt hjá honum, brýtur af sér inn á vallarhelming þórsara þar sem lítið var í gangi
42. mín
Þórsara duglegir að nota báða kantana hjá sér og koma boltanum fyrir markið en annað hvort koma Haukar boltanum út úr teignum eða Þórsarar ná ekki að gera sér mat úr sénsunum
37. mín Misnotað víti!
Ármann Pétur Ævarsson (Þór )
Arfaslök spyrna!

Setur boltann reyndar alveg út við stöng vinstra meginn en spyrnan er laflaus og Jökull skutlar sér auðveldlega á boltann
37. mín
Þór fær víti!!

Þórsarar með aukaspyrnu á nákvæmlega sama stað og í síðustu færslu, alveg sama uppskrift og áðan..boltinn yfir á fjærstöngina sem Óskar skallar til baka inn í teig og Ignacio tekur skotið sem fer í hendina á Haukamanni og réttilega dæmt víti
35. mín
Alexander duglegur að brjóta á Jónasi og nú fær Þór aukaspyrnu úti hægra meginn sem fer yfir allan pakkann á fjærstöngin þar er Óskar mættur til að skalla hann inn í teiginn. Ármann nær skotinu en beint í Haukamann
31. mín
Harka í leiknum. Haukar fá aukaspyrnu á svipuðum stað og áðan. Alexander tekur ekki aftur skot en reynir sendingu inn í teig sem Óskar skallar í burtu
30. mín
Alvaro tekur spyrnuna sem er fín en fer yfir markið
29. mín
Jónas kominn á ferðina en brotið á honum alveg upp við teig. Mjög ákjósanlega staða fyrir skot!
27. mín
Óskar Elías með góðan bolta inn í teig, Sveinn Elías tekur við honum og setur boltann út á Jónas sem er í góðri stöðu í teignum en skýtur beint í varnarmann
25. mín
Haukar með aukaspyrnu út á vinstri kantinum. Davíð Ingi með góðan bolta fyrir sem Aron þarf að blaka í horn sem verður ekkert úr en Haukar fá annað horn sem svífur yfir allann pakkann og Þór á innkast
23. mín
Haukar að pressa Þór hátt á vellinum
19. mín
Nú eru Þórsarar að skapa hættu við mark Haukamanna, hornspyrna sem Óskar Elías skallar að marki. Boltinn endar hjá Ármanni sem nær ekki að gera sér mat úr þröngri stöðu út við stöng.

Það er mikið fjör hér á upphafs mínútunum í báðar áttir
16. mín
Haukar keyrðu strax á Þórsara eftir markið og uppskáru aukaspyrnu úti á velli. Alexander skaut úr spyrnunni og Aron þurfti að hafa sig allann við að verja spyrnuna. Haukar fengu horn og aftur skapaðist hætta við mark Þórsara

Haukar miklu líklegri þessar mínúturnar
13. mín MARK!
Arnar Aðalgeirsson (Haukar)
Það er komið mark í þennan leik!!

Arnar gerir vel inn í teig Þórsara, lang grimmastur á boltann og kemur þessum í netið þrátt fyrir að hafa verið með nokkra Þórsara í kringum sig
13. mín
Fyrsta aukaspyrnu leiksins fá Þórsarar út á velli vinstra meginn. Þeir koma boltanum strax í spil og boltinn berst út á Sveinn Elías á hægri vængum, kemur með góðan bolta fyrir en Haukar koma í veg fyrir frekari hættu
11. mín
Arnar með góða fyrirgjöf að marki Þórsara en þeir skalla þetta í burtu og keyra hratt á Hauka, Alvaro nær skoti fyrir utan teig en það er laust og beint á Jökull
9. mín
Haukur Ásberg keyrir upp vinstri kantinn og kemur með fyrirgjöf sem Elton skallar að marki en auðvelt fyrir Aron og grípur boltann. Fyrsta sókn Haukamanna í leiknum
5. mín
Haukar komast upp völlinn en ná ekki að spila sig í gegnum vörn Þórsara. Þór snýr vörn í sókn sem endar með fyrirgjöf og skalla en skallinn yfir markið
3. mín
Aftur komast Þórsarar upp völlinn og setja boltann fyrir markið en hann fer í gegnum allan pakkann og útaf hinum meginn
3. mín
Fyrsta færi leiksins komið og það var Þórsara. Fínasta spil fyrir utan teig, boltinn berst til Sveinn Elíasar sem er inn í teig fyrir miðju marki en settur boltann yfir í góðu færi
1. mín
Þetta byrjar rólega, bæði lið að þreifa fyrir sér
1. mín
Þetta er farið af stað!
Haukar byrja með boltann
Fyrir leik
Sveinn Elías heiðraður í byrjun, eins og áður sagði kominn með 200 leiki fyrir Þór..alveg magnað!
Fyrir leik
Aðstæður eru góðar fyrir fótbolta. 11 stiga hiti og sólin skín. Það er kannski að golan gæti orðið köld fyrir áhorfendur.

Bæði lið farinn inn í klefa, styttist í að þetta byrji.
Fyrir leik
Þórsarar gera engar breytingar á liði sínu frá sigurleiknum gegn Leiknir R. í síðustu umferð.

Ignacio Gil Echevarria er á í sínum stað byrjunarliðinu en hann samdi í gær við Þór út tímabilið 2019. Rosalega góðar fréttir fyrir Þórsara, hann hefur verið hrikalega öflugur fyrir þá í sumar.

Sveinn Elías Jónsson spilar leik 200 fyrir Þórsara í dag, hann kom í félagsins 2009.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár.

Gestirnir gera 4 breytingar á liði sínu frá 3-0 tapinu gegn HK í síðustu umferð. Ísak Atli, Elton Renato, Aran Nganpanya og Davíð Sigurðsson koma allir inn í liðið. Haukur Björnsson fer á bekkinn og Arnar Steinn, Gunnar og Daníel Snorri eru utan hóps
Fyrir leik
Liðin áttust við í 1. umferð deildarinnar 5. maí og þá endaði leikurinn með 2-2 jafntefli á Ásvöllum.

Bæði lið hafa skorað 20 mörk í deildinni í 11 leikjum og því góðar líkur á að mörk verði skoruð á Þórsvellinum í dag. Þrátt fyrir að Hauka menn hafa verið duglegir að finna markið þá hlýtur það að vera áhyggjuefni að hafa fengið á sig 24 mörk í þessum 11 leikjum.
Fyrir leik
Haukar hafa átt erfitt með að tenga sigurleiki saman. Síðast unnu þeir tvo leiki í röð í byrjun júní en þá unni þeir Njarðvík á útivelli 31. maí og Selfoss heima 8 júní.
Fyrir leik
Haukum hefur ekki gengið eins vel og Þór. Þeir hafa tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum. Þeir eru í 8. sæti deildarinnar með 13 stig en geta með sigri í dag slitið sig aðeins frá botnbaráttunni. Botnbaráttan er ekki síður spennandi en toppbaráttan en þrjú stig skilja að frá fallsæti og upp í sjöunda sæti deildarinnar. Tapi þeir í dag er mikill hætta á að þeir sogist ofan í botnbaráttuna.
Fyrir leik
Þór er í 4 sæti deildarinnar með sama stigafjölda og ÍA og Víkingur Ó sem eru í öðru og þriðja sæti á betri markatölu. HK er á toppi deildarinnar með 25 stig, tveimur stigum meira en Þór, ÍA og Víkingur Ó. Þessi toppbarátta er heldur betur þétt og mikilvæg þrjú stig sem Þór getur nælt sér í hér í dag.
Fyrir leik
Þór hefur verið að mikilli siglingu í Inkasso og hefur ekki tapað leik síðan 20. júní í deildinni. Sá leikur var gegn Víking Ó. á heimavelli og tapaðist 0-2. Síðan þá hafa þeir spilað þrjá leiki í deildinni, unnið þá alla og skorað í þeim 9 mörk.
Fyrir leik
Heil og sæl! Velkominn í beina textalýsingu frá leik Þór og Hauka í 12. umferð Inkasso deildarinnar. Leikurinn verður spilaður á Þórsvellinum.
Byrjunarlið:
1. Jökull Blængsson (m) ('83)
4. Ísak Atli Kristjánsson
7. Haukur Ásberg Hilmarsson
7. Davíð Sigurðsson
8. Þórhallur Kári Knútsson ('79)
9. Elton Renato Livramento Barros
11. Arnar Aðalgeirsson
13. Aran Nganpanya ('83)
16. Birgir Magnús Birgisson
21. Alexander Helgason
22. Davíð Ingvarsson

Varamenn:
12. Óskar Sigþórsson (m) ('83)
2. Kristinn Pétursson
6. Þórður Jón Jóhannesson ('83)
8. Ísak Jónsson
16. Oliver Helgi Gíslason
17. Daníel Snorri Guðlaugsson
24. Frans Sigurðsson ('79)
28. Haukur Björnsson

Liðsstjórn:
Kristján Ómar Björnsson (Þ)
Hilmar Rafn Emilsson
Hilmar Trausti Arnarsson
Þórður Magnússon
Ríkarður Halldórsson

Gul spjöld:
Alexander Helgason ('44)

Rauð spjöld: