Grindavík
1
2
Stjarnan
0-1
Harpa Þorsteinsdóttir
'47
0-2
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
'54
Rio Hardy
'68
1-2
10.08.2018 - 19:15
Grindavíkurvöllur
Pepsi-deild kvenna
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Maður leiksins: Harpa Þorsteinsdóttir
Grindavíkurvöllur
Pepsi-deild kvenna
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Maður leiksins: Harpa Þorsteinsdóttir
Byrjunarlið:
1. Viviane Holzel Domingues (m)
3. Linda Eshun
6. Steffi Hardy
7. Sophie O'Rourke
9. Margrét Hulda Þorsteinsdóttir
9. Rio Hardy
11. Dröfn Einarsdóttir
('86)
16. Ísabel Jasmín Almarsdóttir (f)
17. María Sól Jakobsdóttir
22. Helga Guðrún Kristinsdóttir
26. Madeline Keane
Varamenn:
8. Guðný Eva Birgisdóttir
('86)
8. Katrín Lilja Ármannsdóttir
14. Lísbet Stella Óskarsdóttir
15. Elísabeth Ýr Ægisdóttir
18. Ása Björg Einarsdóttir
20. Áslaug Gyða Birgisdóttir
21. Telma Lind Bjarkadóttir
Liðsstjórn:
Nihad Hasecic (Þ)
Ray Anthony Jónsson (Þ)
Þorsteinn Magnússon
Aleksandar Cvetic
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þá er þetta komið, þrjú stig í Garðabæinn í erfiðum leik. Viðtöl og skýrsla koma seinna í kvöld
88. mín
Átta leikmenn Grindavíkur eru inná vallarhelming Stjörnunar, Annar María sendir sendingu yfir á Láru Kristín, Viviane kemur langt úr teignum og sópar.
88. mín
Þrír leikmenn Grindavíkur fara upp í sama boltann í markteig Stjörnanar eftir mjög flotta aukaspyrnu, en þvælast fyrir hver annari og boltinn framhjá.
80. mín
Katrín Ásbjörns dúndrar á Viviane, sem nær ekki að halda boltanum en Guðmunda sem beið eftir frákastinu var rangstæð.
78. mín
Dröfn vinnur hörku baráttu á kantinum og kemur boltanum út á María sem Berglind ver
75. mín
Inn:Guðmunda Brynja Óladóttir (Stjarnan)
Út:Telma Hjaltalín Þrastardóttir (Stjarnan)
74. mín
Madeline rétt missir af boltanum þegar hún fer í tæklingu á miðjunni og hann berst inn á Hörpu. Hún reynir að sneiða hann framhjá Viviane með lúmsku skoti en boltinn er gripinn
68. mín
MARK!
Rio Hardy (Grindavík)
Bíddu bíddu þetta er orðin leikur! Rio kemst aftur ein í gegn eftir geggjaða sendingu og í þetta slúttar hún framhjá Berglindi. Þær fagna varla, hlaupa og ná í boltann og vilja halda áfram leik.
64. mín
Steffi fær sendingu frá Viviane með tvo leikmenn oní sér, gerir mjög vel að halda boltanum og koma honum burt
61. mín
Jeddúdamía Rio þarna áttu að skora! Rio Hardy nær að vinna Önnu Maríu í kapphlaupi um boltann, er komin ein á móti Berglind. Rio tekur snertingu til að fara í kringum hana og skítur en Berglind nær að skutla sér fyrir. Lang besta færi Grindavíkur í leiknum
60. mín
Dómarinn segir Margrét Huldu að næsta brot sé spjald eftir nokkuð kalda tæklingu
57. mín
Boltinn skoppar um í teig gestanna þangað til María Sól tekur skotið, slæsar boltann illa og hann er langt framhjá.
54. mín
MARK!
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Harpa Þorsteinsdóttir
Stoðsending: Harpa Þorsteinsdóttir
Flott slútt eftir geggjaða sendingu í gegnum vörn Grindavíkur frá Hörpu, Stjarnan búin að taka öll völd á vellinum
50. mín
Heimastúlkur ná virkilega flottri sókn sem endar á að Dröfn vippar boltanum rétt yfir. Skrýtin ákvörðun að dúndra ekki bara á markið þarna.
47. mín
MARK!
Harpa Þorsteinsdóttir (Stjarnan)
Það var mark af dýrari gerðinn, Harpa Þorsteins fær boltann utarlega í teig Grindavíkur, tekur eina snertingu og sneiðir hann í fjærhornið, fullkomnlega óverjandi!
45. mín
Fjórði flokkur Grindavíkur, sem vann REY-Cup á dögunum er hilltur af áhorfendum.
45. mín
Hálfleikur
Fátt um fína drætti, verður mjög áhugavert að sjá hvað gerist í seinni hálfleik, þegar Stjarnan sem hefur verið betri sækir með vindinn í bakið
42. mín
Flott sókn, betri varsla! Telma og Þórdís taka frábært spil í kringum varnarmenn Grindívkurr, gefa á Katrín sem er við vítapunktinn, sem skítur og Viviance þarf hafa sig alla við að verja.
29. mín
Þórdís Hrönn sleppur í gegn og reynir að vippa boltanum yfir Viviane. Boltinn svífur upp, svo tekur vindurinn hann og hann fer lengra upp og að lokum er hann á leið frá marki. Það er í raun þannig að allir boltar sem fara meira en 3 metra upp í loft enda á að fjúka í átt að vallarhelming Stjörnunar
27. mín
Linda Eshun gerir mjög vel í að fyrst stoppa Telmu Hjaltalín frá að sleppa í gegn og svo hreinsa boltann í innkast frekar enn að leifa Stjörnunni að fá horn.
25. mín
Harpa Þorsteins sleppur í gegn en missir boltann aðeins fram fyrir sig en nær þó að gefa hann til baka á Þórdísi sem kom á hlaupum, hún var í dauðafæri en hreinlega hitti ekki boltann.
23. mín
Margrét Hulda og Þórdís Hrönn eru að heygja skemmtilega baráttu á kantinum, hingað til hefur Margrét haft betur
19. mín
Telma Hjaltalín reynir að pota fyrirgjöf Þórdísar Hrannar inn en sendingin er ögn of há.
15. mín
Ísabel er með Katrín Ásbjörn í sér inn í teig Stjörnunar, nær að lokum skoti sem fer framhjá.
13. mín
Hamagangur í teig Stjörnunar eftir að Keane tekur langt innkast inn í hann, en að lokun handsamar Berglind boltann
9. mín
Þórdís Hrönn dansar í kringum Steffi, sem má vera þakklát samherjanum Lindu fyrir að koma í veg fyrir að Þórdís náði skoti
6. mín
Þórdís Hrönn fær boltann í teig Grindavíkur, þarf að taka tvær snertingar til þess að finna skotið en varnarmenn Grindavíkur stökkva á hana og hreinsa.
Fyrir leik
Dómarar og leikmenn slást í hóp með fánakrökkunum, sem voru búnir að standa úti í dágóða stund. Alveg að bresta á.
Fyrir leik
Það er örlítill vindur hér í Grindavík, bara smá. Ég er hins vegar ekki viss um hvort það sé regnúði eða sjórinn sé að fjúka inn á völl.
Fyrir leik
Sophie O'Rourke kemur inn í byrjunarlið Grindavíkur fyrir Telmu Lind. Sú fyrrnefnda kom til liðsins frá Reading nýlega.
Fyrir leik
Berglind Hrund kemur aftur inn í byrjunarlið Stjörnunar í markinu, Guðmunda Brynja tekur sæti á bekknum og inn dettur Þórdís Hrönn.
Fyrir leik
Grindavík er í næst neðsta sæti en ekki nema þrem stigum á eftir KR. Þær eru hins vegar með skelfilega markatölu. Þeirra stærsta vandamál í allt sumar hefur verið að koma boltanum yfir línuna, ekki búnar að skora nema átta mörk í tólf leikjum. Þær geta hleypt botn baráttunni í bál og brand með því að sigra í kvöld, en næsti leikur þeirra er gegn Selfoss sem hengur rétt fyrir ofan fallsæti eftir sigur á FH í gær.
Fyrir leik
Stjarnan hefur ekki fundið sig í deildinni í vetur og sitja í fjórða sæti, heilum ellefu stigum frá toppliðinu. Þær eiga hins vegar úrslitaleik í bikarnum eftir viku og verður áhugavert að sjá hvort það hafi áhrif á uppstillingu og leik liðsins.
Byrjunarlið:
Harpa Þorsteinsdóttir
Telma Hjaltalín Þrastardóttir
('75)
1. Berglind Hrund Jónasdóttir
6. Lára Kristín Pedersen
7. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (f)
9. Sigrún Ella Einarsdóttir
10. Anna María Baldursdóttir (f)
16. María Eva Eyjólfsdóttir
17. Megan Lea Dunnigan
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
('92)
30. Katrín Ásbjörnsdóttir
('85)
Varamenn:
25. Birna Kristjánsdóttir (m)
4. Brittany Lea Basinger
('92)
4. Katrín Ósk Sveinbjörnsdóttir
11. Guðmunda Brynja Óladóttir
('75)
19. Birna Jóhannsdóttir
24. Bryndís Björnsdóttir
('85)
Liðsstjórn:
Ólafur Þór Guðbjörnsson (Þ)
Ana Victoria Cate
Andrés Ellert Ólafsson
Einar Páll Tamimi
Viktoría Valdís Guðrúnardóttir
Tinna Jökulsdóttir
Gul spjöld:
Rauð spjöld: