Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Sindri
0
5
KA
0-1 Daníel Hafsteinsson '15
0-2 Brynjar Ingi Bjarnason '37
0-3 Hallgrímur Mar Steingrímsson '74 , víti
0-4 Hallgrímur Mar Steingrímsson '79
0-5 Hallgrímur Mar Steingrímsson '84
01.05.2019  -  16:00
Sindravellir
Mjólkurbikar karla
Dómari: Guðgeir Einarsson
Maður leiksins: Hallgrímur Mar Steingrímsson
Byrjunarlið:
1. Róbert Marvin Gunnarsson (m)
2. Robertas Freidgeimas ('62)
3. Kristofer Hernandez ('46)
5. Oddleifur Eiríksson
9. Tómas Leó Ásgeirsson
10. Kristinn Justiniano Snjólfsson
15. Ingvi Þór Sigurðsson
18. Kristófer Daði Kristjánsson
21. Þorlákur Helgi Pálmason (f)
21. Bragi Ómarsson
25. Mykolas Krasnovskis

Varamenn:
1. Benóný Þórhallsson (m)
7. Ásgrímur Arason ('75)
17. Guðjón Bjarni Stefánsson ('62)
18. Björgvin Freyr Larsson
20. Einar Karl Árnason
20. Mate Paponja ('46) ('75)
22. Sigursteinn Már Hafsteinsson

Liðsstjórn:
Ingvi Ingólfsson (Þ)
Jón Guðni Sigurðsson
Fannar Blær Austar Egilsson
Ólafur Jónsson
Alexandre M. Fernandez Massot
Steindór Sigurjónsson

Gul spjöld:
Ingvi Þór Sigurðsson ('26)
Ingvi Ingólfsson ('37)
Bragi Ómarsson ('58)
Ingvi Þór Sigurðsson ('83)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leik lokið hér á Höfn. Sindramenn geta gengið sáttir af velli með fyrstu 75 mínútur leiksins og liðið lagði í rauninni ekki árar í bát þótt KA menn hafi sýnt yfirburði sína á síðustu 15 mínútum leiksins. KA menn eru komnir áfram í 16 liða úrslit Mjólkurbikarsins!
90. mín
Tómas Leó tekur spyrnuna og setur hanna rétt framhjá.
90. mín
Enn fá Sindramenn aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig KA manna.
90. mín
Hallgrímur með skot en það var beint á Róbert.
90. mín
Frábær sending frá Daníel á Sæþór sem var kominn einn á móti Róbert en Róbert greip máttlaust skot hans.
88. mín
Mykolas bombar boltanum hátt yfir úr aukaspyrnunni
87. mín
Sindramenn fá aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi KA manna.
84. mín MARK!
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Jæja, Hallgrímur fullkomnar þrennuna og skorar. Þreyta komin í Sindraliðið.
83. mín Gult spjald: Ingvi Þór Sigurðsson (Sindri)
Ingvi Þór of seinn í boltann og sparkar niður KA mann. Fær að launum sitt annað gula spjald og þar með rautt.
82. mín
Brotið á Kristni rétt fyrir utan vítateig KA manna eftir að hann lék á varnarmenn þeirra. Aukaspyrna sem Tómas tekur og setur boltann rétt yfir.
79. mín MARK!
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Mistök í vörn Sindramanna og Hallgrímur fær boltann fyrir auðu marki og leggur hann í auðveldlega í markið.
76. mín
Inn:Ottó Björn Óðinsson (KA) Út:Almarr Ormarsson (KA)
75. mín
Inn:Ásgrímur Arason (Sindri) Út:Mate Paponja (Sindri)
74. mín Mark úr víti!
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Hallgrímur Mar setur boltann alveg upp við stöngina hægra megin. Róbert valdi rétt horn en náði ekki til boltans.
73. mín
KA menn fá víti - Bragi brýtur á Sæþóri innan teigs.
70. mín
Mate liggur á vellinum og virðist sárþjáður. En hann er staðinn upp og heldur áfram.
63. mín
Inn:Bjarni Aðalsteinsson (KA) Út:Þorri Mar Þórisson (KA)
62. mín
Inn:Ólafur Aron Pétursson (KA) Út:Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
62. mín
Inn:Guðjón Bjarni Stefánsson (Sindri) Út:Robertas Freidgeimas (Sindri)
61. mín
Kristinn tekur spyrnuna með fyrirgjöf og KA menn bjarga í horn
60. mín
Guðjón Bjarni rennur á vellinum og Sæþór nýtir sér það en skotið ekki nógu gott og fór rétt framhjá
60. mín
KA menn brjóta á Robertas sem liggur eftir. Aukaspyrna á hættulegum stað fyrir utan vítateig KA manna
59. mín
Mate skallar í burtu og bægir hættunni frá.
58. mín
Guðjón Bjarni kastar sér fyrir skot frá Aroni og KA menn fá hornspyrnu
58. mín Gult spjald: Bragi Ómarsson (Sindri)
Bragi stöðvaði sókn KA manna með broti og fékk gult spjald.
57. mín
Kristinn tók spyrnuna en KA menn skölluðu frá og KA menn ruku í skyndisókn sem Róbert stöðvaði.
57. mín
Brotið á Robertas út við hlíðarlínu á miðjum vallarhelmingi KA manna. Sindramenn fá aukaspyrnu
55. mín
Þorri með skot á markið af markteig en beint í fangið á Róbert.
54. mín
Um 200 manns eru á vellinum svo það eru yfir 10% af íbúum Hafnar eins og stefnt var að!
53. mín
Sindramenn með skot en Jajalo ver.
50. mín
Andri Fannar brýtur á Kristófer Daða á miðlínunni. Kristófer tekur aukaspyrnuna sjálfur og Kristinn setur boltann síðan fyrir markið, eftir töluvert kraðak í teignum grípur Jajalo boltann.
49. mín
Slakt skot frá Hallgrími sem Róbert ver auðveldlega.
48. mín
Sindramenn fá hornspyrnu sem ekkert veðrur úr
46. mín
Sindramenn byrja af krafti - frábær sending frá Mykolas inn fyrir á Kristinn sem kom á ferðinni en náði ekki skotinu í opið markið þar sem Jajalo var kominn langt út.
46. mín
Jæja þá fer seinni hálfleikurinn af stað! Sindramenn byrja með boltann og sækja með vindinum i átt að sundlauginni! Búið er að flauta leikinn á!
46. mín
Inn:Mate Paponja (Sindri) Út:Kristofer Hernandez (Sindri)
45. mín
Hálfleikur
Skemmtilegur fyrri hálfleikur hér á Sindravöllum þar sem bæði lið náðu að sýna fína takta. KA menn heldur sterkari aðilinn eins og sést á stöðunni og sérstaklega undir lok hálfleiksins.
45. mín
KA menn eru að sækja vel í sig veðrið hér á síðustu mínútum fyrri hálfleiks og Róbert varði vel skot frá Þorra í teignum núna rétt í þessu.
44. mín
Róbertas skallar frá eftir hornið svo ekkert verður úr því
44. mín
Almar á gott skot sem Róbert ver í horn.
43. mín
Skalli framhjá frá Brynjari Inga eftir hornspyrnuna
42. mín
Daníel fékk að valsa þarna fram að vítateig Sindramanna og tók skot sem Róbert varði í horn.
37. mín Gult spjald: Ingvi Ingólfsson (Sindri)
Ingvi er ósáttur við dómgæsluna og fær gult spjald. Á myndum hjá ljósmyndara á leiknum sést að í markinu var líklega um bakhrindingu að ræða svo hann hafði mögulega eitthvað til síns máls en áfram með leikinn!
37. mín MARK!
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
Ingvi þjálfari Sindra brjálaður - tveir KA menn virtust vera rangstæðir en ekkert dæmt og KA menn fá hornspyrnu sem þeir skora úr. Brynjar Ingi var þar að verki.
36. mín
Þorri vel rangstæður núna og Róbert spyrnir boltanum fram en KA menn vinna hann strax.
35. mín
KA menn að byggja upp sókn en Hallgrímur var rangstæður og sendingin fór auk þess beint út af.
32. mín
Ekkert varð úr fyrra horninu en KA menn fengu aðra hornspyrnu þar sem Bragi hrifsaði boltann af þeim úti í horni en Sindramenn náðu ekki að byggja upp sókn. KA liggja aðeins á þeim núna.
31. mín
Uss uss, þarna kom sending frá Hallgrími inn á teiginn og þar var hver Sindramaðurinn á fætur öðrum sem missti af boltanum en Kristinn setti hann svo aftur fyrir í horn
29. mín
Aukaspyrna hjá KA út við hliðarlínu hjá vítateig Sindramanna. Daníel tók spyrnuna og það var sparkað frá. Þorri Mar liggur eftir í teignum og fær aðhlynningu.
27. mín
Sindramenn með aukaspyrnu út við hliðarlínu fyrir utan teig KA-manna. Kristinn tók spyrnuna og setti hann fyrir en þetta var skallað frá.
26. mín Gult spjald: Ingvi Þór Sigurðsson (Sindri)
Ingvi Þór hefur líklega sagt eitthvað sem verðskuldaði gult spjald.
25. mín
Þarna var besta færi Sindramanna fram að þessu. Kristinn skallaði boltann inn fyrir á Mykolas sem tók góða fintu og var einn á móti markmanni á markteignum sem rétt náði að setja tærnar í boltann og halda KA mönnum í forystu. Strax í kjölfarið kom önnur sókn frá Sindramönnum sem varð ekkert úr.
20. mín
Hallgrímur með fínt skot í stöngina og út.
20. mín
Bragi með máttlítið skot fyrir Sindramenn en þeir eru vel inni í leiknum þótt sóknir KA manna séu hættulegar.
15. mín MARK!
Daníel Hafsteinsson (KA)
Daníel fékk fína sendingu í gegnum vörn Sindra og kláraði vel. Sindramenn vilja meina að það hafi verið rangstöðulykt af þessu.
14. mín
Frábær sókn hja Sindra en Jajalo greip inn í og tók fyrirgjöfina. KA menn svöruðu með hraðri sókn og slöku skoti af löngu færi sem Róbert greip.
12. mín
Sindramenn eiga núna aukaspyrnu rétt fyrir framan miðju á vallarhelmingi KA manna, en ekkert verður úr henni. Nokkuð jafnræði er með liðunum á þessum fyrstu mínútum en KA menn líklega aðeins meira með boltann.
10. mín
Hallgrímur tók aukaspyrnu á vallarhelgimingi Sindra sem Róbert greip.
6. mín
KA menn spila með nokkuð þéttri austanátt í átt að sundlauginni. Sindramenn eiga aukaspyrnu rétt fyrir aftan miðju á eigin vallarhelmingi.
2. mín
Sindramenn byrja á tveimur fínum sóknum en það verður ekkert úr þeim
1. mín
Arna Ósk Harðardóttir, Sindraröddin sjálf er búin að kynna liðin og þetta er byrjað! KA menn byrjuðu með boltann.
Fyrir leik
Liðin eru að ganga inn á völlinn svo þessi veisla fer að hefjast!
Fyrir leik
Völlurinn er grænn og glæsilegur, um 100 manns mættir á völlinn eða rúmlega 5% af íbúafjölda Hornafjarðar og fólk streymir að!
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru eftirfarandi:

KA-menn spila 1-3-4-3; Kristijan Jajalo er í markinu; varnarlínan: Haukur - Binni - Torfi; miðja: Hrannar - Almar (f) - Daníel - Andri Fannar; framlína: >Þorri - Sæþór - Hallgrímur

Sindramenn spila 1-5-4-1; Í markinu er Róbert Marwin; varnarlína: Robertas - Kristófer Daði - Þorlákur Helgi (f) - Oddleifur - Bragi; Miðja: Kristofer H - Ingvi Þór - Mykolas - Kristinn; Framherji: Tómas Leó


Fyrir leik
Það er búið að vera ljómandi gott veður í dag en núna er lognið komið á smá hreyfingu og austanáttinn að læða sér yfir Sindravelli.
Fyrir leik
Verið velkomin í beina textalýsingu á leik Sindra og KA í Mjólkurbikarnum. Sindramenn leika í 3. deild og KA menn í Pepsi Max en eitt eiga liðin sameiginlegt og það er Óli Stefán Flóventsson þjálfari KA manna. Hann sleit fyrstu þjálfaraskónum sínum á Hornafirði svo hann þekkir bæði lið nokkuð vel. Ingvi Ingólfsson er bráðefnilegur þjálfari og stendur hann í brúnni hjá Sindramönnum í dag. Vonandi fáum við spennandi leik í dag, en liðin eru mætt út í upphitun og um 30 manns komnir í stúkuna þegar hálftími er í leik svo það stefnir í fína stemningu á vellinum!
Byrjunarlið:
12. Kristijan Jajalo (m)
2. Haukur Heiðar Hauksson
7. Almarr Ormarsson (f) ('76)
7. Daníel Hafsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
14. Andri Fannar Stefánsson
16. Brynjar Ingi Bjarnason ('62)
22. Hrannar Björn Steingrímsson
25. Torfi Tímoteus Gunnarsson
27. Þorri Mar Þórisson ('63)
28. Sæþór Olgeirsson

Varamenn:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
2. Birgir Baldvinsson
4. Ólafur Aron Pétursson ('62)
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
13. Ottó Björn Óðinsson ('76)
23. Steinþór Freyr Þorsteinsson
77. Bjarni Aðalsteinsson ('63)

Liðsstjórn:
Óli Stefán Flóventsson (Þ)
Halldór Hermann Jónsson
Petar Ivancic
Branislav Radakovic
Sveinn Þór Steingrímsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: