Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
ÍBV
1
1
Víkingur R.
Felix Örn Friðriksson '70
0-1 Rick Ten Voorde '71 , víti
Jonathan Glenn '92 1-1
19.05.2019  -  16:00
Hásteinsvöllur
Pepsi Max-deild karla
Aðstæður: Flott veður. Örlítil gola og fínn völlur.
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 312
Maður leiksins: Ágúst Hlynsson
Byrjunarlið:
21. Halldór Páll Geirsson (m)
Jonathan Glenn
3. Felix Örn Friðriksson
7. Evariste Ngolok ('61)
8. Priestley Griffiths
8. Telmo Castanheira
11. Víðir Þorvarðarson ('85)
24. Óskar Elías Zoega Óskarsson
73. Gilson Correia
77. Jonathan Franks ('85)
92. Diogo Coelho

Varamenn:
93. Rafael Veloso (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon ('85)
4. Nökkvi Már Nökkvason
11. Sindri Snær Magnússon
12. Eyþór Orri Ómarsson ('85)
17. Róbert Aron Eysteinsson
19. Breki Ómarsson ('61)

Liðsstjórn:
Pedro Hipólito (Þ)
Ian David Jeffs
Matt Garner
Jóhann Sveinn Sveinsson
Björgvin Eyjólfsson

Gul spjöld:
Jonathan Glenn ('19)
Gilson Correia ('60)
Priestley Griffiths ('68)

Rauð spjöld:
Felix Örn Friðriksson ('70)
Leik lokið!
Rosalegar lokamínútur hér í Eyjum! 1-1 niðurstaðan í skrýtnum leik.
93. mín Gult spjald: Júlíus Magnússon (Víkingur R.)
92. mín MARK!
Jonathan Glenn (ÍBV)
Stoðsending: Breki Ómarsson
Frábært mark! Breki með fasta sendingu og skallinn góður hjá Glenn! 1-1!!!
90. mín
Glenn með fín tilþrif og sendir á Eyþór sem á laust skot beint á Dodda.

88. mín
Mikið er rætt um rauða spjaldið á Felix. Ef leikmaður brýtur af sér án þess að gera tilraun til að ná til boltans og rænir upplögðu marktækifæri er það rautt spjald. Mæli með grein sem Maggi á .net var að deila á Twitter. Hún kemur hér inn næst.
85. mín
Inn:Eyþór Orri Ómarsson (ÍBV) Út:Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
85. mín
Inn:Sigurður Arnar Magnússon (ÍBV) Út:Jonathan Franks (ÍBV)
85. mín
Spyrnan beint í vegginn.
84. mín
Víðir brýtur á Ágústi. Auka á hættulegum stað.
81. mín
Ágúst Hlyns með flotta tilburði og þrumar svo boltanum rétt framhjá. Hann er á vinstri kanti og kemur inn. Hefur verið virkilega öflugur í þessum leik.
78. mín
Ja, hér. Helgi með sprelliákvörðun. Ágúst Hlyns með frábæran sprett og var að leika á Óskar sem setti líkaman í manninn. Klárt brot og aukaspyrna á hættulegum stað en Helgi dæmdi ekkert.
72. mín
Inn:James Charles Mack (Víkingur R.) Út:Guðmundur Andri Tryggvason (Víkingur R.)
71. mín Mark úr víti!
Rick Ten Voorde (Víkingur R.)
Stoðsending: Guðmundur Andri Tryggvason
Skorar af öryggi. Halldór Páll skutlar sér til hægri en boltinn í hitt hornið! 0-1 fyrir gestina úr Víkinni!
70. mín Rautt spjald: Felix Örn Friðriksson (ÍBV)
Víti!!! Hárréttur dómur. Felix reynir ekki við boltann og rífur Guðmund Andra niður í ákjósanlegu færi. Ja, hérna hér.

68. mín Gult spjald: Priestley Griffiths (ÍBV)
Gersamlega straujar Ágúst Hlyns á sprettinum og fær verðskuldað spjald.
65. mín
Flott hornspyrna hjá Ágústu og Hansen nær skallanum en beint á Halldór Pál.
65. mín
Víkingur fær horn
64. mín
Stúkan lætur í sér heyra! ÍBV virtist vera komið í skyndisókn en Helgi dæmir aukaspyrnu. Franks fór hátt með boltann þegar hann vann hann en fékk dæmt á sig fyrir háskaleik.
61. mín
Inn:Breki Ómarsson (ÍBV) Út:Evariste Ngolok (ÍBV)
Ngolok búinn að vera augljóslega meiddur allan leikinn og hefði þessi skipting mátt koma svona 63 mínútum fyrr.
61. mín
Hætta! Frábær fyrirgjöf frá Ngolok og Franks vinnur skallann á fjær en skallar framhjá.
60. mín Gult spjald: Gilson Correia (ÍBV)
Togar Guðmund Andra niður í skyndisókn. Hárréttur dómur. Eitthvert gulasta spjald sem sést hefur.
57. mín
Inn:Rick Ten Voorde (Víkingur R.) Út:Atli Hrafn Andrason (Víkingur R.)
Atli búinn að vera ágætur í dag en hér á að bæta í sóknina.
55. mín
Helgi dæmir brot.
55. mín
ÍBV fær aukaspyrnu í fínu fyrirgjafafæri.
52. mín
Víkingur vill víti! Guðmundur Andri í baráttu og féll. Heimamenn vilja gult á leikaraskap og gestirnir víti. Felix var svifaseinn og leitt þetta klaufalega út.
51. mín
Logi liggur eftir samstuð við Halldór Smára. Þeir eru báðir að kveinka sér en komnir í gang að nýju.
50. mín
Fofana með skot beint á Halldór! Davíð Örn hafði átt góðan sprett og endaði þetta með að boltinn datt fyrir Fofana sem skaut nokkuð fast en með fyrrgreindum afleiðingum.
46. mín
Smá skýrsla úr fyrri hálfleik. ÍBV var mikið betra í upphafi leiks og hafði skapað bestu hálfsénsana en ekkert afgerandi færi. Víkingur endaði hins vegar hálfleikinn betur og skapaði tvö stórhættuleg færi.
46. mín
Þetta er farið af stað á ný!
45. mín
Hálfleikur
Helgi Mikael flautar til hálfleiks. Eitt og annað búið að gerast en ekkert mark litið dagsins ljós.
45. mín
HÆTTA!!! Davíð Örn með frábæra fyrirgjöf en Hansen hittir ekki boltann þegar hann reynir að skalla. Víkingur að spila virkilega vel síðustu mínútur.
44. mín
Gilson! Hvað er í gangi?! Kemur upp völlinn og heldur að hann hafi knattrækni Harry Maguire en nei! Sendir ömurlega sendingu og Víkingur geysist fram, á gott spil sem skilur Ágúst Hlyns eftir í DAUÐAFÆRI en skotið arfaslakt og beint á Halldór Pál. Þarna hefði Víkingur hæglega getað komist yfir.
43. mín
Franks tekur spyrnuna en Doddi mætir vel og kýlir frá. Reyndar flögguð rangstaða í þokkabót.
42. mín
Sölvi brýtur á Glenn og ÍBV fær auka á hættulegum stað.
40. mín
Vá!!! Hætta á ferð. Flottur sprettur og fyrirgjöf hjá Davíð Erni og Guðmundur Andri í dauðafæri en kingsaði boltann svakalega. Besta tækifæri gestanna hingað til.
33. mín
Víðir með skot beint í Sölva, og virðist það hafa verið á ansi óþægilegan stað... Ngolok fylgdi svo eftir og skaut laust framhjá.
29. mín
Gilson, halló. Ætlaði að skýla boltanum í stað þess að þruma fram en rak svo tána í hann og gaf Víkingi horn.
28. mín
Vá! Doddi í ruglinu. Felix með fyrirgjöf sem virkaði hættulítil en Doddi missir boltann fyrir fætur Víðis sem potaði í hann en Doddi náði að handsama boltann.
27. mín
Fín sókn hjá ÍBV og Diogo með boltann fyrir en Ngolok tók bakfallsspyrnu í ranga átt. Kemur.
23. mín
HÆTTA!!! Franks með góðan sprett vinstra megin og flotta sendingu beint á Ngolok sem skallaði en skallinn nokkuð laus og Doddi varði vel.
22. mín
Felix!!! Kötturinn með frábæran sprett, lék á mann og annan er hann kom sér inn á völlinn en skaut svo máttlaust beint á markið.
20. mín
Víkingur virðist vera í 4-1-4-1
Logi - Sölvi - Halldór - Davíð
Fofana
Atli - Júlíus - Guðmundur - Ágúst
Hansen
19. mín Gult spjald: Jonathan Glenn (ÍBV)
Halldór Páll og Glenn eigast við og slær Glenn Dóra þegar hann er að reyna að ná jafnvægi. Virkaði óvart en má samt ekki.
16. mín
ÍBV spilar 4-5-1.
Diogo - Gilson - Óskar - Felix
Víðir - Priestley - Telmo - Franks
Ngolok
Glenn
15. mín
Góðan daginn. Júlli Magg með afleitt skot fyrir utan teig. Hann sneri sér við ósáttur með sjálfan sig áður en boltinn fór langt fram hjá.
13. mín
Nikolaj Hansen þarf að fara af velli til aðhlynningar. Hef ekki trú á að þetta sé neitt alvarlegt.
12. mín
Vávává!!! Langur bolti fram og Víðir kemst í boltann á undan Dodda, sem leit ansi illa út, en skalli Víðis framhjá opnu markinu.
9. mín
Priestley og Ágúst takast hér á og braut Priestley af sér. Ágúst varð pirraður og virtist sparka í áttina að bretanum en þetta var voða saklaust. Aukaspyrnan tekinn en Sölvi skallaði yfir.
7. mín
ÍBV byrjar talsvert betur og Ngolok átti tvær skottilraunir sem dóu í klafsi.
4. mín Gult spjald: Atli Hrafn Andrason (Víkingur R.)
Gróft brot hér á Diogo.
2. mín
Doddi! Hörku spyrna frá Víði en Doddi varði vel.
1. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Víðir er tilbúinn.
1. mín
Leikur hafinn
Víkingur byrjar!
Fyrir leik
Ég vil minna á myllumerkið #fotboltinet - Endilega hendið inn skemmtilegum tístum og er aldrei að vita nema þau rati inn í lýsinguna.
Fyrir leik
Þá er komið að spá úr blaðamannastúkunni:
Einar Kristinn, Vísi: 4-4!
Þórður, MBL: 1-2.
Sjálfur segi ég 2-1 heimasigur.
Fyrir leik
Guðjón Örn Ingólfsson, styrktarþjálfari Víkings, fer yfir hlutina með sínum mönnum. Guðjón er drengur góður og sjálfur lunkinn í boltanum.
Fyrir leik
Arnar Gunnlaugs sagði í viðtali við Sýn fyrir leikinn að þeir ætli að hætta að verjast barnalega.
Fyrir leik
Það verður að segjast að aðstæður til að spila fótbolta gerast ekkert mikið betri hérna á Hásteinsvelli. Vissulega á völlurinn eftir að verða ennþá betri en það er logn á Eyjakvarða og bæði lið að hita upp í góðum gír undir tónum KISS.
Fyrir leik
Logi Tómasson, sem sló í gegn í 1. umferðinni, byrjar í dag en Dofri Snorrason er ekki í hóp.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin! Víðir Þorvarðar er fyrirliði heimamanna í dag en hann er fjórði fyrirliði liðsins! Siggi og Garner setjast á bekkinn, ásamt Rafael Veloso.
Fyrir leik
Er ekki hægt að verjast þó að menn ætli að spila skemmtilegan sóknarbolta? er spurning sem margir hafa spurt sig þegar kemur að Víkingi. Liðið hefur skorað 8 mörk og aðeins ÍA hefur skorað fleiri. Aftur á móti hefur Víkingur fengið á sig flest mörk í deildinni, 11.
Fyrir leik
Það verður forvitnilegt að sjá sóknarleik ÍBV í dag en staðreyndin er sú að Marc Mcausland, varnarmaður Grindavíkur, hefur skorað jafn mörg mörk fyrir ÍBV í deildinni í sumar og allt ÍBV liðið.
Fyrir leik
Guðmundur Magnússon, sóknarmaður ÍBV, tekur út leikbann í dag. Hann fékk beint rautt spjald í leik gegn HK á fimmtudag. Skv. Pepsi Max mörkunum þótti dómurinn ansi harður.
Fyrir leik
Það vill svo til að ég var í sömu sjóferð og Víkingur og var komið til Eyja tveimur tímum fyrir leik. Ég hélt að Víkingur myndi mæta fyrr en óhætt er að segja að það hafi verið gott í sjóinn.
Fyrir leik
Nokkur umræða hefur verið um dómgæsluna í sumar og hefur umræðan verið heldur neikvæð. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig Helgi Mikael Jónasson mun standa sig í dag en hann hefur oft þótt taka mikið pláss í leikjunum sem hann dæmir.
Fyrir leik
Góðan dag kæru lesendur og veriði velkomnir í textalýsingu í botnbaráttuslag ÍBV og Víkings. Annað liðið hefur fengið að heyra það í sumar en hitt verið dásamað. Hvað sem því nú líður eru þetta tvö neðstu liðin og munar á þeim einu stigi.
Byrjunarlið:
Sölvi Ottesen
Þórður Ingason
3. Logi Tómasson
5. Mohamed Dide Fofana
12. Halldór Smári Sigurðsson
20. Júlíus Magnússon (f)
21. Guðmundur Andri Tryggvason ('72)
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
23. Nikolaj Hansen
24. Davíð Örn Atlason
77. Atli Hrafn Andrason ('57)

Varamenn:
32. Fran Marmolejo (m)
7. James Charles Mack ('72)
8. Viktor Örlygur Andrason
10. Rick Ten Voorde ('57)
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
19. Þórir Rafn Þórisson
28. Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Þórir Ingvarsson
Ísak Jónsson Guðmann
Hajrudin Cardaklija
Fannar Helgi Rúnarsson
Guðjón Örn Ingólfsson

Gul spjöld:
Atli Hrafn Andrason ('4)
Júlíus Magnússon ('93)

Rauð spjöld: