Keflavík
1
2
Þór/KA
0-1 Sandra Mayor '12 , víti
Natasha Anasi '38 1-1
1-2 Sandra Mayor '56
26.05.2019  -  16:00
Nettóvöllurinn
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: Logn og glampandi sól
Dómari: Atli Haukur Arnarsson
Áhorfendur: 115
Maður leiksins: Arna Sif Ásgrímsdóttir
Byrjunarlið:
1. Aytac Sharifova (m)
2. Þóra Kristín Klemenzdóttir ('53)
3. Natasha Anasi (f)
5. Sophie Mc Mahon Groff ('78)
7. Maired Clare Fulton
8. Sveindís Jane Jónsdóttir
10. Dröfn Einarsdóttir
16. Ísabel Jasmín Almarsdóttir
17. Katla María Þórðardóttir
21. Íris Una Þórðardóttir
24. Anita Lind Daníelsdóttir

Varamenn:
12. Katrín Hanna Hauksdóttir (m)
5. Berta Svansdóttir
7. Kara Petra Aradóttir
11. Kristrún Ýr Holm
15. Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir
20. Eva Lind Daníelsdóttir ('78)
20. Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir
30. Marín Rún Guðmundsdóttir ('53)

Liðsstjórn:
Gunnar Magnús Jónsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Haukur Benediktsson
Amelía Rún Fjeldsted
Valdís Ósk Sigurðardóttir
Margrét Ársælsdóttir

Gul spjöld:
Sophie Mc Mahon Groff ('66)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Lokatölur 2-1!

Svekkjandi fyrir Keflvíkinga að ná ekki í stig út úr þessum leik, en mikilvægur sigur fyrir Þór/KA sem vilja væntanlega koma sér enn ofar í töflunni. Skýrsla og viðtöl væntanleg.
90. mín
Venjulegur leiktími liðinn og Þór/KA eru ekkert að flýta sér að taka þessa hornspyrnu sem þær eiga. Mjög rólegar í öllum sínum aðgerðum og bíða bara eftir að Keflvíkingar pressi á þær.
89. mín
Heiða með skot á markið en þetta var auðvelt fyrir Aytac.
86. mín
Sveindís með skot langt yfir.

Keflvíkingar búnar að liggja svolítið á Þór/KA síðustu mínúturnar, staðráðnar í því að ná í stig úr þessum leik.
86. mín
Langt innkast frá Sveindísi inn á teig og eftir smá klafs ná Keflvíkingar skoti sem fer af varnarmanni Þór/KA og aftur fyrir.
82. mín
Andrea með hornspyrnu fyrir Þór/KA sem Aytac ver yfir. Þórdís tekur hornspyrnuna hinumegin og nú grípur Aytec boltann.
80. mín
Áhorfendatölur komnar í hús, það eru 115 áhorfendur hér í Keflavík í kvöld.
78. mín
Inn:Eva Lind Daníelsdóttir (Keflavík) Út:Sophie Mc Mahon Groff (Keflavík)
75. mín
Svandís fer á stað og kemst fram hjá Láru í vörninni. Nær boltanum fyrir á Maired sem skýtur í varnarmann Þór/KA og boltinn aftur fyrir.
73. mín
Aníta Lind með skot langt fram hjá.
71. mín
Inn:Iris Achterhof (Þór/KA) Út:Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
70. mín
Sveindís tekur langt innkast, langt inn í markteig Þór/KA og eftir smá klafs í teignum fer boltinn útaf í horn.
69. mín
Bianca með langa aukaspyrnu á Örnu Sif sem nær að koma tánni í boltann, en boltinn hátt yfir.
66. mín Gult spjald: Sophie Mc Mahon Groff (Keflavík)
Tók Þórdísi niður á miðjunni. Þórdís liggur eftir.
65. mín
Langur bolti frá Sophie yfir á Anítu Lind sem kemur boltanum á Keflvíking. Skotið hinsvegar slakt og fer langt framhjá.
63. mín
Þór/KA í nauðvörn síðustu mínútuna. Keflavík að ná ágætis skotum en Þór/KA ná alltaf að koma sér fyrir boltann á síðustu stundu.
61. mín Gult spjald: Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Þór/KA)
60. mín
Aníta Lind með fína fyrirgjöf frá vinstri en vantaði ákveðni í leikmenn Keflavíkur inn á teignum!
59. mín
Þórdís með skot um 5m fyrir utan teig, beint á Aytac í markinu
56. mín MARK!
Sandra Mayor (Þór/KA)
Stoðsending: Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Hröð sókn hjá Þór/KA! Hulda Ósk, Sandra og Þórdís sóttu þrjár á tvær og spiluðu sig að því er virtist alveg inn í markið. Sandra tók svo loksins af skarið og lagði hann í fjær hornið.
55. mín
Hulda Björg með fína fyrirgjöf en Sandra setur boltann í hliðarnetið.
53. mín
Inn:Marín Rún Guðmundsdóttir (Keflavík) Út:Þóra Kristín Klemenzdóttir (Keflavík)
Natasha fer niður í miðvörðinn, Dröfn inn á miðju og Marín kemur inn á kantinn.
52. mín
Sandra með flottan sprett og fast skot beint á Aytac sem nær ekki að halda boltanum og ver í horn.
50. mín
Aníta Lind með skot af löngu færi en rétt yfir markið.
46. mín
Inn:Heiða Ragney Viðarsdóttir (Þór/KA) Út:Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
45. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Atli flautar til hálfleiks - staðan 1-1.

Mjög kafla skiptur leikur. Keflavík byrjuðu leikinn mun betur, gáfu Þór/KA lítinn tíma til að athafna sig og sóttu hratt á þær. Eftir mark Þór/KA var eins og það færðist ró yfir leik þeirra og hægt og rólega náðu þær yfirhöndinni. Natasha skoraði í þann mund sem Þór/KA voru að ná algjörum yfirburðum og Keflvíkingar tóku algjörlega yfir leikinn síðustu mínúturnar.

Það má búast við hörkuspennandi seinni hálfleik hér á Nettóvellinum!
44. mín
Skipting yfir á vinstri kantinn frá Dröfn. Hulda beygir sig frá boltanum sem berst á Anítu. Rangstaða dæmd.
40. mín
Sveindís með flottan sprett, leikur á varnarmann Þór/KA en Bryndís kemur vel út á móti og ver.
38. mín MARK!
Natasha Anasi (Keflavík)
Stoðsending: Sveindís Jane Jónsdóttir
Þvaga inn í teig eftir innkast frá Sveindísi sem endar með því að Natasha skorar af stuttu færi.
34. mín
Fyrirgjöf sem Sophie skallar hátt yfir.
28. mín
Aftur ver Aytac í horn, nú eftir skot frá Huldu Ósk. Þór/KA virðast vera að ná yfirhöndinni eftir fína byrjun Keflavíkur.
27. mín
Stephany leikur hér á varnarmann Keflavíkur og nær fínu skoti á markið sem Aytac ver í horn.
25. mín
Hröð sókn frá Keflavík. Sveindís keyrir upp völlinn og leikur á Örnu Sif í vörn Þór/KA, nær skoti á markið úr þröngu færi en Bryndís ver auðveldlega.
23. mín
Aukaspyrna rétt fyrir aftan miðju sem Aytac markmaður tekur. Sóknin endar með skoti frá Maired yfir markið úr ágætis færi.
19. mín
Karen er komin aftur inn á og sækir hornspyrnu. Andrea tekur spyrnuna og Aytac, markmaður keflavíkur kemur langt út í teiginn til að ná í boltann en brotið á henni.
15. mín
Karen lendir í samstuði og liggur eftir. Vonum að það sé ekkert alvarlegt.
12. mín Mark úr víti!
Sandra Mayor (Þór/KA)
Öruggt, sendir markmanninn í vinstra hornið og skýtur í það hægra.
12. mín
Víti!! Það var eitthvað klafs í teignum og Þór/KA nær skoti en boltinn virðist hafa farið í höndina á varnarmanni Keflavíkur!
9. mín
Ísabel með skot á markið. Ísabel vann hann vel inn á miðjunni og keyrði af stað en skotið fast en beint á Bryndísi í markinu.
6. mín
Leikurinn fer rólega af stað, bæði lið að spila boltanum ágætlega en lítið um færi hér í upphafi.
Fyrir leik
Leikur hafinn
Þór/KA byrja með boltann og sækja í átt að íþróttahúsinu.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár, þau má sjá hér til hliðar.

Þór/KA gerir tvær breytingar á sínu byrjunarliði eftir 4-1 tap gegn Breiðablik í síðustu umferð. Margrét Árnadóttir og Saga Líf fóru af velli í síðasta leik vegna meiðsla og eru enn frá. Lára Einarsdóttir og Hulda Ósk koma inn liðið í stað þeirra.

Keflavík gerir eina breytingu og er það Kristrún Ýr sem fer út og Dröfn inn í byrjunarlið.
Fyrir leik
Keflvíkingum hefur enn ekki tekist að sækja stig í sumar og sitja einar með 0 stig á botninum. Þór/KA hafa hinsvegar unnið tvo leiki, tapað tveimur og eru nú í 4 sæti deildarinnar.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Keflavíkur og Þór/KA. Leikurinn er fyrsti leikurinn í fimmtu umferð Pepsi Max deildarinnar.
Byrjunarlið:
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
4. Bianca Elissa
8. Lára Einarsdóttir
8. Andrea Mist Pálsdóttir
9. Sandra Mayor
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('46)
10. Lára Kristín Pedersen
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir (f)
22. Hulda Ósk Jónsdóttir ('71)
24. Hulda Björg Hannesdóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
2. Rut Matthíasdóttir
16. Jakobína Hjörvarsdóttir
22. Iris Achterhof ('71)
25. Heiða Ragney Viðarsdóttir ('46)
26. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir

Liðsstjórn:
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Andri Hjörvar Albertsson (Þ)
Ingibjörg Gyða Júlíusdóttir
Einar Logi Benediktsson
Haraldur Ingólfsson

Gul spjöld:
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('61)

Rauð spjöld: