Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Mjólkurbikar karla
Víkingur R.
52' 1
1
Víðir
Mjólkurbikar karla
KA
52' 1
0
ÍR
Mjólkurbikar karla
ÍA
46' 2
0
Tindastóll
Mjólkurbikar karla
Afturelding
46' 1
0
Dalvík/Reynir
Mjólkurbikar karla
Grótta
52' 0
0
Þór
Mjólkurbikar karla
Höttur/Huginn
LL 0
1
Fylkir
Mjólkurbikar karla
ÍBV
LL 1
2
Grindavík
Mjólkurbikar karla
Árbær
LL 0
3
Fram
Mjólkurbikar karla
Haukar
LL 2
4
Vestri
KR
0
2
Selfoss
0-1 Allison Murphy '19
0-2 Allison Murphy '26
15.09.2019  -  14:00
Meistaravellir
Pepsi-Max deild kvenna
Dómari: Guðni Þór Þórsson
Maður leiksins: Karitas Tómasdóttir
Byrjunarlið:
29. Ingibjörg Valgeirsdóttir (m)
2. Kristín Erla Ó Johnson
3. Ingunn Haraldsdóttir (f)
3. Sandra Dögg Bjarnadóttir ('66)
4. Laufey Björnsdóttir
7. Guðmunda Brynja Óladóttir
8. Katrín Ómarsdóttir ('46)
10. Betsy Doon Hassett ('79)
14. Grace Maher
16. Lilja Dögg Valþórsdóttir
24. Gloria Douglas

Varamenn:
23. Birna Kristjánsdóttir (m)
9. Hlíf Hauksdóttir ('79)
20. Þórunn Helga Jónsdóttir ('46)
21. Tijana Krstic ('66)
27. Halla Marinósdóttir

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Sigursteinsson (Þ)
Hugrún Lilja Ólafsdóttir
Guðlaug Jónsdóttir
Sædís Magnúsdóttir
Hildur Björg Kristjánsdóttir
Ásta Kristinsdóttir
Ragna Lóa Stefánsdóttir

Gul spjöld:
Guðmunda Brynja Óladóttir ('47)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknum er lokið og Selfoss tryggir 3. sætið með 2-0 útisigri í Vesturbænum. Frábær árangur hjá þeim í sumar.

Ég þakka fyrir mig og minni á viðtöl og skýrslu síðar í kvöld.
89. mín
Þetta er að fjara út. Nokkuð ljóst að Selfoss fer heim með stigin þrjú og neglir niður 3. sætið á Íslandsmótinu.
88. mín
Inn:Erna Guðjónsdóttir (Selfoss) Út:Hólmfríður Magnúsdóttir (Selfoss)
86. mín
Inn:Hrafnhildur Hauksdóttir (Selfoss) Út:Anna María Friðgeirsdóttir (Selfoss)
Hauksdætur báðar komnar inná. Hlíf stóra systir var að koma inná hjá KR fyrir nokkrum mínútum. Nú er Hrafnhildur mætt til leiks.
85. mín
Guðmunda með fínan snúning í teignum en skýtur svo alltof nálægt Kelsey sem ver frá henni.
80. mín
Það er ekkert brjálæðislega mikið að frétta héðan úr Vesturbænum. Bæði lið búin að fá hálfsénsa á að búa sér til færi en hér er engin markalykt í loftinu.
79. mín
Inn:Hlíf Hauksdóttir (KR) Út:Betsy Doon Hassett (KR)
74. mín
Þarna munaði ENGU!

Ingibjörg fór út úr teig og náði að renna sér á undan Hólmfríði í boltann áður en sú síðarnefnda náði að komast í gegn. Boltinn datt þá fyrir Magdalenu sem var með opið markið fyrir framan sig en setti hann rétt framhjá!
71. mín
Lilja Dögg vinnur hornspyrnu fyrir KR. Grace tekur en Selfyssingar setja boltann aftur fyrir.

Grace tekur aftur en snýr boltann aftur fyrir markið í seinni tilrauninnni.
70. mín
Tijana reynir langskot sem fer af varnarmanni og aftur fyrir. KR vinnur horn sem Grace tekur. Hólmfríður skallar frá.
66. mín
Inn:Tijana Krstic (KR) Út:Sandra Dögg Bjarnadóttir (KR)
63. mín
Hættuleg sókn hjá Selfoss. Barbára á hættulega fyrirgjöf á fjær þar sen vinstri bakvörðurinn Selma er mætt á fullu gasi. Hún rétt missir af boltanum en þetta hefði geta orðið fallegt bakvarðamark.
53. mín
Gumma með flott hlaup og tekur svo þríhyrning við Betsy áður en hún sleppur í gegn. Neglir boltanum svo í hliðarnetið!

Gummu langar að skora en það vantar aðeins upp á þetta hjá henni.
52. mín
Anna María tekur hornið og boltinn endar utarlega í teignum hjá Magdalenu. Hún reynir skotið en aftur ver Ingibjörg vel frá henni.
52. mín
Vel varið hjá Ingibjörgu!

Lokar á Magdalenu sem var komin í skotfæri á markteig eftir laglegan samleik gestanna.

Selfoss fær horn..
48. mín
Sandra Dögg á fyrsta markskotið í síðari hálfleik. Lætur vaða frá vinstra vítateigshorninu en setur boltann beint á Kelsey.
47. mín Gult spjald: Guðmunda Brynja Óladóttir (KR)
Gumma er of sein og brýtur á Karitas. Fær gult fyrir vikið.
46. mín
Leikur hafinn
Oooog við erum farin af stað aftur!
46. mín
Inn:Þórunn Helga Jónsdóttir (KR) Út:Katrín Ómarsdóttir (KR)
Hálfleiksskipting hjá KR.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur og staðan 0-2 fyrir Selfyssingum. Það verður alltaf erfitt fyrir KR-inga að koma til baka gegn sterku varnarliði Selfoss en það er aldrei að vita..

Tökum okkur korterspásu og höldum svo áfram.
45. mín
Gumma er aftur að gera sig líklega en Brynja nær að koma stóru tá í boltann og bjarga í horn. Grace tekur hornið og setur boltann út í teig á Ingunni sem skallar beint í hendurnar á Kelsey.
43. mín
GUMMA!

Hún hristir af sér varnarmann, kemst inná teig en skýtur yfir! Náði ekki að koma boltanum almennilega fyrir sig þarna.
36. mín
KR fær aukaspyrnu rétt utan teigs. Laufey og Grace standa yfir boltanum. Laufey hleypur yfir hann og Grace reynir svo skot með vinstri sem hún setur yfir vinstri samskeytin.
35. mín Gult spjald: Brynja Valgeirsdóttir (Selfoss)
Brynja brýtur á Guðmundu sem var við það að sleppa í gegn. Brynja mögulega heppin með litinn þarna því hún tók þarna gullið marktækifæri af KR og virtist öftust varnarmanna.
33. mín
Allison reynir við þrennuna. Lætur vaða utan teigs en skotið hættulítið.
26. mín MARK!
Allison Murphy (Selfoss)
Allison tvöfaldar forystuna fyrir Selfoss!

Skorar með hnitmiðuðu skoti af vítateigsboganum.

Karitas Tómasdóttir hafði átt rosalegan sprett upp völlinn í aðdraganda marksins. Vann boltann á eigin vallarhelmingi og komst alla leið inná teig hjá andstæðingunum.
23. mín
Selfyssingar eru öflugar þessa stundina. Nú var Karitas að skalla rétt yfir eftir fyrirgjöf Önnu Maríu.
20. mín
Selfyssingar ógna aftur. Anna María laumar boltanum innfyrir á Magdalenu en Ingibjörg gerir vel í að komast á undan í boltann.
19. mín MARK!
Allison Murphy (Selfoss)
Stoðsending: Hólmfríður Magnúsdóttir
Hólmfríður spilar Allison í gegn og hún leggur boltann framhjá Ingibjörgu í markinu.

Vel gert hjá gestunum sem eru komnar yfir.
17. mín
Næstum því!

Ingibjörg lendir í veseni í KR-markinu. Ætlar að hreinsa fram en er komin út úr stöðu og nær ekki krafti á móti vindi svo boltinn dettur fyrir Önnu Maríu sem er komin á vinstri kantinn hjá Selfossi. Anna María sér opið markið og lætur vaða en Ingunn Haraldsdóttir dúkkar upp á ögurstundu og bjargar áður en boltinn endar í netinu.
16. mín
Vel gert Gloria. Tekur snúning og fer illa með Selmu í bakverðinum. Sendir svo boltann fyrir en KR-ingar ná ekki að klára færið.
14. mín
Þarna reddar Cassie Selfyssingum. Náði að renna sér fyrir boltann áður en að Gumma sendi Gloriu í gegn.
11. mín
Selfoss stillir svona upp:

Kelsey

Barbára - Brynja - Cassie - Selma

Karitas - Þóra

Anna María - Magdalena - Allison

Hólmfríður
8. mín
Þá er komið að fyrsta alvöru markskoti Selfoss. Hólmfríður lætur vaða með vinstri fæti rétt utan teigs. Setur boltann samt beint á Kelsey.
5. mín
Grace á geggjaða þversendingu fyrir markið hjá Selfoss sem Gloria rétt missir af!

Hættulegt.
4. mín
KR stillir svona upp:

Ingibjörg

Lilja Dögg - Laufey - Ingunn - Kristín Erla

Grace - Betsy

Gloria - Katrín - Sandra Dögg

Guðmunda
2. mín
Guðni prófar flautuna. Brotið á Kristínu Erlu á miðjum vallarhelmingi Selfoss. Grace Maher setur boltann inn á teig en Selfyssingum tekst að hreinsa.
1. mín
Leikur hafinn
Selfoss byrjar. Hólmfríður tekur upphafsspyrnuna og Selfyssingar leika með bakið í félagsheimili KR.
Fyrir leik
KR gerir eina breytingu á byrjunarliði sínu frá síðasta deildarleik. Katrín Ómarsdóttir kemur inná miðjuna fyrir Þórunni Helgu.

Hjá Selfoss gerir Alfreð tvær breytingar. Brynja Valgeirsdóttir og Selma Friðriksdóttir koma inn í liðið fyrir Höllu Helgadóttur og Hrafnhildi Hauksdóttur.
Fyrir leik
Selfoss situr í 3. sæti fyrir leiki dagsins og sigur þýðir að þær endi mótið þar. KR-ingar tryggðu áframhaldandi veru sína í efstu deild með sigri á Þór/KA í síðustu umferð. Þær sitja í 6. sæti og eiga enn tölfræðilega möguleika á að færa sig upp í það fjórða með sigrum í síðustu umferðunum.

Mögulega eru þær þó meira að horfa til þess að hefna fyrir tapið gegn Selfoss í bikarúrslitum en liðin tvö mættust á Laugardalsvelli fyrir tæpum mánuði. Þá vann Selfoss 2-1 í framlengdum leik.
Fyrir leik
Gleðilegan sunnudag!

Hér verður bein textalýsing frá viðureign KR og Selfoss í Pepsi Max-deildinni.
Byrjunarlið:
Anna María Friðgeirsdóttir ('86)
1. Kelsey Wys
5. Brynja Valgeirsdóttir
10. Barbára Sól Gísladóttir
14. Karitas Tómasdóttir
15. Allison Murphy
16. Selma Friðriksdóttir
18. Magdalena Anna Reimus
21. Þóra Jónsdóttir
26. Hólmfríður Magnúsdóttir ('88)
29. Cassie Lee Boren

Varamenn:
13. Dagný Pálsdóttir (m)
2. Hrafnhildur Hauksdóttir ('86)
8. Ásta Sól Stefánsdóttir
11. Anna María Bergþórsdóttir
20. Helena Hekla Hlynsdóttir
25. Halldóra Birta Sigfúsdóttir

Liðsstjórn:
Alfreð Elías Jóhannsson (Þ)
Erna Guðjónsdóttir
Elías Örn Einarsson
Svandís Bára Pálsdóttir
Hafdís Jóna Guðmundsdóttir
Óttar Guðlaugsson
María Guðrún Arnardóttir
Stefán Magni Árnason

Gul spjöld:
Brynja Valgeirsdóttir ('35)

Rauð spjöld: