Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Grindavík
3
1
Grótta
Sigurður Bjartur Hallsson '39 1-0
1-1 Pétur Theódór Árnason '68
Arnar Þór Helgason '85
Sigurjón Rúnarsson '91 2-1
Sigurður Bjartur Hallsson '94 , víti 3-1
18.06.2021  -  19:15
Grindavíkurvöllur
Lengjudeild karla
Aðstæður: Hægur vindur, rignir örlítið og völlurinn lítur vel út hjá Ivan og hans mönnum
Dómari: Sveinn Arnarsson
Maður leiksins: Sigurður Bjartur Hallsson
Byrjunarlið:
Oddur Ingi Bjarnason ('59)
1. Aron Dagur Birnuson
2. Ólafur Guðmundsson
4. Walid Abdelali ('89)
6. Viktor Guðberg Hauksson
7. Sindri Björnsson
8. Tiago Fernandes
9. Josip Zeba
23. Aron Jóhannsson (f) ('62)
26. Sigurjón Rúnarsson
33. Sigurður Bjartur Hallsson

Varamenn:
10. Dion Acoff ('59)
11. Símon Logi Thasaphong
15. Freyr Jónsson
16. Þröstur Mikael Jónasson
19. Mirza Hasecic
36. Laurens Symons ('62)

Liðsstjórn:
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson (Þ)
Benóný Þórhallsson
Marinó Axel Helgason
Maciej Majewski
Guðmundur Valur Sigurðsson
Haukur Guðberg Einarsson
Vladimir Vuckovic
Ólafur Tryggvi Brynjólfsson

Gul spjöld:
Sindri Björnsson ('60)
Sigurjón Rúnarsson ('66)
Walid Abdelali ('83)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Grindavík lyftir sér upp í annað sæti deildarinnar eftir að hafa tryggt sér sigur í uppbótartíma.. Viðtöl og skýrsla væntanleg
96. mín
Acoff með skot í hliðarnetið eftir skyndisókn.
94. mín Mark úr víti!
Sigurður Bjartur Hallsson (Grindavík)
Stoðsending: Laurens Symons
Bíður eftir Hákoni og setur hann í öfugt horn. Öruggt og úrslitin ráðinn.
94. mín
Grindavík fær vítaspyrnu!

Brotið á Laurens í teignum. Frekar ódýrt en alveg réttlætanlegt.
92. mín
Kristófer Melsteð með rosalega tæklingu á Laurens og bjargar nánast öruggu marki er sá Belgíski er að sleppa í gegn.
91. mín MARK!
Sigurjón Rúnarsson (Grindavík)
Er fyrirliðinn að lyfta Grindavík upp í annað sæti deildarinnar. Rís langhæst í teignum og skallar boltann í netið!
90. mín
Grindavík fær horn. Aldrei undir 5 í uppbót hér.
89. mín
Inn:Júlí Karlsson (Grótta) Út:Kári Daníel Alexandersson (Grótta)
89. mín
Inn:Marinó Axel Helgason (Grindavík) Út:Walid Abdelali (Grindavík)
87. mín
Leikmaður Gróttu liggur á vellinum og virkar sárkvalinn. Virðist vera hendinn á honum og hreinlega spurning um axlarlið eða viðbein.

Kári Daníel er það.
85. mín Rautt spjald: Arnar Þór Helgason (Grótta)
Arnar fær ekki sénsinn núna, keyrir Laurens niður og getur ekkert kvartað yfir seinna gula spjaldinu.
83. mín Gult spjald: Walid Abdelali (Grindavík)
82. mín
Inn:Axel Sigurðarson (Grótta) Út:Kjartan Kári Halldórsson (Grótta)
81. mín
Gestirnir bjarga á línu!

Sé ekki hver á skallann en mér sýnist Arnar skalla boltann frá af marklínu.
80. mín
Grindavík fær horn.
79. mín
Zeba setur boltann í netið en flaggið réttilega á loft.
78. mín
Arnar Þór í tæklingu og á gulu. Sleppur við spjaldið.
74. mín
Úff Pétur í boltanum en skalli hans framhjá markinu. Grindavík í stökustu vandræðum með föst leikatriði.
73. mín
Grótta fær horn.
71. mín
Zeba bjargar í horn eftir skyndisókn Gróttu.

Þurfa að standa betur í þetta sinn.
68. mín MARK!
Pétur Theódór Árnason (Grótta)
Stoðsending: Kristófer Orri Pétursson
10 mörk mætt hjá Pétri þetta sumarið. Nær að troða boltanum yfir línuna á fjærstöng eftir horn frá Kristófer.
67. mín
Grótta fær horn.
66. mín Gult spjald: Sigurjón Rúnarsson (Grindavík)
Kröftug tækling á miðjum vellinum. Kjartan Kári fann vel fyrir þessari.
66. mín
Zeba fær hann beint í belginn frá Pétri og steinliggur. Nær sér eftir smástund.
62. mín
Inn:Sigurður Hrannar Þorsteinsson (Grótta) Út:Sigurvin Reynisson (Grótta)
62. mín
Inn:Laurens Symons (Grindavík) Út:Aron Jóhannsson (Grindavík)
60. mín Gult spjald: Sindri Björnsson (Grindavík)
Kominn hiti í menn.
59. mín
Inn:Dion Acoff (Grindavík) Út:Oddur Ingi Bjarnason (Grindavík)
57. mín Gult spjald: Sigurvin Reynisson (Grótta)
Sigurvin hreinlega heppinn að hanga inná vellinum, hugsar ekkert um boltann og tekur Odd niður í skyndisókn að aftan.

Oddur virðist meiðast og hefur að mér sýnist lokið leik.
55. mín
Pétur sækir horn. Var að vinna sig í gott færi en missir boltann frá sér og Grindavík setur hann afturfyrir.
54. mín
Mikill kraftur í Gróttu hér í upphafi og skortir ekkert uppá baráttu. Færin hafa ekki látið sjá sig þó.
48. mín
Oddur að komast í prýðisfæri en nær ekki að leggja boltann fyrir sig.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn

Gestirnir hefja leik í síðari hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks hér í Grindavík. Heimamenn leiða hér eftir mark Sigurðar Bjarts. Leikurinn verið nokkuð hraður á blautum vellinum og liðin skipst á að sækja.
44. mín
Kjartan Kári með skot úr aukaspyrnu en hátt yfir markið fer boltinn.
40. mín Gult spjald: Arnar Þór Helgason (Grótta)
Brýtur af sér og stöðvar skyndisókn. Enginn séns í þetta sinn.
39. mín MARK!
Sigurður Bjartur Hallsson (Grindavík)
Stoðsending: Aron Jóhannsson
Aukaspyrna frá Aroni smellur í þverslánni. Hákon dæmdi þennan yfir og var hvergi nálægur þegar Sigurður setur boltann auðveldlega í tómt markið.
37. mín
Arnar Þór dæmdur brotlegur á Sigurði Bjarti. Fær tiltal frá Sveini og Grindavík á aukaspyrnu á hættulegum stað.
36. mín
Pétur með skot úr þröngu færi hægra meginn í teignum, framhjá fer boltinn.
34. mín
Aron Jóhannsson með skot af vítateigslínunni alveg út við stöng en Hákon Rafn nýtir alla sína sentimetra og slær boltann í horn.

Úr horninu verður ekkert.
28. mín
Svakalegur árekstur hér á miðjum vellinum. Walid steinliggur eftir árekstur við tvo Gróttumenn. Allir í lagi samt og halda leik áfram.
27. mín
Grindavík fær hornspyrnu.

Fátt markvert gerst síðustu mínútur og mikið jafnræði með liðunum.
21. mín
Sigurður Bjartur í óvæntu færi eftir misheppnaða hreinsun. Nær ekki góðu skoti og boltinn fram hjá.
20. mín
Hætta í teig Grindavíkur en ekkert verður úr. Pétur atkvæðamikill í atinu sem fyrr.
16. mín
Walid með skot af löngu færi en Hákon ekki í vandræðum með það.
15. mín
Gengur enda á milli Grindavík fær horn.
14. mín
Pétur í dauðafæri en nær ekki að taka boltann með sér. Aron því sem næst tekur boltann af kollinum á honum.
9. mín
Grindavík fær horn.
8. mín
Pétur í úrvalsfæri í teignum eftir fyrirgjöf frá hægri en rennur á vellinum og nær ekki höfðinu í boltann.
8. mín
Darraðadans í teignum eftir hornið og tvö skot sem heimamenn henda sér fyrir. Grótta heldur pressunni.
7. mín
Pétur fær boltann við hægra vítateigshorn og lætur vaða. Ekki galið skot sem Aron ver í horn.
6. mín
Ólafur Guðmunds keyrir upp að endamörkum vinstra meginn og setur boltann fast fyrir, enginn á tánum í boxinu og boltinn siglir sína leið í gegnum teiginn óáreittur.
3. mín
Barátta sem einkennir upphafsmínútur leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Farið af stað hér á Grindavíkurvelli. Það eru heimamenn sem hefja leik hér leik.
Fyrir leik
Styttist óðum í leikinn og liðin að gera sig klár til að mæta til vallar. Eyjamenn eru að vinna Fjölni í Eyjum eins og stendur og 2.sætið í boði fyrir Grindavík vinni ÍBV.
Fyrir leik
Fyrri viðureignir

Liðin hafa aðeins leikið tvo deildarleiki sín á milli frá aldamótum en þau mættust í 1.deild sem þá var sumarið 2015.
Fyrri leik liðanna á Grindavíkurvelli lauk með 2-0 sigri heimamanna þar sem Tomislav Misura gerði bæði mörk Grindavíkur. Grótta vann svo seinni leikinn á Vivaldivellinum 1-0 með marki Hilmars Þórs Hilmarssonar.


Fyrir leik
Síðasta umferð

Bæði lið áttu útileik í síðustu umferð. Gestirnir af Seltjarnarnesi heimsóttu Domusnova völlinn og mættu þar Kórdrengjum. Þar höfðu Kórdrengir 2-1 sigur, áðurnefndur Pétur Theodór Árnason skoraði mark Gróttu í leiknum.

Grindavík heimsótti Þrótt í Laugardalinn og hafði 3-2 sigur í baráttuleik. Sigurður Bjartur Halsson, Oddur Ingi Bjarnason og hinn belgíski Laurens Willy Symons skoruðu mörk Grindavíkur í leiknum.


Fyrir leik
Pétur Theodór Árnason

Framherjinn stóri og stæðilegi elskar að skora í Lengudeildinni og er kominn með 9 mörk nú þegar í deildinni.

Tvær þrennur hafa litið dagsins ljós hjá honum gegn Þór og Vestra og það kæmi mér hreinlega á óvart ef að Pétur skorar ekki á Grindavíkurvelli í kvöld.


Fyrir leik
Staða liðanna

Grindavík situr fyrir leik kvöldsins í 3.sæti deildarinnar með 12 stig 1 stigi á eftir liði Fjölnis sem situr í öðru sæti og 9 stigum á eftir toppliðið Fram sem enn er með fullt hús stiga að 7 umferðum loknum. Grindavík getur með sigri farið upp í 2.sæti deildarinnar tapi Fjölnir leik sínum í kvöld en þeir mæta ÍBV á Hásteinsvelli og er flautað á þar klukkan 18:00

Grótta sem féll úr Pepsi Max deildinni á síðustu leiktíð situr í 7.sæti með 8 stig en getur tölfræðilega lyft sér upp í 4.sæti deildarinnar með sigri þótt það verði að teljast ólíklegt.


Fyrir leik
Gott kvöld kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu Fótbolta.net frá leik Grindavíkur og Gróttu í Lengjudeild karla.
Byrjunarlið:
1. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
Pétur Theódór Árnason
2. Arnar Þór Helgason
3. Kári Daníel Alexandersson ('89)
5. Patrik Orri Pétursson
6. Sigurvin Reynisson (f) ('62)
6. Ólafur Karel Eiríksson
7. Kjartan Kári Halldórsson ('82)
10. Kristófer Orri Pétursson (f)
11. Sölvi Björnsson
19. Kristófer Melsted

Varamenn:
1. Jón Ívan Rivine (m)
8. Júlí Karlsson ('89)
9. Axel Sigurðarson ('82)
14. Björn Axel Guðjónsson
20. Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('62)
25. Valtýr Már Michaelsson
29. Óliver Dagur Thorlacius

Liðsstjórn:
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Chris Brazell (Þ)
Halldór Kristján Baldursson
Þór Sigurðsson
Gísli Þór Einarsson
Jón Birgir Kristjánsson
Ástráður Leó Birgisson

Gul spjöld:
Arnar Þór Helgason ('40)
Sigurvin Reynisson ('57)

Rauð spjöld:
Arnar Þór Helgason ('85)