Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 1
0
Valur
Keflavík
1
2
Þór/KA
0-1 Jakobína Hjörvarsdóttir '21
0-2 Margrét Árnadóttir '65
Amelía Rún Fjeldsted '89 1-2
06.07.2021  -  18:00
HS Orku völlurinn
Pepsi-Max deild kvenna
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Maður leiksins: Colleen Kennedy
Byrjunarlið:
1. Tiffany Sornpao (m)
Amelía Rún Fjeldsted
3. Natasha Anasi (f)
10. Dröfn Einarsdóttir
14. Celine Rumpf ('72)
15. Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir ('94)
16. Ísabel Jasmín Almarsdóttir
17. Elín Helena Karlsdóttir
24. Anita Lind Daníelsdóttir ('72)
30. Marín Rún Guðmundsdóttir ('83)
33. Aerial Chavarin

Varamenn:
12. Katrín Hanna Hauksdóttir (m)
5. Berta Svansdóttir
11. Kristrún Ýr Holm
20. Eva Lind Daníelsdóttir ('83)
21. Birgitta Hallgrímsdóttir ('72)
22. Jóhanna Lind Stefánsdóttir ('72)

Liðsstjórn:
Gunnar Magnús Jónsson (Þ)
Brynja Pálmadóttir
Ástrós Lind Þórðardóttir
Soffía Klemenzdóttir
Hjörtur Fjeldsted
Örn Sævar Júlíusson
Óskar Rúnarsson

Gul spjöld:
Gunnar Magnús Jónsson ('63)
Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir ('86)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Það er Þór/KA sem fer með sigur af hólmi hér í Keflavík og heldur með 3 stig í farteskinu norður í land.
96. mín
Eva Lind með skot að marki en framhjá.
95. mín
Höfuðmeiðsli á miðjum vellinum og tíminn stopp.
94. mín
Inn:Ástrós Lind Þórðardóttir (Keflavík) Út:Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir (Keflavík)
93. mín
Keflavík sækir en tekst ekki að skapa afgerandi færi. Natasha með skalla afturfyrir sig beint á Hörpu.

Tíminn að renna út.
91. mín
Inn:Rakel Sjöfn Stefánsdóttir (Þór/KA) Út:Colleen Kennedy (Þór/KA)
89. mín MARK!
Amelía Rún Fjeldsted (Keflavík)
Stoðsending: Aerial Chavarin
Glæsilegt mark hjá Amelíu sem skrúfar boltann í markhornið frá vinstra vítateigshorni.

Líflína hjá Keflavík en er þetta of seint?
88. mín
Darraðadans í teig Keflavíkur en Natasha nær að lokum að hreinsa.
86. mín Gult spjald: Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir (Keflavík)
Togar í Colleen á sprettinum.
86. mín
Inn:Agnes Birta Stefánsdóttir (Þór/KA) Út:Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
83. mín
Inn:Eva Lind Daníelsdóttir (Keflavík) Út:Marín Rún Guðmundsdóttir (Keflavík)
82. mín
Gestirnir fá hornspyrnu.
80. mín
Aerial með skot að marki eftir fyrirgjöf Drafnar en hittir boltann illa sem rúllar á Hörpu í markinu.
79. mín
Heimakonur að setja mikla orku í að sækja en gengur afar illa að skapa færi.
76. mín
Karen María með fast skot að marki en Tiffany ver vel.
73. mín
Darraðadans í teignum eftir hornið en boltinn endar að lokum í höndum Hörpu.
73. mín
Aerial sækir hornspynu.
72. mín
Inn:Jóhanna Lind Stefánsdóttir (Keflavík) Út:Anita Lind Daníelsdóttir (Keflavík)
Gunnar gerir tvöfalda breytingu.
72. mín
Inn:Birgitta Hallgrímsdóttir (Keflavík) Út:Celine Rumpf (Keflavík)
Gunnar gerir tvöfalda breytingu.
71. mín
Inn:Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA) Út:Margrét Árnadóttir (Þór/KA)
71. mín
Heimakonur slegnar út af laginu eftir annað mark Þórs/KA, Verið að vinna sig inn í leikinn en fá blauta tusku í andlitið.
65. mín MARK!
Margrét Árnadóttir (Þór/KA)
Stoðsending: Colleen Kennedy
Colleen fer illa með varnarmenn Keflavíkur úti hægra meginn, Tiffany mætir henni og boltinn hrekkur af henni í varnarmann og beint fyrir fætur Margrétar sem skorar í tómt markið.

Get ekki annað en skráð stoðsendingu á Colleen fyrir þessa takta sömuleiðis.
63. mín Gult spjald: Gunnar Magnús Jónsson (Keflavík)
Eitthvað ósáttur og lætur Guðmund heyra það. Uppsker gult spjald fyrir það.
62. mín
Natasha Anasi með skalla í slá!!!

Frákastið berst út í teig en skot Keflavíkur úr pakkanum yfir markið.
61. mín
Keflavík fær hornspyrnu.
58. mín
Tempóið dottið rosalega niður og lítið sem ekkert í gangi í þessum leik.
55. mín
Leikurinn jafnast á ný eftir sterka byrjun Keflavíkur.
49. mín
Amelía Rún í færi í teig Þór/KA eftir fyrirgjöf Aerial en setur boltann framhjá.
48. mín
Heimakonur hefja hálfleikinn af miklum þunga en engin færi litið dagsins ljós.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks hér í Keflavík eftir 44:57!

Gestirnir leiða með einu marki eftir frábæra aukaspyrnu Jakobinu Hjörvarsdóttir.
44. mín
Natasha Anasi með skot að marki en yfir fer boltinn.
40. mín
Aníta Lind setur hornspynu beint í stöngina, Varnarmenn henda sér fyrir skot Drafnar í kjölfarið.

Þór/KA snýr vörn í sókn og vinnur hornspyrnu.
37. mín
Celine Rumpf með skrýtin skalla til baka, Tiffany langt frá markinu og þarf að hlaupa til baka og rétt nær að slá boltann fram hjá stönginni.
35. mín
Keflavík fær horn.
32. mín
Heimakonur aðeins að ná vopnum sínum á ný en gestirnir hættulegri þó.
27. mín
Þór/KA fær hornspyrnu.
25. mín
Liggur þungt á liði Keflavíkur sem á í mesta basli við að halda boltanum.
21. mín MARK!
Jakobína Hjörvarsdóttir (Þór/KA)
Stoðsending: Colleen Kennedy
Jakobínu er alveg sama hvort ég hafi haldið að þetta væri fyrirgjafarstaða og lætur bara vaða á markið yfir Tiffany og boltinn steinliggur í netinu,

Virkilega fallegt mark og frábær spyrna en verð að setja spurningamerki við Tiffany þar sem skotgeirinn var þröngur.
20. mín
Colleen Kennedy fer illa með Celine Rumpf sem brýtur á henni og gestirnir eiga aukaspyrnu á prýðilegum stað til fyrirgjafar.
18. mín
Karen María fer niður í teig Keflavíkur en Guðmundur gefur lítið fyrir það og það líklega réttilega.

Gestirnir halda pressunni og koma boltanum að nýju inn á teig Keflavíkur þar sem Margréti Árnadóttir bregst bogalistin í úrvalsfæri inná markteig!
14. mín
Natasha Anasi með alvöru tilþrif. Kassar boltann niður við vítateigshornið vinstra megin og hamrar boltanum að marki en rétt fram hjá markvinklinum.

Það er líf í báðum liðum.
13. mín
Aerial Chavarin í færi í teig Þór/KA en týnir hreinlega markinu í einum af mörgum snúningum og nær ekki skoti á markið.
13. mín
Karen María Sigurgeirsdóttir með skot að marki Keflavíkur en laust er það og Tiffany grípur boltann af öryggi.
11. mín
Verður áhugavert að fylgjast með Örnu Sif í vörn Þór/KA berjast við Aerial Chavarin í framlínu Keflavíkur. Báðar búa þær yfir gríðarlegum líkamlegum styrk og munu ekkert gefa eftir hvor gegn annari.
8. mín
Keflavík í færi í teignum en Guðmundur Páll flautar brot.
7. mín
Amelía Rún Fjeldsted sækir horn fyrir Keflavík.
6. mín
Gestirnir að ná upp þungri pressu á vörn Keflavíkur en ná ekki að skapa sér færi.
4. mín
Colleen Kennedy gerir vel úti á hægri væng og vinnur sig í vænlega stöðu en heldur boltanum einum of lengi og Keflavík hreinsar.
2. mín
Orrahríð að marki gestanna en varnarmenn henda sér fyrir og koma að endingu boltanum frá.
2. mín
Keflavík með fyrsta horn leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað hér í Keflavík. Það eru gestirnir sem hefja hér leik og sækja í átt frá Blue-höllinni.
Fyrir leik
Styttist í leik

Liðin ganga til búningsherbergja eftir kröftuga upphitun og ráða ráðum sínum í síðasta sinn áður en leikur hefst. Vonumst að sjálfsögðu eftir hröðum og skemmtilegum leik með nóg af mörkum.
Fyrir leik
Fyrri viðureignir í efstu deild

Liðin hafa leikið alls 10 leiki innbyrðis í efstu deild. Gestirnir hafa unnið sex leiki en Keflavík haft sigur í fjórum.
Þór/KA vann báða leiki liðanna sumarið 2019 er Keflavík var síðast í efstu deild. 2-1 í Keflavík og 3-1 á Akureyri en leita þarf allt aftur til ársins 2007 til að finna síðasta sigurleik Keflavíkur á Þór/KA þar sem Danka Podovac skoraði bæði mörk Keflavíkur í 2-1 sigri á Þór/KA þann 2.ágúst.


Fyrir leik
Keflavík

Heimakonur í Keflavík sitja fyrir leik kvöldsins í 7.sæti deildarinnar með 9 stig. Tveir sigrar, tvö töp og eitt jafntefli er niðustaða síðustu fimm leikja hjá Bítlabæjarliðinu.
Síðasti leikur Keflavíkur var gegn Val að Hlíðarenda þar sem Valskonur unnu þægilegan 4-0 sigur.


Fyrir leik
Þór/KA

Gestirnir frá Akureyri sitja fyrir leik kvöldsins í 9.sæti deildarinnar með 8 stig. 1 sigurleikur, tvö töp og tvö jafntefli er uppskera liðsins úr síðustu fimm leikjum sínum en síðasti sigur liðsins var í norðurlandsslag gegn Tindastól 27.maí síðastliðin. Síðasti leikur liðsins var gegn Fylki á Akureyri en lokatölur þar urðu 0-0.


Fyrir leik
Velkomin til leiks kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu Fótbolta.net frá leik Keflavíkur og Þórs/KA í Pepsi Max deild kvenna.
Byrjunarlið:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
Saga Líf Sigurðardóttir
Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('86)
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir (f)
13. Colleen Kennedy ('91)
14. Margrét Árnadóttir ('71)
16. Jakobína Hjörvarsdóttir
17. María Catharina Ólafsd. Gros
22. Hulda Karen Ingvarsdóttir
24. Hulda Björg Hannesdóttir

Varamenn:
25. Sara Mjöll Jóhannsdóttir (m)
18. Rakel Sjöfn Stefánsdóttir ('91)
19. Agnes Birta Stefánsdóttir ('86)
20. Arna Kristinsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir ('71)
26. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir

Liðsstjórn:
Andri Hjörvar Albertsson (Þ)
Perry John James Mclachlan (Þ)
Bojana Besic
Ingibjörg Gyða Júlíusdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: