Stjarnan
3
1
Selfoss
Heiða Ragney Viðarsdóttir '17 1-0
1-1 Miranda Nild '49
Jasmín Erla Ingadóttir '65 2-1
Katrín Ásbjörnsdóttir '87 3-1
23.05.2022  -  20:15
Samsungvöllurinn
Besta-deild kvenna
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Maður leiksins: Sædís Rún Heiðarsdóttir
Byrjunarlið:
1. Chante Sherese Sandiford (m)
4. Eyrún Embla Hjartardóttir ('61)
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('90)
10. Anna María Baldursdóttir (f)
11. Betsy Doon Hassett ('61)
16. Sædís Rún Heiðarsdóttir
18. Jasmín Erla Ingadóttir
21. Heiða Ragney Viðarsdóttir
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir ('79)
24. Málfríður Erna Sigurðardóttir
30. Katrín Ásbjörnsdóttir ('90)

Varamenn:
20. Aníta Ólafsdóttir (m)
3. Arna Dís Arnþórsdóttir ('61)
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('61)
9. Alexa Kirton ('90)
14. Snædís María Jörundsdóttir ('79)
19. Birna Jóhannsdóttir ('90)
19. Elín Helga Ingadóttir
25. Rakel Lóa Brynjarsdóttir

Liðsstjórn:
Kristján Guðmundsson (Þ)
Þórdís Ólafsdóttir
Andri Freyr Hafsteinsson
Rajko Stanisic
Benjamín Orri Hulduson
Hulda Björk Brynjarsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
94. mín
Sterkur 3-1 sigur hjá Stjörnunni sem er frysta liðið til þess að vinna Selfoss í sumar.

Minni á viðtöl og skýrslu sem koma inn seinna í kvöld.
Leik lokið!
93. mín
Úlfa Dís gerir vel og býr sér til gott pláss á miðjunni og laumar boltanum svo inn fyrir á Snædísi en Áslaug nær henni og kemur boltanum frá.
90. mín
Inn:Birna Jóhannsdóttir (Stjarnan) Út:Katrín Ásbjörnsdóttir (Stjarnan)
90. mín
Inn:Alexa Kirton (Stjarnan) Út:Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan)
87. mín MARK!
Katrín Ásbjörnsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Sædís Rún Heiðarsdóttir
Katrín að klára þennan leik fyrir Stjörnuna, Sædís á góða sndingu út í teiginn og Katrín hendir sér á boltann og setur hann í markið.
83. mín
Úlfa Dís vinnur boltann við teig Stjörnunnar og sækir upp völlinn en Áslaug Dóra gerir vel og hleypur hana uppi og vinnur boltann.
80. mín
Inn:Embla Dís Gunnarsdóttir (Selfoss) Út:Katrín Ágústsdóttir (Selfoss)
79. mín
Inn:Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan) Út:Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjarnan)
73. mín
Brenna með fyrirgjöf beint í hendurnar á Chante.
71. mín
Nú var Ingibjörg rosalega nálægt því að skora, á skot fyrir utan teig sem fer í slánna, þetta hefði verið rosalega flott mark.
67. mín
Inn:Eva Lind Elíasdóttir (Selfoss) Út:Auður Helga Halldórsdóttir (Selfoss)
65. mín MARK!
Jasmín Erla Ingadóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Gyða Kristín Gunnarsdóttir
Eftir nokkrar tilraunir og svolítið klafs inni í teig setu Jasmín boltann í netið af stuttu færi eftir sendingu frá Gyðu.

Gyða var búin að gera vel í aðdraganda marksins en þá hitti Jasmín ekki á markið en bætta það upp í töku tvö.
63. mín
Sædís með horsnpyrnu á Jasmín sem setur boltann beint á Tiffany.
62. mín
Gyða með fyrirgjöf beint í magann á Bergrósu, þetta hefur ekki verið þægilegt.
En Stjarnan á horn.
61. mín
Inn:Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (Stjarnan) Út:Betsy Doon Hassett (Stjarnan)
61. mín
Inn:Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjarnan) Út:Eyrún Embla Hjartardóttir (Stjarnan)
59. mín
Brenna komin alveg ein í gegn eftir sendingu frá Miröndu en er aðeins of lengi og Chante gerir vel og mætir á fullri ferð og lokar á Brennu, þetta var dauðafæri.
57. mín
Stjarnan á hornspyrnu sem berst út á Betsy eftir smá klafs Selfyssingar koma boltanum frá á Ingibjörgu sem á skot fyrir utan teig sem fer rétt fram hjá markinu.
55. mín
Ingibjörg með langann bolta inn fyrir vörn Slefoss ætlaðan Betsy en hún nær ekki til hans.
49. mín MARK!
Miranda Nild (Selfoss)
Stoðsending: Brenna Lovera
Brenna með góða fyrirgjöf inn í teiginn sem Miranda skallar snyrtilega í netið, góð fyrirgjöf, góður skalli og Selfoss jafnar leikinn.
48. mín
Betsy með boltann útihægra megin og þarf að hafa sig alla við heillengi til að koma boltanum fram hjá Sif en á endanum kemur hún boltanum inn í teig á Katrínu sem setur boltann í varnarmann Selfoss og vinnur hornspyrnu.
47. mín
Bergrós með fyrirgjöf sem Málfríður skallar frá.
46. mín
Katrín sparkar þessum seinni hálfleik af stað.
45. mín
Inn:Íris Una Þórðardóttir (Selfoss) Út:Barbára Sól Gísladóttir (Selfoss)
Ein skipting í hálfleik, fyriliði Selfoss fer út af, en hún virtist eitthvað meidd í lok fyrrihálfleiks, Brenna tekur við bandinu.
45. mín
Hálfleikur
Ásmundur flautar til leikhlés eftir skemmtilegan fyrri hálfleik, Stjarnan leiðir með einu marki en það en leikurinn er jafn og allt getur gerst í seinni hálfleik.
44. mín
Tiffany með agalega sendingu út frá markinu beint á Jasmínu sem nýtir færið ill og setur boltann langt fram hjá.
42. mín
Eyrún með sendingu upp á Jasmínu en Sif mætir á fleygiferð og kemur boltanum frá.
40. mín
Brenna með góðann sprett upp völlinn sem endar á skoti sem fer í varnarmann Stjörnunar og berst svo til Chante.
37. mín
Katrín Ágústsdóttir komin í góða stöðu og við það að komast inn fyrir vörn Stjörnunar en Málfríður hendir í góða tæklingu og kemur boltanum frá.
35. mín
Katrín kemru með góðan bolta út í teiginn á Gyðu sem bara hittir ekki boltann, þetta var mjög gott færi.
32. mín
Ingibjörg Lúcía með annað gott skot fyrir utan teig, lýtur út fyrir að hún ætli sér að skora í dag.
32. mín
Sædís með góðann bolta utan af hægri kantinum þvert yfir völlinn sem fer yfir Sif í vörn Selfoss en Gyða Kristín er ekki mætt á fjær til að pota honum í netið
29. mín
Barbára er kominn upp hægti kantinn á ferðinni reynir að komast fram hjá Sædísi en Sædísi á góða tæklingu og kemur boltanum frá.
28. mín
Miranda tekur fer fram hjá Heiðu Ragney, býr sér til pláss og á svo fínt skot sem fer rétt fram hjá.
27. mín
Ingibjörg Lúcía með hörkuskot utan að velli sem fer rétt yfir.
27. mín
Gyða fær boltann frá Snædísi og er kominn upp að endalínu og ætlar að setja boltann út í teiginn en sendingin er ekki föst og Áslaug setu boltann í horn.
26. mín
Selfoss á hornspyrnu sem Auður tekur, spyrnunan hjá Auði er mjög góð beint Áslaugu sem er nálægt því að setja boltann í markið en varnarmenn Stjörnunar komast fyrir boltann og Selfoss fær annað horn.
22. mín
Barbára með fyrirgjöf sem fer í Sædísi og Selfoss fær horn.
21. mín
Heiða Ragney með langann bolta fram á Gyðu en Áslaug Dóra gerir vel og setur hausinn í boltann.
20. mín
Stjarnan vinnur hornspyrnu eftir fyrirgjöf frá Sædísi, Gyða tekur hornið og Selfyssingar eru fyrstir á boltann og koma honum frá.
17. mín MARK!
Heiða Ragney Viðarsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Betsy Doon Hassett
Heiða Rangey með glæsilegt skot inni í teig eftir sendingu frá Betsy, fastur bolti í fjærhornið.
12. mín
Gyða Kristín með góðann sprett upp í horn og setur boltan út í teiginn, aðeins of aftarlega fyrir Betsy sem nær þó skotinu, boltinn berst af Tiffany út á Jasmín sem á skot fram hjá.
10. mín
Sædís á fyrirgjöf á fjjærstönginga sem Gyða nær ekki til.
10. mín
Katrín með boltann upp við hornfána og setur boltann í varnarmann Selfoss og út af í horn.
8. mín
Miranda með frábæra sendingu í hlaupaleiðina fyrir Brennu en Brenna bara gleymir boltanum.
7. mín
Eftir mikið klafs inni í teig Stjörnukvenna kemur Málfríður boltanum frá á Katrínu sem sendir boltann inn fyrir á Jasmínu sem er rangstæð.
3. mín
Selfoss á horn sem Auður tekur en Stjörnukonur koma boltanum frá.
2. mín
Stjarnan vinnur fyrstu hornspyrnu leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Selfoss byrjar með boltann.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár,
Stjarnan gerir eina breytingu á byrjunarliði sínu frá sigrinum í Mosfellsbæ, Eyrún Embla Hjartardóttir kemur inn fyrir Hildigunni Ýr Benediktsdóttur.
Selfoss gerir einnig breytingar á sínu liði, þær Katrín Ágústsdóttir og Auður Helga Halldórsdóttir koma inn fyrir Írisi Unu Þórðardóttur og Susönnu Joy Friedrichs.
Fyrir leik
Selfoss
Selfoss er eina lið deildarinnar sem hefur enn ekki tapað leik í deildinni, þær sitja í 2. sæti deildarinnar eftir að hafa unnið þrjá leiki og gert tvö jafntefli.

Í síðustu umferð fengu þær Keflvíkinga í heimsókn þar sem liðin markalaust jafntefli.

Auk þess að vera eina taplausa lið deildarinnar hafa Selfyssingar markahæsta leikmann deidlarinnar innan sinna raða en Brenna Lovera hefur skorað fimm mörk í sumar, mest allra.


Fyrir leik
Stjarnan
Eftir 5 umferðir sitja Stjörnukonur í 5. sæti deildarinnar með 7 stig, en þær hafa unnið tvo leki gert eitt jafntefli og tapað tveimur leikjum.

Í síðustu umferð mætti liðið Aftureldingu í Mosfellsbæ. Jasmín Erla skoraði fyrsta mark leiksins eftir hálftíma leik en Mosfellingar voru fljótir að jafna og var staðan 1-1 allt fram á 85. mínútu þegar Jasmín Erla bætti við örðu marki, Katrín Ásbjörndsdóttir gulltryggði Stjörnukonum síðan 3-1 sigur í uppbótartíma.


Fyrir leik
Dómari leiksins er Ásmundur Þór Sveinsson honum til aðstoðar eru þeir Ragnar Arelíus Sveinsson og Friðleifur Kr Friðleifsson, eftirlitsmaður er Ólafur Ingi Guðmundsson.

Fyrir leik
Góða kvöldið kæru lesendur og velkomin í beina textalýsingu frá Samsungvellinum í Garðabæ.

Klukkan 19:00 hefst viðureign Stjörnunar og Selfoss í 6. umferð Bestu deildar kvenna.
Byrjunarlið:
1. Tiffany Sornpao (m)
3. Sif Atladóttir
6. Bergrós Ásgeirsdóttir
8. Katrín Ágústsdóttir ('80)
10. Barbára Sól Gísladóttir ('45)
18. Magdalena Anna Reimus
20. Miranda Nild
22. Brenna Lovera
23. Kristrún Rut Antonsdóttir
24. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
25. Auður Helga Halldórsdóttir ('67)

Varamenn:
13. Karen Rós Torfadóttir (m)
2. Brynja Líf Jónsdóttir
4. Íris Una Þórðardóttir ('45)
5. Susanna Joy Friedrichs
9. Embla Dís Gunnarsdóttir ('80)
17. Íris Embla Gissurardóttir
19. Eva Lind Elíasdóttir ('67)

Liðsstjórn:
Björn Sigurbjörnsson (Þ)
Katrín Ýr Friðgeirsdóttir
Elías Örn Einarsson
Svandís Bára Pálsdóttir
Hafdís Jóna Guðmundsdóttir
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: