Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Fylkir
2
1
ÍBV
Tómas Bent Magnússon '36
Mathias Laursen '44 1-0
Ásgeir Eyþórsson '47 2-0
2-1 Alex Freyr Hilmarsson '83
25.05.2022  -  17:00
Würth völlurinn
Mjólkurbikar karla
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Maður leiksins: Ásgeir Eyþórsson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
Daði Ólafsson ('79)
Ragnar Bragi Sveinsson
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
4. Arnór Gauti Jónsson
5. Orri Sveinn Stefánsson
9. Mathias Laursen ('61)
10. Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('67)
11. Þórður Gunnar Hafþórsson
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson

Varamenn:
12. Guðmundur Rafn Ingason (m)
3. Unnar Steinn Ingvarsson ('67)
10. Benedikt Daríus Garðarsson ('61)
15. Axel Máni Guðbjörnsson
20. Hallur Húni Þorsteinsson
22. Ómar Björn Stefánsson
27. Arnór Breki Ásþórsson ('79)

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Olgeir Sigurgeirsson (Þ)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Óðinn Svansson
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Halldór Steinsson
Michael John Kingdon

Gul spjöld:
Mathias Laursen ('19)
Orri Sveinn Stefánsson ('41)
Arnór Gauti Jónsson ('59)
Ómar Björn Stefánsson ('79)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Frábær sigur Fylkis. Takk fyrir samfylgdina.
93. mín
ÍBV fá færi!
Guðjón skallar boltann en Óli ver.
90. mín
Uppbótartíminn að minnsta kosti fjórar mínútur.
89. mín
Elvis brýtur á Ómari.
85. mín
FRÁBÆRT FÆRI!
Nikulás skýtur og Guðjón ver knöttinn út í teiginn þar sem Ómar stendur og þrumar á markið en nær ekki að skora.
83. mín MARK!
Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV)
Alex skorar eftir hornspyrnu. ÍBV að lífga upp á seinustu mínúturnar.
83. mín
Elvis sækir aðra hornspyrnu.
82. mín
Halldór Jón sækir hornspyrnu.
80. mín
Andri tekur spyrnuna og Ólafur ver mjög vel.
80. mín
Andri Rúnar sækir aukaspyrnu á mjög hættulegum stað.
79. mín Gult spjald: Ómar Björn Stefánsson (Fylkir)
Tvöföld skipting.
79. mín
Inn:Arnór Breki Ásþórsson (Fylkir) Út:Daði Ólafsson (Fylkir)
78. mín Gult spjald: Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV)
77. mín
Inn:Halldór Jón Sigurður Þórðarson (ÍBV) Út:Telmo Castanheira (ÍBV)
75. mín
FÆRI!
Virkilega góð sending hjá Orra Sveini í hlaupaleið Benedikts sem skýtur en Guðjón ver meistaralega. Horn.
73. mín
Hornið kemur inn og Fylkismenn koma boltanum út fyrir sinn markteig en þar stendur Telmo sem skýtur viðstöðulaust, á lofti rétt framhjá.
72. mín
Andri Rúnar og Atli spila snyrtilegan þríhyrning sín á milli sem endar með skoti frá Atli sem Óli ver í horn.
70. mín
Atli Hrafn brýtur á Ragnari Braga rétt fyrir utan markteig Fylkis.
67. mín
Inn:Unnar Steinn Ingvarsson (Fylkir) Út:Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir)
64. mín
Felix sólar varnarmenn Fylkis upp úr skónum og á svo skot rétt framhjá markinu!
63. mín
Gestirnir líflegri þessa stundina.
61. mín
Inn:Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir) Út:Mathias Laursen (Fylkir)
Skynsamleg ákvörðun enda nýstiginn upp úr meiðslum.
60. mín
Eyjamenn taka hornspyrnuna og vilja meina að boltinn hafi farið í hendina á Daða.
59. mín
Felix kemur knettinum inn á teiginn en Ragnar skallar hann í horn.
59. mín Gult spjald: Arnór Gauti Jónsson (Fylkir)
Brýtur á Atla rétt fyrir utan teig.
58. mín
Þórður Gunnar á lasut skot í átt að marki gestanna sem Guðjón ver auðveldlega.
56. mín
Boltinn kemur inn fyrir á Andra Rúnar sem telur Arnór Gauta hafa brotið á sér en dómarinn dæmir ekki. Andri öskureiður yfir þeirri ákvörðun Einars dómara.
51. mín
MARK eða hvað?!
Boltinn kemur inn á teiginn og Alex skallar hann í átt að Andra Rúnari sem skorar en búið að dæma rangstæðu.
51. mín
Gestirnir sækja horn sem Atli Hrafn tekur.
47. mín MARK!
Ásgeir Eyþórsson (Fylkir)
Stoðsending: Daði Ólafsson
Enn og aftur er Daði að gefa hættulega sendingu upp úr horni. Ásgeir nær frábærum skalla í slánna og inn. Þriðja mark hans á tímabilinu.
47. mín
Nikulás Val gefur sendingu inn fyrir í átt að Ragnari sem sólar markvörðinn og kemur skoti á markið en Eyjamenn sparka boltanum út í horn.
46. mín
Leikurinn hafinn á ný. Heimamenn sækja í átt að Árbæjarlaug.
46. mín
Inn:Andri Rúnar Bjarnason (ÍBV) Út:Sito (ÍBV)
Tvöföld skipting.
46. mín
Inn:Guðjón Ernir Hrafnkelsson (ÍBV) Út:Hans Mpongo (ÍBV)
45. mín
Hálfleikur
1-0 fyrir heimamönnum er liðin ganga til búningsherbergja. Hvet alla sem eru á vellinum að næla sér í heitan hamborgara og með því.
45. mín
Uppbótartíminn að minnsta kosti þrjár mínútur.
44. mín MARK!
Mathias Laursen (Fylkir)
Frábær spyrna hjá Daða. Orri skallar og Guðjón ver en það dugar ekki til þar sem að Mathias nær á einhvern hátt að pota boltanum inn.
44. mín
Þórður aleinn út til hægri og þrumar knettinum að markinu en Guðjón ver enn og aftur. Horn.
42. mín
Eyjamenn eiga aukaspyrnu á ógnandi stað en Eiður Aron neglir boltanum svo langt yfir. Lenti líklega í Árbæjarlauginni þessi.
41. mín Gult spjald: Orri Sveinn Stefánsson (Fylkir)
Orri alltof seinn og brýtur á Atla.
38. mín
Inn:Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV) Út:Arnar Breki Gunnarsson (ÍBV)
Í kjölfar spjaldsins gerir Hemmi breytingu á liðinu.
36. mín Rautt spjald: Tómas Bent Magnússon (ÍBV)
RAUTT SPJALD!
Tómas brýtur mjög harkalega á Nikulási við miðjuna og uppsker sitt annað gula spjald.
35. mín
Arnór Gauti gefur boltann frá sér í tvígang en gestirnir ná ekki búa til neitt úr því.
32. mín
Daði kemur knettinum inn á teiginn, Eyjamenn sparka honum út fyrir boxið þar sem Birkir stendur aleinn og skýtur. Guðjón ver.
32. mín
Birkir sækir horn fyrir Fylki. Daði tekur.
29. mín
Arnór gefur hann fyrir á Nikulás sem setur hann beint á markmanninn.
27. mín
Mathias lendir í samstuði við Elvis. Leikurinn stopp.
25. mín
Þórður hleypur upp kantinn og kemur sér í stöðu inn á teignum, skýtur en boltinn fer í varnarmann.
25. mín
Atli Hrafn á skot í varnarmann og út fyrir. Horn.
24. mín
Arnór tekur langt innkast inn á teiginn og Mathias nær fyrstur til boltans og skýtur beint á Guðjón Orra.
23. mín Gult spjald: Tómas Bent Magnússon (ÍBV)
Rífur Nikulás niður.
22. mín
Þórður Gunnar gefur hættulega sendingu inn á teiginn en Elvis kemur til bjarga.
19. mín Gult spjald: Mathias Laursen (Fylkir)
Ansi heimskulegt brot hjá Mathiasi sem braut á Eiði.
18. mín
Hans leikur listir sínar með boltann á hægri vængnum og gefur hann út á Tómas sem skýtur framhjá.
16. mín
Birkir vill meina að Atli Hrafn hafi brotið á honum nálægt hornfánanum en dómarinn ekki á sama máli.
14. mín
Felix nær sendingu inn á teiginn og Arnar nær til boltans en Hans Mpongo brýtur á Ásgeiri Eyþórssyni.
11. mín
Elvis með góða fyrirgjöf inn á teiginn en Arnar né Atli ná til boltans.
8. mín
Hans sækir aukaspyrnu við miðjuna.
7. mín
Daði gefur hann inn en ekkert verður úr horninu.
6. mín
Nikulás gefur hættulega sendingu inn fyrir og Fylkismenn sækja horn.
5. mín
Birkir gefur inn fyrir á Mathias sem er rangstæður.
3. mín
Mathias nær boltanum við miðjuhringinn og sendir á Þórð sem gefur hann fyrir en Sigurður er mættur.
2. mín
Hans kemur með fyrirgjöf inn á teiginn en ekkert verður úr því.
1. mín
Eiður Aron brýtur á Fylkismanni við miðjuhringinn.
1. mín
Eyjamenn sækja og Hans nær í horn. Ekkert verður úr því.
1. mín
Leikur hafinn
Jæja, nú hefjast leikar. Gestirnir byrja leikinn.
Albert Inga (A.I.) léttur fyrir leik kvöldsins.
Fyrir leik
Tvær breytingar á liði Fylkis frá seinasta leik. Arnór Gauti Jónsson og Mathias Laursen byrja leikinn í dag. Hallur Húni Þorsteinsson og Benedikt Daríus Garðarson fá sér sæti á bekknum.
Fyrir leik
Áhugaverð uppstilling hjá Hermanni Hreiðarssyni í dag. Guðjón Pétur Lýðsson er ekki í hóp og Andri Rúnar Bjarnason byrjar á bekknum.
Fyrir leik
Dómari leiksins er Einar Ingi Jóhannsson. Honum til aðstoðar er Egill Guðvarður Guðlaugsson sem gegnir hlutverki aðstoðardómara 1. Auk þess er Helgi Hrannar Briem aðstoðardómari 2.
Fyrir leik
Fróðlegt verður að fylgjast með þjálfaraslagnum í kvöld. Hinn þaulreyndi Rúnar Páll Sigmundsson sem er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Stjörnunni stýrir liði Fylkis.
Þjálfari gestanna er Hermann Hreiðarsson en hann þarf vart að kynna. Hann stýrði Þrótti Vogum upp í lengjudeild karla en færði sig svo um set. ÍBV hefur átt erfitt uppdráttar í bestu deildinni og situr í næstneðsta sæti.
Fyrir leik
Eins og ég kom inn á hefur Fylki gengið vel í upphafi tímabils og sitja í toppsætinu eftir tvo sigra og eitt jafntefli. Þeir teljast því nokkuð líklegir í að fara upp í deild þeirra bestu.
Fyrir leik
Verið velkomin/nn í beina textalýsingu frá leik Fylkis gegn ÍBV í Mjólkurbikar karla. Leikurinn fer fram á Wurth vellinum þar sem Fylkismönnum hefur gengið vel í byrjun tímabils. Gestirnir ættu þó að teljast líklegri þar sem að þeir spila í Bestu deildinni.
Byrjunarlið:
Guðjón Orri Sigurjónsson
2. Sigurður Arnar Magnússon
3. Felix Örn Friðriksson
8. Telmo Castanheira ('77)
9. Sito ('46)
14. Arnar Breki Gunnarsson ('38)
16. Tómas Bent Magnússon
22. Atli Hrafn Andrason
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson
27. Hans Mpongo ('46)
42. Elvis Bwomono

Varamenn:
4. Nökkvi Már Nökkvason
5. Jón Ingason
7. Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('46)
19. Breki Ómarsson
24. Óskar Elías Zoega Óskarsson
25. Alex Freyr Hilmarsson ('38)

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Björgvin Eyjólfsson
Andri Rúnar Bjarnason
David George Bell
Mikkel Vandal Hasling
Halldór Jón Sigurður Þórðarson
Elías Árni Jónsson

Gul spjöld:
Tómas Bent Magnússon ('23)
Eiður Aron Sigurbjörnsson ('78)

Rauð spjöld:
Tómas Bent Magnússon ('36)