Vivaldivöllurinn
miðvikudagur 03. maí 2023  kl. 19:15
Besta-deild karla
Dómari: Erlendur Eiríksson
Maður leiksins: Arnþór Ari Atlason
KR 0 - 1 HK
0-1 Arnþór Ari Atlason ('8)
Jakob Franz Pálsson, KR ('50)
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Byrjunarlið:
1. Simen Lillevik Kjellevold (m)
4. Jóhannes Kristinn Bjarnason ('57)
5. Jakob Franz Pálsson
7. Finnur Tómas Pálmason
8. Olav Öby
11. Kennie Chopart (f)
16. Theodór Elmar Bjarnason
19. Kristinn Jónsson
20. Benoný Breki Andrésson ('46)
23. Atli Sigurjónsson
29. Aron Þórður Albertsson ('89)

Varamenn:
13. Aron Snær Friðriksson (m)
10. Kristján Flóki Finnbogason ('57)
14. Ægir Jarl Jónasson ('89)
17. Luke Rae
26. Hrafn Tómasson
30. Rúrik Gunnarsson
33. Sigurður Bjartur Hallsson ('46)

Liðstjórn:
Valgeir Viðarsson
Rúnar Kristinsson (Þ)
Kristján Finnbogi Finnbogason
Friðgeir Bergsteinsson
Sigurður Jón Ásbergsson
Melkorka Rán Hafliðadóttir
Ole Martin Nesselquist

Gul spjöld:
Aron Þórður Albertsson ('26)
Simen Lillevik Kjellevold ('51)
Kennie Chopart ('85)
Finnur Tómas Pálmason ('95)
Theodór Elmar Bjarnason ('95)

Rauð spjöld:
Jakob Franz Pálsson ('50)
@saebjornth Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
96. mín Leik lokið!
BÚIÐ!
Eyða Breyta
95. mín Gult spjald: Finnur Tómas Pálmason (KR)

Eyða Breyta
95. mín
Elmar lætur vaða en skotið í varnarmann.
Eyða Breyta
95. mín Gult spjald: Theodór Elmar Bjarnason (KR)
Vildi fá hagnaðinn... held ég.
Eyða Breyta
94. mín
Elmar fær aukaspyrnu.
Eyða Breyta
92. mín
KRingar klaufar í uppspilinu, ná ekki að byggja upp.
Eyða Breyta
91. mín
Fimm mínútur í uppbót

Eyða Breyta
89. mín Ægir Jarl Jónasson (KR) Aron Þórður Albertsson (KR)

Eyða Breyta
88. mín
Atli Þór skorar en brot dæmt
Brotið dæmt á Ívar Orra gegn Simen. Ómar allt annað en sáttur!
Eyða Breyta
87. mín
Atli Þór reynir að klippa boltann í netið en er dæmdur brotlegur.
Eyða Breyta
86. mín
KR fær horn. HK hreinsar.
Eyða Breyta
85. mín Gult spjald: Kennie Chopart (KR)
Pirringsbrot.
Eyða Breyta
83. mín
Síðasta verk Eyþórs var að vinna aukaspyrnu. Heimamenn allt annað en sáttir.
Eyða Breyta
83. mín Atli Þór Jónasson (HK) Eyþór Aron Wöhler (HK)

Eyða Breyta
83. mín Ívar Orri Gissurarson (HK) Atli Hrafn Andrason (HK)

Eyða Breyta
81. mín
Sigurður Bjartur í færi og KR fær horn. HK nær að verjast.
Eyða Breyta
81. mín
Stöngin
Flóki reynir að leggja boltann í markið fyrir utan teig en skotið í stöngina!!!!
Eyða Breyta
80. mín
Þruma
Kristján Flóki með þrumuskot en það fer framhjá.
Eyða Breyta
78. mín
Nokkuð þung sókn hjá KR í kjölfarið en engin tilraun á markið.
Eyða Breyta
77. mín
Flott skyndisókn en Sigurður Bjartur gerir vel að keyra til baka og stöðvar þessa sókn HK.
Eyða Breyta
72. mín
Ívar með hornspyrnu, Simen nær ekki til boltans, dettur og KR fær markspyrnu. Hélt að HK fengi aðra hornspyrnu þarna.
Eyða Breyta
71. mín
Hendi???
KRingar vilja fá hendi á Örvar í eða alveg við vítateig HK. Sá þetta illa.
Eyða Breyta
70. mín
Út af með hræið er kallað úr stúkunni. Birkir Valur settist niður og fær aðhlynningu.
Eyða Breyta
66. mín Brynjar Snær Pálsson (HK) Marciano Aziz (HK)

Eyða Breyta
65. mín
Kiddi lætur vaða á lofti eftir spyrnu Atla Sigurjóns. Skot beint í varnarmann.
Eyða Breyta
65. mín
KR fær horn á annarri hverri mínútu núna.
Eyða Breyta
61. mín
Sigurður Bjartur að valda usla. Vinnur horn.

Örvar nær fyrsta skalla eftir hornið og svo handsamar Arnar boltann.
Eyða Breyta
61. mín
Tilraun
Aukaspyrnan slök og beint í vegginn. Boltinn hrekkur á Elmar sem á skot beint á Arnar.
Eyða Breyta
60. mín
Atli Hrafn brýtur á Atla Sigurjóns. Erlendur lengi að dæma en gerði það þó.
Eyða Breyta
58. mín
HK vill víti en það er ekkert í þessu. Eyþór hljóp á Kennie.
Eyða Breyta
57. mín
Ívar með fyrirgjöf, HK nær flikki á nær en svo hreinsa heimamenn.
Eyða Breyta
57. mín Kristján Flóki Finnbogason (KR) Jóhannes Kristinn Bjarnason (KR)

Eyða Breyta
56. mín
Sigurður Bjartur dæmdur brotlegur gegn Leifi inná vítateig HK. KRingar ekki sáttir.
Eyða Breyta
55. mín
Atli Sigurjóns lætur vaða en þessi tilraun víðs fjarri.
Eyða Breyta
53. mín
Kennie fer í miðvörðinn, Elmar í bakvörðinn og Jóhannes á vinstri kantinn.
Eyða Breyta
52. mín
Marciano tekur aukaspyrnuna, lætur vaða en tilraunin yfir
Eyða Breyta
51. mín Gult spjald: Simen Lillevik Kjellevold (KR)
Fyrir mótmæli.
Eyða Breyta
50. mín Rautt spjald: Jakob Franz Pálsson (KR)
Tekur Atla Hrafn, sem er að sleppa í gegn, niður. Steig á hælinn á Atla sýndist mér.
Eyða Breyta
49. mín
HK fær horn en þessi bolti fyrir fer yfir allan pakkann.
Eyða Breyta
48. mín
Tréverkið!
Arnþór Ari með gott skot sem fer framhjá Simen en í tréverkið!
Eyða Breyta
47. mín
Aðsendur moli

Benoný Breki, sem spilaði fyrri hálfleikinn hjá KR, er uppalinn hjá Gróttu og er náfrændi Kjartans Kára sem nú spilar á láni frá Haugasundi hjá FH.
Eyða Breyta
46. mín
KR með góða sókn upp hægri vænginn, góð fyrirgjöf og svo skalli rétt yfir frá Jóhannesi.
Eyða Breyta
46. mín
Strax sótt
Marci með fínustu tilraun eftir gott spil HK strax í byrjun seinni. Simen varði vel.
Eyða Breyta
46. mín
Seinni hafinn

Eyða Breyta
46. mín Sigurður Bjartur Hallsson (KR) Benoný Breki Andrésson (KR)

Eyða Breyta
45. mín Hálfleikur
Fyrri hálfleik lokið, HK leiðir!

Rúnar gekk til Erlends eftir flautið og fór yfir málin. Ég gæti trúað því að bæði augun verði á Eyþóri og hans varnartilburðum í seinni.
Eyða Breyta
45. mín Gult spjald: Arnþór Ari Atlason (HK)
Atli Arnars með lélega sendingu og Arnþór greip strax í Elmar.
Eyða Breyta
45. mín
Þremur mínútum bætt við.
Eyða Breyta
45. mín
Rúnar Kristins allt annað en sáttur við Erlend. Finnst Eyþór fá að halda í og toga alltof mikið.
Eyða Breyta
45. mín
Kennie með skot sem fer framhjá. Lítil hætta en allt í lagi pæling svo sem.
Eyða Breyta
43. mín
Færi
Vel gert hjá HK. Langur bolti yfir á Örvar úti hægra megin, hann á fyrirgjöf sem Eyþór skallar rétt framhjá.
Eyða Breyta
41. mín
Elmar allt annað en sáttur, vildi fá aukaspyrnu við vítateig HK, fékk ekki og lætur Erlend vita að þetta var meira en ekkert.
Eyða Breyta
40. mín
KRingar í stúkunni syngja 'Blika reject' um Eyþór Wöhler.
Eyða Breyta
39. mín
Örvar er mættur aftur inná, alls engin tognun.
Eyða Breyta
36. mín
Örvar nær ekki í háan bolta og liggur eftir. Grunar að þetta sé tognun.
Eyða Breyta
35. mín
HK fagnar fyrsta marki leiksins

Nýju treyjurnar ekki lengi að skila marki. Eyjólfur Garðarsson ljósmyndari tók þessa mynd.
Eyða Breyta
Elvar Geir Magnússon
34. mín
Olav með skot í varnarmann, boltinn fellur vel fyrir gestina og Eyþór kemst í góða stöðu úti á hægri kanti. Hann tekur Jóhannes á og kýs svo að dúndra boltanum fyrir, ekki viss hvað þetta átti að vera. Beint í innkast.
Eyða Breyta
31. mín
Vel spilað!
Kennie finnur Aron Þórð inn á teignum. Aron lætur vaða en Arnar gerir vel, ver og heldur boltanum. Ekkert frábært slútt.
Eyða Breyta
30. mín
Miðjan lætur vel í sér heyra

Eyða Breyta
28. mín
Fín sókn hjá HK, fyrirgjöf fyrst og svo skot. Ekkert á markið samt.

Arnþór kemur svo í veg fyrir að Atli finni Benoný í gegn hinu megin.
Eyða Breyta
26. mín Gult spjald: Aron Þórður Albertsson (KR)
Brýtur á Atla Arnars sem þarf aðhlynningu. Verðskuldað gult fannst mér.
Eyða Breyta
25. mín
Arnþór með flotta sendingu inn á Atla Hrafn en fyrirgjöfin hans hittir ekki á Örvar.
Eyða Breyta
23. mín
Atli Arnars með fyrirgjöf sem Eyþór nær ekki að stýra að marki KR.
Eyða Breyta
21. mín
Tvær misheppnaðar stungusendingar. Örvar reyndi að finna Eyþór en tókst ekki. Marciano ósáttur að fá ekki boltann.

Jóhannes reyndi svo að finna Atla í gegn en tókst ekki. Aron Þórður ósáttur.
Eyða Breyta
19. mín
HK fær aukaspyrnu úti á hægri kantinum. Ívar með boltann inn á teig, Jakob skallar til hliðar, Arnþór reynir aðra fyrirgjöf, Ahmad nær til boltans en skallinn laus og Simen getur tekið boltann upp.
Eyða Breyta
18. mín
Leifut segir sínum mönnum að slaka á, enginn þarf að drífa sig.
Eyða Breyta
17. mín
Sókn KR þyngist
Kiddi með flottan bolta á fjær, Aron Þórður reynir að láta vaða á lofti en skotið misheppnað.
Eyða Breyta
16. mín
Hætta
Atli með djúpan bolta á fjær, T. Elmar nær skalla fyrir, Arnar er í allskonar vandræðum með boltann en Ahmad nær að hreinsa. Kennie reynir svo skot fyrir utan teig en slæsar boltann.
Eyða Breyta
13. mín
KR fær horn. Besta sókn heimamanna í leiknu. Kiddi fyrst með fínan bolta og svo á Atli fyrirgjöf sem Ahmad þarf að skalla aftur fyrir.

Ekkert kom upp úr þessu horni.
Eyða Breyta
10. mín
Örvar í fínu hlaupi og á fyrirgjöf en KR-ingar ná að hreinsa.
Eyða Breyta
8. mín MARK! Arnþór Ari Atlason (HK), Stoðsending: Leifur Andri Leifsson
Fyrsta markið!!!
Leifur með langa sendingu inn á teig KR. Bras á varnarleik heimamanna, Arnþór kemur sér í skotstöðu og á skot sem fer yfir Simen í markinu!

Arnþór heppinn með skoppið, Kiddi kannski svolítið 'soft' í sínum varnarleik og svo smá spurning hvort Simen megi ekki bara verja þetta!
Eyða Breyta
6. mín
Fyrsta hættulega tilraunin
Ívar gerir ágætlega úti hægra megin (óvænt) kemur aðeins inn á völlinn og lætur vaða. Skotið rétt yfir mark KR.
Eyða Breyta
4. mín
HK
Arnar
Birkir-Ahmad-Leifur-Ívar
Atli
Arnþór-Marciano
Örvar-Eyþór-Atli Hrafn

Eyða Breyta
3. mín
KR fær fyrstu hornspyrnuna. Skot af varnarmanni sem fer aftur fyrir. Kom ekkert upp úr horninu.
Eyða Breyta
2. mín
KR
Simen
Kennie-Finnur-Jakob-Kristinn
Olav
Aron-Jóhannes
Atli-Benoný-Theodór
Eyða Breyta
1. mín Leikur hafinn
KR byrjar með boltann

Eyða Breyta
Fyrir leik
Aðstæður
Gervigras, átta gráðu hiti, skýjað og smá gola.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn, KR í hefðbundnu svörtu og hvítu. HK er í nýju Sampdoria búningunum.

Heyr mína bæn í hátalarakerfinu.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Tvær breytingar hjá KR
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, gerir tvær breytingar frá tapinu gegn FH í síðustu umferð. Kristján Flóki Finnbogason og Ægir Jarl Jónasson taka sér sæti á bekknum. Inn koma Benoný Breki og Aron Þórður.

Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, gerir engar breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn Fylki í síðustu umferð. Byrjunarliðið er eins og sömu sjö á bekknum.
Eyða Breyta
Fyrir leik

Eyða Breyta
Fyrir leik
Dómarateymið

Erlendur Eiríksson er með flautuna, Andri Vigfússon og Patrik Freyr Guðmundsson eru aðstoðardómarar, Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er varadómari og Viðar Helgason er eftirlitsmaður KSÍ.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Luke Rae snýr til baka á sinn gamla heimavöll
Hann fór á kostum með Gróttu í Lengjudeildinni í fyrra og snýr nú aftur á sinn gamla heimavöll á Seltjarnarnesinu. Luke hefur verið í hlutverki varamanns í upphafi tímabils, fær hann mínútur til að nýta í kvöld?
Eyða Breyta
Fyrir leik
Örvar skorað í öllum leikjunum
Örvar Eggertsson hefur skorað fjögur mörk í deildinni til þessa, eitt mark í hverjum leik.

,,Við vorum að vonast eftir þessu. Við bjuggumst við því að þetta gæti gerst. Það er bara frábært hvernig hann fer af stað inn í tímabilið og núna er það bara undir honum og okkur komið að þetta haldi svona áfram," sagði Ómar þjálfari HK eftir síðasta leik.
Eyða Breyta
Fyrir leik

Eyða Breyta
Fyrir leik

Eyða Breyta
Fyrir leik
Fleiri myndir frá Eyjólfi


Eyða Breyta
Fyrir leik
PBT spáir útisigri
Patrik Atlason, prettyboitjokko, spáir útisigri.

KR 0 - 3 HK
HK með the OGPBT Eyþór Wöhler þannig þetta er 3-0 alltaf.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Sýnilega heimaleikur KR



Eyjólfur Garðarsson tók þessar myndir í dag
Eyða Breyta
Fyrir leik
Vivaldivöllurinn


Eyða Breyta
Fyrir leik
Síðasta umferð
KR tapaði gegn FH í síðustu umferð og var það annað 3-0 tapið í röð. Sá leikur fór fram á Miðvellinum og sveið örugglega aukalega að KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason skoraði tvö af mörkum FH í leiknum. KR er með fjögur stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar sem er rýr uppskera á þeim bænum.

HK vann hins vegar Fylki í nýliðaslag, 1-0, með marki frá Örvari Eggertsyni. HK er með sjö stig eftir fjórar umferðir sem er meira en langflestir bjuggust við. Það var heppnisstimpill í sigurmarkinu í síðasta leik en HK-ingar tóku stigin og það er það sem skiptir þá máli.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Spilað á Seltjarnesi
Góðan kvöldið lesendur kærir. Eins og fjallað hefur verið um og sést hér að ofan þá fer leikurinn í kvöld fram á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi, heimavelli Gróttu. Það er vegna þess að grasið á heimavelli KR, Meistaravöllum, er ekki klárt og því voru grannarnir á Seltjarnesi hleraðir og þeirra völlur fenginn að láni. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og er liður í 5. umferð Bestu deildar karla.

Eyða Breyta
Fyrir leik
Sampdoria bragur á HK

Eyða Breyta
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Textalýsingar kvöldsins
18:00 Fram - ÍBV
18:00 KA - FH
19:15 KR - HK
20:15 Fylkir - Valur
Eyða Breyta
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
4. Leifur Andri Leifsson (f)
5. Ahmad Faqa
6. Birkir Valur Jónsson
7. Örvar Eggertsson
8. Arnþór Ari Atlason
10. Atli Hrafn Andrason ('83)
11. Marciano Aziz ('66)
18. Atli Arnarson
21. Ívar Örn Jónsson
77. Eyþór Aron Wöhler ('83)

Varamenn:
12. Stefán Stefánsson (m)
3. Ívar Orri Gissurarson ('83)
14. Brynjar Snær Pálsson ('66)
19. Birnir Breki Burknason
20. Ísak Aron Ómarsson
23. Hassan Jalloh
30. Atli Þór Jónasson ('83)

Liðstjórn:
Ómar Ingi Guðmundsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Sandor Matus
Birkir Örn Arnarsson
Ísak Jónsson Guðmann
Kári Jónasson
Jón Stefán Jónsson

Gul spjöld:
Arnþór Ari Atlason ('45)

Rauð spjöld: