Guehi vill fara til Liverpool - Viðræður við Gordon ganga illa - Man Utd skoðar stjóra
Selfoss
0
0
KFA
27.09.2024  -  19:15
Laugardalsvöllur
Fótbolti.net bikarinn
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
KFA vilja bjarga sumrinu Arek Grzelak, fyrirliði KFA og Eggert Gunnþór Jónsson spilandi þjálfari KFA mættu í viðtöl varðandi leikinn í gær.

Eggert Gunnþór tók við sem aðalþjálfari liðsins í ágúst.




Fyrir leik
Selfyssingar spenntir fyrir leiknum Aron Fannar Birgisson leikmaður Selfoss og Bjarni Jóhannsson þjálfari Selfyssinga mættu í viðtöl í gær.




Fyrir leik
Leiðin á Laugardalsvöll Leið Selfoss í úrslitaleikinn

Selfoss vann 2. deildina í sumar og getur liðið fullkomnað tímabilið með því að vinna bikarinn á föstudagskvöld.

Selfoss vann 3-2 útisigur á Ægi í grannaslag í 32-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins þar sem Gonzalo Zamorano skoraði tvívegis af vítapunktinum eftir að Ægir komst tveimur mörkum yfir. Sesar Örn Harðarson skoraði sigurmarkið.

Í 16-liða úrslitum vann Selfoss 3-1 sigur gegn KFG með mörkum Nacho Gil, Gonzalo Zamorano og Alexander Clive Vokes.

Í 8-liða úrslitum vann Selfoss 3-2 gegn Haukum. Sesar Örn Harðarson skoraði tvívegis og Gonzalo Zamorano eitt.

Í undanúrslitum síðasta laugardag vann Selfoss svo 4-1 gegn Árbæ. Gonzalo Zamorano skoraði tvö mörk og hefur því skorað í öllum umferðum keppninnar í ár. Alexander Clive Vokes og Aron Fannar Birgisson skoruðu hin mörk Selfyssinga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Leið KFA í úrslitaleikinn

Austfirðingar enduðu í fimmta sæti 2. deildar og náðu ekki því markmiði sínu að komast upp um deild.

Abdelhadi Khalok skoraði þrennu þegar KFA vann 6-3 sigur gegn ÍH í 32-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins. Julio Fernandes, Nenni Þór Guðmundsson og Arnór Pálmi Kristjánsson komust einnig á blað fyrir KFA.

KFA átti ekki í nokkrum vandræðum með Ými í 16-liða úrslitum og vann 6-0 stórsigur. Daníel Michal Grzegorzsson sem fæddur er 2009 kom af bekknum og skoraði.
Jafnaldri hans Nenni Þór Guðmundsson lék svo sama leik þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu. Marteinn Már Sverrisson skoraði tvö í leiknum og þeir Julio Fernandes og Þór Sigurjónsson skoruðu sitt markið hvor.

Í 8-liða úrslitum vann KFA 3-1 útisigur gegn Augnabliki í Fífunni. Jacques Fokam Sandeu, Birkir Ingi Óskarsson og Eiður Orri Ragnarsson skoruðu mörkin.

Í undanúrslitum lenti KFA undir gegn Tindastóli en vann að lokum 2-1 sigur. Eiður Orri Ragnarsson og Marteinn Már Sverrisson með mörkin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Miðasala í fullum gangi Miðasala á leikinn fer fram á Tix.is

Leikurinn hefst 19:15, búist er við mikilli stemningu á Laugardalsvelli svo það er um að gera að skella sér á völlinn.

Leikurinn er einnig sýndur í beinni dagskrá á Stöð 2 Sport 5.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Úrslitaleikur ástríðunnar! Heilir og sælir lesendur góðir og veriði hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá úrslitaleik Fótbolta.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda.

Leikið er á Laugardalsvelli og eru það Selfoss og KFA sem leika til úrslita.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: