Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. janúar 2018 07:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Ashley Young og Naughton dæmdir í þriggja leikja bann
Young þarf að horfa á næstu þrjá leiki af hliðarlínunni
Young þarf að horfa á næstu þrjá leiki af hliðarlínunni
Mynd: Getty Images
Ashley Young, leikmaður Manchester United og Kyle Naughton, leikmaður Swansea hafa verið dæmdir í þriggja leikja bann af enska knattspyrnusambandinu.

Young var ákærður fyrir að gefa Dusan Tadic, leikmanni Southampton olnbogaskot á laugardag.

Þá var Naughton ákærður fyrir að traðka á Stefano Okaka, leikmanni Watford.

Báðir leikmenn játuðu brot sín og fengu fyrir það þriggja leikja bann.

Young mun missa af leikjum Man Utd gegn Everton í dag, Derby í þriðju umferð enska bikarsins og deildaleik gegn Stoke.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner