Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 01. janúar 2018 19:44
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Everton og Man Utd: Pogba bestur
Mynd: Getty Images
Paul Pogba var besti maður vallarins er Manchester United hafði betur gegn liðsfélögum Gylfa Þórs Sigurðssonar á Goodison Park.

Yannick Bolasie spilaði fyrir Gylfa, sem kom ekki við sögu í leiknum. Bolasie var meðal sprækustu manna heimamanna og fékk 7 í einkunn hjá Liverpool Echo.

James McCarthy, sem kom af bekknum til að leysa Wayne Rooney af hólmi snemma í síðari hálfleik, var besti maður Everton og fékk jafnháa einkunn og Pogba.

Nemanja Matic var slakastur í liði gestanna á meðan Rooney, Oumar Niasse og Mason Holgate voru verstir í röðum heimamanna.

Everton:
Jordan Pickford - 7
Mason Holgate - 5
Ashley Williams - 6
Michael Keane - 6
Cuco Martina - 7
Morgan Schneiderlin - 6
Tom Davies - 6
Yannick Bolasie - 7
Wayne Rooney - 5
Nikola Vlasic - 7
Oumar Niasse - 5
(Lennon 5, McCarthy 8, Calvert-Lewin 5)

Man Utd:
David de Gea - 6
Victor Lindelöf - 6
Phil Jones - 7
Marcos Rojo - 7
Luke Shaw - 6
Nemanja Matic - 5
Ander Herrera - 6
Paul Pogba - 8 Maður leiksins
Juan Mata - 7
Jesse Lingard - 7
Anthony Martial - 7
(Rashford 6, Blind 6)
Athugasemdir
banner
banner
banner