Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. janúar 2018 14:00
Elvar Geir Magnússon
Guardian velur Juan Mata fótboltamann ársins 2017
Juan Mata.
Juan Mata.
Mynd: Getty Images
Guardian hefur valið spænska leikmanninn Juan Mata hjá Manchester United sem fótboltamann ársins 2017.

Í vali Guardian er horft til þeirra leikmanna sem láta gott af sér leið og eru góðar fyrirmyndir.

Mata setti Common Goal verkefnið á laggirnar á árinu 2017 en þeir leikmenn sem fylgja fordæmi hans gefa 1% af launum sínum í góðgerðarmál.

Á innan við fimm mánuðum hafa 35 leikmenn frá 17 löndum slegist í hópinn, þar á meðal frá Íslandi.

Julian Nagelsmann, þjálfari Hoffenheim, varð fyrsti þjálfarinn til að taka þátt í Common Goal.
Athugasemdir
banner
banner