mán 01. janúar 2018 21:58
Ívan Guðjón Baldursson
Henry hrósar Pogba í hástert
Mynd: Getty Images
Thierry Henry er afar hrifinn af Paul Pogba, samlanda sínum hjá Manchester United.

Pogba var maður leiksins er Man Utd lagði Everton að velli á Goodison Park.

„Hann er afar fjölhæfur leikmaður og er uppá sitt besta vinstra megin á miðjunni," sagði Henry á Sky Sports.

„Hann og Lingard tengdu mjög vel á vinstri kantinum. Pogba var alltaf hættulegur.

„Það er varla hægt að spila gegn Pogba þegar hann er uppá sitt besta. Hann breytti leiknum og átti stóran þátt í sigrinum."


Pogba bar fyrirliðabandið og var Henry ánægður að sjá miðjumanninn leiða sína menn til sigurs.

„Þetta er það sem góðir fyrirliðar gera. Þegar það kemur að því að stíga upp, þá stígur fyrirliðinn upp og í kjölfarið byrja allir aðrir að spila betur. Hann bar sig eins og alvöru fyrirliða sæmir."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner