Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 01. janúar 2018 19:11
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Salah og Coutinho tæpir fyrir Everton
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp segist ekkert vita um Nike málið fræga, þar sem Nike auglýsti Barcelona treyjur með nafni Philippe Coutinho aftan á.

Coutinho var svo ekki í leikmannahópi Liverpool sem lagði Burnley að velli í dag, en Klopp segir hann ekki hafa verið með vegna meiðsla.

Mohamed Salah var einnig frá vegna meiðsla en þeir gætu báðir náð næsta leik gegn Everton.

„Ég heyrði af þessu en ég veit ekkert um málið. Að fylgjast með einhverju svona er það síðasta sem mér dettur í hug að gera. Mér var sagt frá þessu og ég husgaði 'Vá! Topp frétt!'" sagði Klopp um Nike málið og blés um leið á sögusagnir þess efnis að Coutinho væri farinn til Barcelona.

„Phil og Mo eru að glíma við lítilvægleg meiðsli og þeir eru tæpir fyrir leikinn gegn Everton."
Athugasemdir
banner
banner
banner