Stuðningsmenn Arsenal voru æfir út í Mike Dean dómara eftir að hann dæmdi West Bromwich Albion vítaspyrnu í viðureign liðanna í gær. Vítið kom seint í leiknum og úr því jafnaði West Brom í 1-1 sem urðu lokatölur.
Dean dæmdi hendi á Calum Chambers. Boltinn fór vissulega í hendi leikmannsins en hendin var ekki viljaverk og leikmaðurinn gerði sig ekki stærri.
Dean dæmdi hendi á Calum Chambers. Boltinn fór vissulega í hendi leikmannsins en hendin var ekki viljaverk og leikmaðurinn gerði sig ekki stærri.
WHAT A JOKE😂😂😂 pic.twitter.com/v4Tdz0biA9
— GoonerViews (@GoonerViews) December 31, 2017
„Dean gerði mistök," segir Keith Hackett, fyrrum dómari og núverandi dómarasérfræðingur hjá Telegraph.
„Dean var fljótur að benda á punktinn. Of fljótur að mínu mati. Chambers átti engan möguleika á því að taka hendina í burtu."
Hackett er hlynntur því að taka upp VAR, myndbandsdómgæslu.
„Mér finnst að í svona tilfellum eigi dómararnir að fá tækifæri til að skoða atvikin aftur með myndbandsupptöku."
Sjá einnig:
Wenger brjálaður: Úrvalsdeildin tekst ekki á við vandamálin
Athugasemdir