mán 01. janúar 2018 20:25
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho: Lingard er að taka stökkið
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho er ánægður með sína menn eftir 2-0 sigur á Everton í ensku úrvalsdeildinni.

Anthony Martial og Jesse Lingard sáu um markaskorunina. Paul Pogba stjórnaði leiknum frá miðjunni og lagði bæði mörkin upp.

„Við spiluðum þennan leik frábærlega. Það sáust engin þreytumerki hjá strákunum þrátt fyrir mikið magn yfir hátíðarnar," sagði Mourinho.

„Everton brást vel við fyrsta markinu í nokkrar mínútur en við vorum alltaf við stjórn. Við breyttum leikstílnum því við erum án Lukaku og ég er mjög ánægður með hvernig það gekk.

„Jesse Lingard er að taka stökkið. Hann hefur alltaf verið gífurlega efnilegur og núna er hann að breytast í frábæran leikmann. Hann skilur leikinn betur og stefnir í rétta átt."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner