Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 01. janúar 2018 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Birkir gerði sitt fyrsta mark
Mynd: Getty Images
Birkir Bjarnason gerði sitt fyrsta deildarmark fyrir Aston Villa í 5-0 sigri gegn Herði Björgvini Magnússyni og félögum í Bristol City.

Birkir kom af bekknum á 70. mínútu og skoraði fjórða mark Villa tveimur mínútum síðar.

Birkir fékk frábæra sendingu innfyrir frá Alan Hutton og kláraði af miklu öryggi. Markið er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Villa er í umspilsbaráttu og situr sem stendur í fimmta sæti, fimm stigum frá Derby sem er í öðru sæti.



Athugasemdir
banner
banner