mán 01. janúar 2018 13:00
Magnús Már Einarsson
Tadic steinhissa á olnbogaskotinu hjá Young
Dusan Tadic fagnar marki.
Dusan Tadic fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Dusan Tadic, leikmaður Southampton, segist hafa verið steinhissa þegar Ashley Young gaf honum olnbogaskot í markalausa jafnteflinu gegn Manchester United í fyrradag.

Young var í gær úrskurðaður í þriggja leikja bann eftir að sjónvarpsupptökur sýndu hann gefa Tadic olnbogaskot í magann áður en hornspyrna var tekin.

„Ég skildi þetta ekki. Ég hefði getað látið mig detta en þetta var skrýtið og ég bjóst ekki við þessu frá honum," sagði Tadic en hann segist ekki hafa gert neitt til að reita Young til reiði.

„Nei, nei, nei, ekkert. Ég var hissa og í næstu hornspyrnu spurði ég hann, 'af hverju gerðir þú þetta?" hann svaraði 'ég gerði ekkert.'

„Ég sagði þá 'gerðir þú ekkert? Þú gafst mér olnbogaskot í magann án ástæðu."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner