Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. janúar 2020 14:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Jón Daði kom ekki við sögu í sigri Milwall
Jón Daði spilaði ekki í dag.
Jón Daði spilaði ekki í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Millwall 3 - 1 Luton
0-1 Sonny Bradley ('41 )
1-1 Tom Bradshaw ('69 )
2-1 Connor Mahoney ('78 )
3-1 Matt Smith ('81 )

Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson kom ekki við sögu þegar Milwall lagði Luton að velli í Championship-deildinni í dag.

Það var Luton sem náði forystunni í leiknum þegar Sonny Bradley skoraði á 41. mínútu. Staðan var 1-0 fyrir gestina þegar dómarinn flautaði til leikhlés.

Á 69. mínútu jafnaði Tom Bradshaw fyrir Milwall og skoraði Connor Mahoney annað mark Milwall tæpum tíu mínútum síðar. Matt Smith bætti svo við þriðja markinu.

Flottur seinni hálfleikur Milwall sem skilaði þessum sigri og er liðið núna komið upp í sjötta sæti, sem er umpsilssæti. Luton er í næst neðsta sæti með 21 stig.

Jón Daði hefur komið við sögu í 17 leikjum af 26 á þessu tímabili, en hefur ekki enn skorað í deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner