Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. janúar 2020 20:34
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Toppliðin skildu jöfn
Semi Ajayi skoraði bæði fyrir WBA og Leeds
Semi Ajayi skoraði bæði fyrir WBA og Leeds
Mynd: Getty Images
West Brom 1 - 1 Leeds
1-0 Semi Ajayi ('2 )
1-1 Semi Ajayi ('52 , sjálfsmark)

West Brom og Leeds gerðu 1-1 jafntefli í toppslag ensku B-deildarinnar í kvöld en Semi AJayi sá um að skora bæði mörk leiksins.

Ayaji kom West Brom yfir strax á 2. mínútu leiksins í afar fjörugum leik en hann var aftur á ferðinni í upphafi síðari hálfleiks.

Hann varð þá fyrir því óláni að koma boltanum í eigið net eftir skalla Patrick Bamford á 52. mínútu.

1-1 jafntefli niðurstaðan en bæði lið eru með 52 stig í 1. og 2. sæti eftir 26 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner