Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. janúar 2020 23:37
Brynjar Ingi Erluson
„Ég hef ekki séð þennan Özil í eitt og hálft ár"
Rio Ferdinand
Rio Ferdinand
Mynd: Getty Images
Enski sparkspekingurinn Rio Ferdinand segir að Mikel Arteta, stjóri Arsenal, sé þegar farinn að hafa frábær áhrif á liðið.

Arteta náði í fyrsta sigurinn með Arsenal í kvöld er liðið vann 2-0 sigur á Manchester United.

Leikmenn Arsenal spiluðu afar vel og þá mátti sjá topp frammistöðu frá leikmönnum á borð við David Luiz, Granit Xhaka og Mesut Özil meðal annars, en þeir hafa verið afar gagnrýndir á þessu tímabili fyrir slakar frammistöður.

Özil var hæstánægður eftir leikinn og sýndi hlið af sér sem Ferdinand hefur ekki séð í langan tíma.

„Myndirnar sem við sáum þegar leikurinn var flautaður af þar sem Arteta fór inn á völlinn og brosið frá Özil, það er eitthvað sem ég hef ekki séð í eitt og hálft ár. Það segir manni ýmislegt. Hann nýtur þess að fara á æfingar og spila. Svo er Nicolas Pepe eins og nýr leikmaður og það kemur allt með Arteta," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner