Ryan Christie, miðjumaður Celtic, gæti verið á leið í tveggja leikja bann fyrir að grípa í kynfæri Alfredo Morelos, sóknarmanns Rangers.
Christie slapp við áminningu frá dómaranum í leiknum sjálfum, en hefur nú verið ákærður fyrir verknaðinn. Celtic segist ætla að verja sinn mann í málinu sem verður tekið fyrir 6. janúar.
Baráttan var hörð á milli Christie og Morelos í leiknum, en Christie þurfti að fara í aðgerð á nára eftir leikinn.
Rangers vann leikinn, sem fór fram 29. desember, 2-1. Morelos var vikið af velli með sitt seinna gula spjald undir lok leiksins.
Á síðasta ári slapp Morelos við refsingu fyrir svipað brot á Christie.
Hmmmmmm pic.twitter.com/sObzjUdzuw
— Ross Hughes (@RossHughes3) December 31, 2019
Athugasemdir