fös 01. janúar 2021 19:10
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Man Utd og Aston Villa: Solskjær gerir fjórar breytingar
Pogba heldur sætinu
Mynd: Getty Images
Manchester United tekur á móti Aston Villa í hörkuslag og hafa bæði byrjunarliðin verið staðfest.

Edinson Cavani er ekki í hópi hjá Rauðu djöflunum vegna leikbanns en Anthony Martial byrjar í fremstu víglínu með Bruno Fernandes og Marcus Rashford sér til stuðnings.

Paul Pogba heldur sæti sínu í byrjunarliðinu en Ole Gunnar Solskjær gerir fjórar breytingar á liðinu sem lagði Wolves að velli í vikunni.

Fred og Scott McTominay koma inn á miðjuna og auk Martial þá kemur Luke Shaw inn í liðið. Alex Telles, Nemanja Matic og Mason Greenwood detta á bekkinn.

Man Utd getur jafnað Englandsmeistara Liverpool á toppi úrvalsdeildarinnar með sigri í kvöld. Aston Villa er einnig í góðri stöðu í toppbaráttunni og getur sett mikla pressu á toppliðin með sigri.

Dean Smith gerir aðeins eina breytingu á liði Aston Villa þar sem Tyrone Mings kemur inn í hjarta varnarinnar eftir að hafa tekið út leikbann í síðustu umferð. Kortney Hause fer á bekkinn.

Man Utd: De Gea, Wan-Bissaka, Bailly, Maguire, Shaw, Fred, McTominay, Pogba, Fernandes, Rashford, Martial
Varamenn: Henderson, Greenwood, Mata, James, Van de Beek, Tuanzebe, Telles, Matic, Lingard

Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Mings, Targett, Luiz, McGinn, Grealish, Traore, El Ghazi, Watkins
Varamenn: Heaton, Taylor, Hourihane, Nakamba, Hause, Guilbert, Elmohamady, Davis, Ramsey
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner
banner