Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. janúar 2021 16:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ederson segist vera í einangrun
Missir hann af leikjum gegn Chelsea og Man Utd?
Missir hann af leikjum gegn Chelsea og Man Utd?
Mynd: Getty Images
Ederson, markvörður Manchester City, hefur greint frá því að hann sé í sóttkví.

Leik Manchester City og Everton sem átti að fara fram á dögunum var frestað vegna hópsmits hjá City. Fimm leikmenn og tveir starfsmenn greindust með veiruna.

Sjá einnig:
Moyes: Þeir stöðvuðu ekki leikina þegar við fengum Covid

Búið er að greina frá því að Gabriel Jesus og Kyle Walker séu á meðal þeirra sem smituðust, en Pep Guardiola, stjóri City, vildi ekki greina frá því hverjir hinir leikmennirnir eru.

Ederson talaði um það á samfélagsmiðlum að hann væri í einangrun og enskir fjölmiðlar velta því fyrir sér hvort að hann sé þá einn af leikmönnunum fimm sem er með veiruna. Hann mun líklega missa af leikjum City gegn Chelsea og Manchester United.


Athugasemdir
banner
banner
banner