Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 01. janúar 2021 18:50
Ívan Guðjón Baldursson
Fabianski meiddist í upphitun - Fredericks í sóttkví
Mynd: Getty Images
West Ham er að spila við Everton þessa stundina og er Ryan Fredericks ekki í hópi vegna Covid-19. Hann er ekki með veiruna en var í návist við einstakling sem smitaðist og fer því í sóttkví.

Fredericks hefur ekki fengið mikinn spiltíma á tímabilinu þar sem Vladimir Coufal hefur staðið sig prýðilega í stöðu hægri bakvarðar frá komu sinni frá Slavia Prag í október.

Þá datt Lukasz Fabianski einnig úr leikmannahópi West Ham. Hann meiddist í upphitun og er Darren Randolph á milli stanganna gegn Everton.

Fabianski og Fredericks verða því fjarri góðu gamni næstu leiki.
Athugasemdir
banner
banner