Sænskir miðlar greina frá því að Jón Guðni Fjóluson sé á leið til Hammarby á frjálsri sölu.
Jón Guðni er fjölhæfur varnarmaður sem getur leikið sem bakvörður, miðvörður og miðjumaður. Hann er 31 árs gamall og á 17 leiki að baki fyrir íslenska landsliðið.
Jón Guðni var mikilvægur hlekkur í liði Brann en þar áður spilaði hann fyrir Krasnodar í Rússlandi. Jón Guðni býr yfir mikilli reynslu úr sænska boltanum eftir dvöl sína hjá Sundsvall og Norrköping.
Sport Expressen greinir frá því að Jón sé á leið til landsins og samningur gæti verið undirritaður fyrir næstu helgi.
Athugasemdir