Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. janúar 2021 07:00
Victor Pálsson
Maicon samdi við lið í fjórðu deild
Mynd: Getty Images
Maicon, fyrrum leikmaður Inter Milan og Manchester City, hefur skrifað undir samning við Sona á Ítalíu.

Þessar fréttir koma kannski einhverjum á óvart en Maicon er 39 ára gamall og var síðast hjá Villa Nova Atletico í Brasilíu.

Sona hefur nú tryggt sér þjónustu leikmannsins sem var gríðarlega öflugur í bakverði Inter á sínum tíma.

Maicon vann þrennuna undir Jose Mourinho hjá Inter árið 2010 en hélt síðar til Man City þar sem leikirnir voru fáir.

Maicon er fæddur árið 1981 og á að baki 76 landsleiki fyrir Brasilíu en sá síðasti kom árið 2014.

Athugasemdir
banner
banner