Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 01. janúar 2021 22:21
Ívan Guðjón Baldursson
Moyes: Átti frábæra tíma hérna en núna vil ég gera þetta aftur
Mynd: Getty Images
David Moyes stýrði West Ham United til sigurs er liðið heimsótti Everton á Goodison Park í dag og var ánægður að leikslokum.

Moyes gerði garðinn frægan sem knattspyrnustjóri Everton þar sem hann var í rúman áratug og gerði frábæra hluti áður en hann var ráðinn sem arftaki Sir Alex Ferguson hjá Manchester United.

„Það er alltaf sérstakt að spila við sín fyrrverandi félög," sagði Moyes, sem hafði tapað öllum fjórum útileikjum sínum gegn Everton eftir að hafa yfirgefið félagið fyrir átta árum.

„Ég átti frábæra tíma hérna en núna vil ég gera þetta aftur. Ég vil gera góða hluti með West Ham og til þess þurfum við að halda áfram að vinna leiki eins og þennan í dag."

West Ham er í efri hluta deildarinnar eftir sigurinn, þremur stigum eftir Everton sem situr við hlið Leicester í 3-4. sæti.

„Það var gríðarlega mikilvægt að ná í stigin í dag. Bæði lið þráðu sigur í dag og er ég gríðarlega stoltur af mínum mönnum, þetta er þriðji leikurinn sem strákarnir spila á sex dögum."
Athugasemdir
banner
banner
banner