Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 01. janúar 2021 11:00
Victor Pálsson
Potter viss um að hann sé með stuðning
Mynd: Getty Images
Graham Potter, stjóri Brighton, er viss um að hann sé með stuðning frá stjórn félagsins þrátt fyrir brösugt gengi á tímabilinu.

Potter og félagar hafa ekki unnið í síðustu sjö leikjum sínum og hefur hann því verið orðaður við brottrekstur.

Brighton er tveimur stigum frá fallsæti fyrir leik gegn Wolves á laugardaginn.

„Það er ekkert sem bendir til þess að ég sé ekki með fullan stuðning frá eigandanum og stjórninni," sagði Potter.

„Eigandinn er ekki beint hefðbundinn - hann er ekki eins og ég eða þú eða meirihlutinn af knattspyrnuheiminum."

„Hann er mjög sérstakur maður og ein af ástæðunum fyrir því að ég kom til félagsins."
Athugasemdir
banner
banner