Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 01. janúar 2021 09:00
Victor Pálsson
Varar Lampard við því að nota Werner á vængnum
Mynd: Getty Images
Scott Minto, fyrrum leikmaður Chelsea, hefur varað Frank Lampard við því að það gæti kostað Chelsea að spila Timo Werner á vængnum.

Werner hefur hingað til aðallega spilað vinstra megin í sóknarlínu Chelsea og hefur verið ansi týndur í síðustu leikjum.

Minto segir að það sé ákveðin áhætta að spila Werner út á vængnum en Þjóðverjinn hefur ekki skorað í 11 leikjum í röð.

„Hann er alvöru leikmaður og martröð varnarmanna. Ef hann á að spila þarna vinstra megin þar Frank Lampard að taka ákvörðun," sagði Minto.

„Ef þú ætlar að spila honum þar og með stórann framherja fremst þá sættirðu þig við það að hann mun koma inn á völlinn og reyna að spila á Olivier Giroud eða Tammy Abraham. Það skilur eftir sig gat í vörninni eins og við sáum gegn Arsenal."

„Varðandi færanýtinguna þá ætti hann að vera með sjö eða átta mörk í viðbót og það er honum að kenna."
Athugasemdir
banner
banner
banner