Lens 3-1 PSG
PSG heimsótti Lens í frönsku deildinni í kvöld en PSG hafði ekki tapað þegar kom að leiknum í kvöld.
Lionel Messi er enn í fríi eftir HM og Neymar var í banni í kvöld eftir að hafa látið reka sig af velli með tvö gul eftir dýfu í síðasta leik gegn Strasbourg.
Lens komst yfir eftir aðeins fimm mínútna leik en Hugo Ekitike jafnaði metin aðeins þremur mínútum síðar. Þetta er annað mark hans fyrir félagið í 11 leikjum.
Lens náði aftur forystunni áður en flautað var til leikhlés og þriðja markið kom síðan strax í upphafi síðari hálfleiks og þar við sat. 3-1 sigur Lens staðreynd og er liðið í 2. sæti aðeins fjórum stigum á eftir PSG sem er á toppnum.
Athugasemdir