Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, var í viðtali eftir leik liðsins gegn Þór í kvöld. ÍA sigraði leikinn 4-1. Jói Kalli, eins og hann er oftast kallaður, var meðal annars spurður út í leikinn, hópinn og framhaldið.
„Við erum í fínum málum, við erum að vinna þessa leiki sem við erum að fara í. Ég er virkilega sáttur með stærsta hluta leiksins hér í dag," sagði Jói Kalli
„Við erum að reyna undirbúa okkur eins vel og við getum fyrir Pepsi Max deildina og þann slag, við ætlum að vera erfiðir að eiga við"
„Við erum í samstarfi við Kára og Skallagrím, við viljum gefa okkar leikmönnum verkefni við hæfi. Við viljum samkeppni í hópnum og hafa stóran hóp. Virkilega ánægður með hópinn sem ég er með í höndunum í dag."
„Við erum búnir að vera spila með bæði þrjá hafsenta og tvo. Við verðum að vera með breidd í þessum stöðum eins og öðrum."
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir