Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. mars 2019 22:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjubikarinn: ÍA með stórsigur á Þór
Albert skoraði þriðja mark ÍA í kvöld.
Albert skoraði þriðja mark ÍA í kvöld.
Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir
ÍA 4-1 Þór
1-0 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('8)
2-0 Viktor Jónsson ('26)
2-1 Jónas Björgvin Sigurbergsson ('76)
3-1 Albert Hafsteinsson ('79)
4-1 Þórður Þorsteinn Þórðarson ('90+3)

ÍA tók á móti Þór í Akraneshöllinni í kvöld. Þetta var þriðji leikur beggja liða í A-deild Lengjubikarsins, liðin leika í riðli 1.

ÍA var fyrir leikinn með fullt hús stiga eftir sigra á Stjörnunni og Leikni. Þór var með þrjú stig eftir sigur á Magna. Þór gerði jafntefli við Leikni en var dæmdur ósigur vegna ólöglegs leikmanns.

Tryggvi Hrafn Haraldsson kom Skagamönnum yfir á 8. mínútu leiksins og Viktor Jónsson bætti við öðru marki heimamanna á 26. mínútu.

Jónas Björgvin minnkaði muninn fyrir Þórsara þegar um korter lifði leiks en Albert Hafsteinsson svaraði fyrir heimamenn þrem mínútum síðar.

Þórður Þorsteinn Þórðarson skoraði lokamark leiksins fyrir heimamenn í uppbótartíma.

ÍA er með fullt hús stiga á toppi riðilsins en Þór er með þrjú stig. ÍA mætir Grindavík um næstu helgi og Þór tekur á móti Stjörnunni í Boganum. Viðtöl við þjálfara koma seinna í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner