Fabinho hefur verið besti leikmaður Liverpool á þessu tímbili að sögn goðsagnarinnar John Barnes.
Barnes er fyrrum leikmaður Liverpool og hefur verið mjög hrifinn af Brasilíumanninum á annars erfiðri leiktíð liðsins.
Fabinho hefur spilað 31 leik á tímabilinu en flestir af þeim hafa verið í miðverði. Besta staða hans er þó talin vera á miðjunni.
„Sá leikmaður sem hefur hrifið mig mest á þessu tímabili er Fabinho," sagði Barnes.
„Vegna meiðsla þá hefur hann þurft að spila að spila í vörninni og hefur gert nokkuð vel á tímabilinu."
„Þú getur séð áhrifin sem hann hefur á liðið þegar hann er á miðjunni. Hann hefur sýnt mestan stöðugleika í þessu liði."
Athugasemdir