Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 01. maí 2021 20:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Albert með mark og stoðsendingu - Sjáðu fallegt mark hans
Frábær leikur hjá Alberti.
Frábær leikur hjá Alberti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Berglind Rós var í byrjunarliði Örebro sem fékk skell.
Berglind Rós var í byrjunarliði Örebro sem fékk skell.
Mynd: Getty Images
Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson var á skotskónum fyrir AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni í dag.

Albert fékk boltann inn í teignum, tók glæsilegan snúning og kláraði frábærlega. Hann jafnaði metin í 1-1 gegn RKC Waalwijk á 28. mínútu leiksins.

Hægt er að skoða markið með því að smella hérna.

Leikurinn endaði 1-3. Albert lét það ekki duga að skora því hann lagði einnig upp þriðja markið, markið sem innisigaði sigurinn fyrir AZ. Markið gerði Calvin Stengs.

AZ er í þriðja sæti hollensku úrvalsdeildarinnar, með jafnmörg stig og PSV. AZ á þrjá leiki eftir og PSV fjóra leiki eftir.

Þá til Svíþjóðar
Það voru Íslendingar í eldlínunni í úrvalsdeildum karla og kvenna í Svíþjóð í dag.

Jón Guðni Fjóluson spilaði allan leikinn þegar Hammarby gerði 1-1 jafntefli gegn Häcken. Valgeir Lunddal var ónotaður varamaður hjá Häcken í leiknum. Óskar Sverrisson var ekki í hóp hjá Häcken í dag.

Aron Bjarnason var ekki í hóp hjá Sirius í 1-1 jafntefli við Kalmar. Aron hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu en lið hans, Sirius, hefur farið mjög vel af stað og er í öðru sæti sænsku deildarinnar með átta stig eftir fjóra leiki. Hammarby er í tíunda sæti og Häcken í 13. sæti.

Þá fékk Íslendingalið Örebro skell gegn Hammarby í úrvalsdeild kvenna. Berglind Rós Ágústsdóttir var í byrjunarliði Örebro og Cecilía Rán Rúnarsdóttir á bekknum í 5-0 tapi. Örebro er með þrjú stig eftir þrjá leiki.

Willum spilaði hálfleik
Í Hvíta-Rússlandi spilaði Willum Þór Willumsson fyrri hálfleikinn þegar BATE Borisov vann 1-0 sigur á Smorgon. BATE er í öðru sæti eftir sjö leiki með 17 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner