Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   lau 01. maí 2021 19:26
Egill Sigfússon
Arnar Grétars: Heilt yfir sanngjarnt
Arnar Grétarsson, þjálfari KA
Arnar Grétarsson, þjálfari KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA heimsótti HK í Kórinn og gerði 0-0 jafntefli í fyrstu umferð Pepsí Max-deildar karla.

„ Ég held að þetta hafi verið sanngjörn niðurstaða, við vildum meira en heilt yfir var þetta sanngjarnt. Ég var þokkalega sáttur við varnarleikinn en á síðasta þriðjungnum vorum við ekki að taka réttar ákvarðanir og komum okkur ekki í nógu góðar stöður," sagði Arnar Grétarsson, þjálfari KA manna um leik sinna manna.

Lestu um leikinn: HK 0 -  0 KA

Steinþór Már Auðunsson var í marki KA í fjarveru Kristijan Jajalo sem er lengi frá eftir að hafa brotnað á úlnlið. Arnar segir að liðið sé að leita að markmanni.

„ Ég heyrði að þetta væru þrír mánuðir svo við erum að skoða hvort við getum fengið nýjan markmann þar sem við erum bara með ungan og efnilegan strák sem er í 3. flokki á bekknum. Stubbur er hrikalega flottur og hélt hreinu í dag og bjargaði meistaralega í dauðafærinu sem HK fékk. Það mætti segja að hann sé ástæðan fyrir að við förum með eitt stig heim í dag."

„Við erum að skoða að fá annað hvort kantmann eða framherja en það er ekki auðhlaupið að því í þessu Covid veseni."

Sagði Arnar að lokum en hann er að leita sér að einum sóknarmanni til viðbótar vegna þess að Elfar Árni er enn frá.
Athugasemdir
banner
banner
banner