Leiknir Reykjavík er komið aftur upp í efstu deild eftir sex ára fjarveru í deild þeirra bestu.
Síðast þegar Leiknir var upp í efstu deild þá voru Leiknisljónin, þeirra stuðningsmenn, mjög áberandi á völlum landsins.
Leiknisljónin voru fámenn í stúkunni í Garðabæ en létu vel í sér heyra þegar Leiknir gerði markalaust jafntefli við Stjörnuna á útivelli í kvöld.
Anton Freyr Jónsson, fréttaritari Fótbolta.net, var á vellinum í kvöld og hann deilir skemmtilegu myndbandi á Twitter eftir leikinn.
„Leikurinn löngu búinn. Alvöru passion hjá Leiknisljónum," skrifaði Anton Freyr en myndbandið má sjá hér að neðan.
Leikurinn löngu búin. Alvöru passion hjá Leiknisljónum. @LeiknirRvkFC #fotboltinet pic.twitter.com/DTgbh6NBN9
— Anton Freyr Jónsson (@antonfreeyr) May 1, 2021
Athugasemdir