Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   sun 01. maí 2022 18:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arteta: Hefur átt skilið að spila meira
Mikel Arteta, stjóri Arsenal.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal.
Mynd: EPA
„Þú verður að finna leiðir til að vinna og þetta var ljótur sigur," sagði Mikel Arteta, stjóri liðsins, eftir 1-2 útisigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni.

Arsenal er núna í fjórða sæti með tveimur stigum meira en erkifjendurnir í Tottenham þegar bæði lið eiga tvo leiki eftir.

„Ég er rosalega ánægður, sérstaklega með Rob Holding því hann heur átt skilið að spila meira en hann hefur gert. Hann var maður leiksins í dag og hann er alltaf til staðar þegar við þurfum á honum að halda."

„Við fáum núna vikuna til að undirbúa næsta leik. Pressan er til staðar þar sem bæði liðin unnu í dag. Við verðum að halda áfram," sagði Arteta.

Næsti leikur Arsenal er heimaleikur gegn Leeds næsta sunnudag. Á meðan spilar Tottenham útileik gegn Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner