Fabrizio Romano gefur lítið fyrir fréttir úr enskum fjölmiðlum sem segja viðræður úrúgvæska sóknarmannsins Edinson Cavani við lið i Argentínu langt á veg komnar.
Undanfarnar vikur hefur Cavani verið orðaður bæði við Boca Juniors og River Plate en Romano segir lítið vera til í þeim sögusögnum. Cavani vill fara til Spánar.
Cavani er 35 ára gamall og skoraði 19 mörk í 56 leikjum hjá Manchester United.
Hann var lengi einn af bestu sóknarmönnum heims og skoraði 200 mörk í 301 keppnisleik hjá Paris Saint-Germain. Þar áður gerði hann 104 mörk í 138 leikjum hjá Napoli.
Athugasemdir