FH heimsótti Breiðablik í kvöld þegar þriðja umferð Bestu deildar karla hélt áfram göngu sinni.
FH hafði fyrir leikinn þrjú stig og freistuðu þess að bæta í sarpinn þegar þeir heimsóttu Blikana.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 0 FH
„Það er fúlt, það er nátturlega ferlegt að tapa fótboltaleik og við erum bara svekktir með það en líka að við hefðum getað gert betur hérna í dag, það er ljóst og það er það sem maður er svekktastur með," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari FH, eftir leikinn.
„Við hefðum þurft að vera hugaðari og gera betur með boltann þegar við vorum með hann. Mér fannst fyrri hálfleikurinn við lengst um vera þéttir og þeir voru svo sem ekkert að gera neitt hérna í fyrri hálfleik og við ætluðum inn með þessa stöðu og fá aðeins að endurstilla en þá fáum við á okkur algjört skítamark hérna í lokin á fyrri hálfleik þar sem við höfðum allan tíma í heimi til þess að þruma þessu í burtu."
FH eru með þrjú stig eftir þrjár umferðir og eiga Valsmenn í næstu umferð en Sigurbjörn vill ekki meina að það sé kominn neinn skjálfti í hópinn.
„Nei, við erum að fara mæta frábæru Valsliði og við vissum það að við værum að fara mæta mjög öflugum liðum í upphafs umferðunum."
Nánar er rætt við Sigurbjörn í spilaranum hér fyrir ofan.
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |