Everton lagði Chelsea að velli í mikilvægum slag í ensku úrvalsdeildinni rétt í þessu.
Sigur Everton er óvæntur eftir slakt gengi undanfarnar vikur enda var þetta leikur gegn afar sterkum andstæðingum.
Richarlison gerði eina mark leiksins á 47. mínútu og komst Chelsea nokkrum sinnum nálægt því að jafna en þær tilraunir báru ekki árangur.
Jordan Pickford er helsta ástæðan fyrir því og má sjá magnaða tvöfalda markvörslu frá því í leiknum með því að smella hér.
Þetta gæti verið besta og mikilvægasta markvarsla úrvalsdeildartímabilsins en Everton er áfram í fallsæti, tveimur stigum frá öruggu sæti og með leik til góða.
Á Ítalíu átti Mike Maignan, markvörður AC Milan, einnig afar mikilvæga vörslu gegn Fiorentina.
Frábærlega varið hjá franska markverðinum í 1-0 sigri sem færir Milan skrefi nær sínum fyrsta Ítalíumeistaratitli síðan 2011.
Milan er með fimm stiga forystu á toppinum en Inter er í öðru sæti með leik til góða.