Spænska liðið Barcelona tapaði fyrir Wolfsburg, 2-0, í Meistaradeild Evrópu í gær en komst þrátt fyrir það áfram í úrslitaleik keppninnar. Það vakti þó mest athygli að þetta var fyrsta tap liðsins síðan á síðasta ári.
Síðasti tapleikur Barcelona kom gegn Atlético Madríd í júní á síðasta ári en sá leikur tapaðist 4-3.
Síðan þá hefur liðið unnið alla 45 leiki sína í öllum keppnum. Rosalegt afrek hjá Evrópumeisturunum.
Í gær þurftu þær hins vegar að játa sig sigraðar. Tabea Wassmüth og Jill Roord sáu til þess að vinna leikinn fyrir Wolfsburg en það dugði þó ekki til.
Barcelona mun leika til úrslita í Meistaradeildinni og mætir þar Lyon.
BARCELONA FEMENI'S 45-GAME WINNING STREAK IS ENDED BY WOLFSBURG 😱
— GOAL (@goal) April 30, 2022
Despite the loss, Barcelona still qualified for the Women's Champions League final. pic.twitter.com/xVJOoaMuBr
Athugasemdir