Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 01. júní 2021 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ancelotti sagður vera í Madríd - Everton orðað við Moyes
Mynd: Getty Images
Það er allt að gerast á Spáni og keppast fjölmiðlar þar um að greina frá því að Carlo Ancelotti sé að taka við Real Madrid.

Einhverjir fjölmiðlar segja Ancelotti nú þegar vera lentan í Madríd og er orðrómurinn orðinn afar hávær.

Talið er að Ancelotti verði kynntur sem nýr þjálfari Real Madrid í vikunni en þetta yrði afar sárt fyrir stuðningsmenn Everton sem hafa margir mikla trú á Ítalanum.

Ancelotti hefur áður starfað hjá Real og vann Meistaradeildina 2014 með Zinedine Zidane sem aðstoðarþjálfara.

Everton er núna orðað við David Moyes, sem gerði frábæra hluti með West Ham á nýliðnu tímabili. Nuno Espirito Santo og Eddie Howe hafa einnig verið nefndir.
Athugasemdir
banner
banner
banner