Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 01. júní 2021 16:07
Elvar Geir Magnússon
Enski hópurinn á EM - Trent og Bellingham valdir
Fjórir hægri bakverðir í hópnum
Trent Alexander-Arnold er valinn.
Trent Alexander-Arnold er valinn.
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands.
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Trent Alexander-Arnold, bakvörður Liverpool, er meðal fjögurra hægri bakvarða sem Gareth Southgate landsliðsþjálfari Englands velur í 26 manna lokahóp sinn fyrir EM alls staðar.

Sögusagnir voru á ferðinni um að Trent yrði ekki valinn en hann er hinsvegar í hópnum. Kieran Trippier, Kyle Walker og Reece James sem einnig eru hægri bakverðir eru líka valdir.

Ollie Watkins, Mason Greenwood, James Ward-Prowse, Jesse Lingard, Aaron Ramsdale, Ben Godfrey og Ben White eru leikmennirnir sem voru í úrtakshópnum en fara ekki með á mótið. Greenwood dró sig út vegna meiðsla.

Jude Bellingham, leikmaður Dortmund sem verður 18 ára síðar í þessum mánuði, er í hópnum.

Harry Maguire, sem missti af úrslitaleik Evrópudeildarinnar vegna ökklameiðsla, er í hópnum. Hann er hinsvegar tæpur fyrir fyrsta leik Englands gegn Króatíu þann 13. júní. Skotland og Tékkland eru einnig í riðlinum.

Markverðir: Dean Henderson (Man Utd), Sam Johnstone (West Brom), Jordan Pickford (Everton)

Varnarmenn: John Stones (Man City), Luke Shaw (Man Utd), Harry Maguire (Man Utd), Trent Alexander-Arnold (Liverpool), Kyle Walker (Man City), Tyrone Mings (Aston Villa), Reece James (Chelsea), Conor Coady (Wolves), Ben Chilwell (Chelsea), Kieran Trippier (Atletico Madrid)

Miðjumenn: Mason Mount (Chelsea), Declan Rice (West Ham), Jordan Henderson (Liverpool), Jude Bellingham (Borussia Dortmund), Kalvin Phillips (Leeds)

Sóknarmenn: Harry Kane (Tottenham), Marcus Rashford (Man Utd), Raheem Sterling (Man City), Dominic Calvert-Lewin (Everton), Phil Foden (Man City), Jack Grealish (Aston Villa), Jadon Sancho (Borussia Dortmund), Bukayo Saka (Arsenal)


Athugasemdir
banner
banner
banner